Mynd: Davíð Þór

Fólk veikist af nálgun okkar gagnvart offitu

Sjúkdóms­væðing á útliti fólks getur valdið heilsufars­legum skaða sem hefur meiri áhrif en líkams­þyngd. Tara Margrét Vilhjálms­dóttir segir að BMI-stuðullinn valdi tjóni.

Tíðni offitu barna á Íslandi hefur aukist mikið síðustu áratugi, þá sérstak­lega síðustu tvo áratugi. Í dag eru um 10% allra grunn­skólabarna, sem búa utan höfuð­borgar­svæðisins, skilgreind með offitu, samkvæmt BMI-staðli (Body Mass Index). Þetta hefur haft þau áhrif að fleiri börn hafa verið að sækja sér aðstoð á Land­spítala. Þar starfar sérstakt teymi lækna og annarra sérfræðinga sem sérhæfa sig í offitu barna. Árið 2014 var talið að um 18,2% grunn­skólabarna sem búa utan höfuð­borgar­svæðisins væru yfir kjörþyngd. Í dag hefur sú tala hækkað í 22,7%. Vilja læknar hér á landi grípa til þess að skilgreina offitu sem sjúkdóm til að tækla það sem þeir kalla eitt stærsta heilsufars­vandamál fram­tíðarinnar hér á landi. 

Mikil samfélagsleg umræða hefur skapast í kringum offitu og hafa margir gagnrýnt þá frétta­umfjöllun sem hefur verið í kringum hana og sagt hana einhliða. Ein þeirra sem hefur gert það er Tara Margrét …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár