Tilraunakenndir tónar og hin eilífa endurtekning

Tón­leikar, sýn­ingar og við­burðir 26. jan­úar–8. febr­úar.

Úlfur Eldjárn

Hvar? Mengi
Hvenær? 26. jan­úar kl. 21.00
Aðgangs­eyrir: 2.500 kr.

Úlfur Eldjárn fer gjarnan óvenju­legar og til­rauna­kenndar leiðir í tón­list sinni. Á tón­leik­unum mun hann bjóða áheyr­endum með sér inn í kosmískar víddir nýrrar raf­tón­listar sem hann er með í vinnslu. Fyrir skemmstu gaf Úlfur út plöt­una „The Aristókrasía Project“, þar sem hann blandar saman hljóð­gervlum, lif­andi strengjum og slag­verki.

Godchilla útgáfutónleikar

Hvar? Iðnó
Hvenær? 27. jan­úar kl. 20.00
Aðgangs­eyrir: 2.500 kr.

Leðju­kennda rokksveitin Godchilla fagnar þriðju útgáfu sinni, „Hypnopolis“, en hún var til­nefnd til Kraum­verð­launa 2017. Lög sveit­ar­innar ein­kenn­ast af sveim­kenndu gít­ar­spili og drynj­andi bassa, rólegum en takt­föstum trommum, með ómandi söng. Hljóm­sveitin hefur lofað miklu sjón­ar­spili þar sem skilin milli tón­flutn­ings og fjar­flutn­ings munu mást út. Þeim til liðs verða russian.girls og Sindri 7000.

Japanshátíð

Hvar? Veröld – hús Vigdísar
Hvenær? 27. jan­úar kl. 14.00-17.00
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Hin árlega Jap­ans­há­tíð er haldin í 14. skiptið og í fyrsta skiptið í nýbyggðu tungu­mála­bygg­ingu Háskóla Íslands. Í ár er lögð áhersla á hefð­bundnar jap­anskar listir og siði og er þar Rakugo fremst í far­ar­broddi, en það er uppi­stands­form Japans þar sem sögu­maður flytur ein­leiks­verk. Einnig verða sýndar bar­daga­listir, kennsla í japönskum pop dönsum og aðrir við­burðir.

Vetrarhátíð

Hvar? Víðs vegar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu
Hvenær? 1.–4. febr­úar

Á hinni árlegu Vetr­ar­há­tíð fær myrkur að njóta sín og fjöld­inn allur af lista­mönnum halda sér­stakar sýn­ingar og við­burði. Á föstu­deg­inum er Safna­nótt, en þá bjóða fjöl­mörg söfn upp á fjöl­breytta dag­skrá og ókeypis aðgang frá 18.00, og á laug­ar­dag­inn er Sund­lauga­nótt þar sem sund­laug­arnar gera slíkt hið sama. Hægt er að sjá fulla dag­skrá á vetr­ar­hatid.is.

Innrás I: Guðmundur Thoroddsen

Hvar? Ásmund­ar­safn
Hvenær? 2. febr­úar–2. apríl
Aðgangs­eyrir: 1.650 kr.

Innrás er fjög­urra hluta sýn­ing­ar­röð þar sem lista­mönnum er boðið að „ráð­ast inn“ í yfir­lits­sýn­ingu Ásmundar Sveins­sonar, „List fyrir fólkið“. Á fyrstu sýn­ing­unni er að finna verk Guð­mundar Thorodd­sen, en hann hefur und­an­farin ár beint sjónum sínum á kómískan hátt að karl­mennsk­unni og notað til þess meðal ann­ars skúlp­t­úra úr ker­amik og viði. Guð­mundur verður með leið­sögn 2. febr­úar kl. 20.00.

Groundhog Day dagur

Hvar? Bíó Paradís
Hvenær? 2. febr­úar kl. 10.00–22.00
Aðgangs­eyrir: 1.200 kr.

Á Groundhog deg­inum sjálfum efnir Bíó Paradís til veislu þar sem kvik­myndin um mann­inn sem er fastur í 2. febr­úar er sýnd frá morgni til kvölds, með fyrstu sýn­ingu klukkan 10 og þá síð­ustu 22. Hug­leikur Dagsson verður til staðar til að kynna mynd­ina í hvert ein­asta skipti, og teikna sama verk frá morgni til kvölds eins og hann sé fastur í sinni eigin eilífri end­ur­tekn­ingu.

Emmsjé Gauti

Hvar? Græni hatt­ur­inn, Akureyri
Hvenær? 3. febr­úar kl. 22.00
Aðgangs­eyrir: 3.000 kr.

Fjöl­skyldu­væna and­lit nýju bylgju íslenska rapps­ins, vel klæddi mað­ur­inn sem sagð­ist elska þessar mellur en er nú orð­inn faðir og femínisti, Emmsjé Gauti, heldur tón­leika fyrir norðan og hvetur alla til að mæta í lakk­skóm og und­ir­búa sig fyrir að dansa. Með Gauta koma fram vel valdir vinir hans.

Legend útgáfutónleikar

Hvar? Gauk­ur­inn
Hvenær? 3. febr­úar kl. 00.00
Aðgangs­eyrir: 2.000 kr.

Fimm ár eru á milli frumraunar iðn­að­ar­rokksveit­ar­innar Legend og nýju breið­skíf­unnar „Midnight Champion“ sem hljóm­sveitin fagnar nú. Á þessum fimm árum hefur hljóm­sveitin spilað víða erlendis og hefur ekki komið fram á Íslandi síðan 2014. Búast má við miklum til­burðum og myrku rokki sem á jafn mikið heima á Gauknum og í iðn­að­ar­hverfi þar sem fagnað er síð­asta degi jarðar.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stundarskráin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár