Leið eins og starf Hæstaréttardómara væri orðið 25 prósent starf

Markús Sig­ur­björns­son, sem var dóm­ari við Hæsta­rétt Íslands í ald­ar­fjórð­ung segir að honum hafi fund­ist botn­inn detta svo­lítið úr starf­inu með til­komu Lands­réttar og tempóið minnkað. Um tíma eftir hrunið hafi hann unnið 380 klukku­stundir á mán­uði.

Markús Sigurbjörnsson hætti störfum við Hæstarétt í fyrrahaust.
Markús Sig­ur­björns­son hætti störfum við Hæsta­rétt í fyrra­haust. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Markús Sig­ur­björns­son, fyrr­ver­andi for­seti Hæsta­réttar og dóm­ari við rétt­inn í ald­ar­fjórð­ung, segir að eftir til­komu Lands­réttar, sem hóf störf í byrjun árs 2018, hafi honum fund­ist botn­inn detta svo­lítið úr starfi Hæsta­réttar. Við þá breyt­ingu fækk­aði málum sem fóru til með­ferðar í Hæsta­rétti til muna. „Mér leið bara eins og ég væri kom­inn í 25% starf og var þó með þá búbót að vera að fjalla um áfrýj­un­ar­leyf­is­beiðnir. Ég held ég hafi aldrei aðlag­ast þessum nýju aðstæðum. Maður var búinn að vera á þessu tempói í 25 ár og erfitt að stíga allt í einu á brems­una. Það var því ósköp þægi­legt að geta bara kvatt og látið þetta duga. En þegar maður horfir til baka þá var nú hel­víti gaman að þessu.“

Þetta kemur fram í við­tali við Markús í nýjasta tölu­blaði Lög­manna­blaðs­ins. Þar segir Markús, sem hætti störfum í fyrra­haust, að hann ætli nú að taka til við að skrifa um einka­mála­rétt­ar­far og aðfar­ar­gerðir ásamt því að passa barna­börnin sín. Hann ætlar líka að reyna að feta sig yfir á ann­ars konar til­veru­stig.

[adspot]Í við­tal­inu segir Markús að vinnu­dag­arnir á tíma­bili eftir banka­hrun, þegar mála­fjöld­inn sem tek­inn var til með­ferðar hjá Hæsta­rétti var mjög mik­ill, hafi oft verið langir og álagið mikið. Honum reikn­ast til að þegar mest var hafi hann unnið um 380 klukku­stundir á mán­uði.

Segir tal um málamiðlanir vera „út í hött“

Markús ræðir einnig gagn­rýni sem Hæsti­réttur Íslands hefur orðið fyrir í við­tal­inu. Þar vísar hann full­yrð­ingum um að dómar sem felldir hafi verið þar í fjöl­skip­uðum dómi séu mála­miðl­anir milli þeirra sem dæmi hverju sinni. „Klass­íski hugs­un­ar­hátt­ur­inn er að þetta sé stofn­unin Hæsti­réttur sem er að tala en ekki ein­hver egóisti, þessi eða hinn að láta sitt ljós skína.

[links]Þótt vissu­lega sé það einn maður sem semur uppi­stöð­una í text­anum þá er þetta sam­eig­in­leg hug­ar­smíð fólks sem er búið að ræða málið í þaula í fram­haldi af mál­flutn­ingi. Þetta eru engar mála­miðl­anir, slíkt tal er út í hött, og það er ekki verið að sjóða saman ólík við­horf. Fólk ræðir sig áfram að nið­ur­stöðu og ef ein­hver dettur útbyrðis þá kemur bara sér­at­kvæði.“

Hann seg­ist ein­ungis einu sinni lent í því að vera hótað með ein­hverjum hætti á meðan að hann gegndi starfi dóm­ara við Hæsta­rétt. „„Það hringdi í mig gagn­merkur sam­tíð­ar­maður að næt­ur­lagi, nokkuð við skál, og kynnti sig eins og mönnum ber að gera. Hann var ekk­ert feim­inn við að bera upp sitt erindi og tjáði mér af mik­illi sið­fágun að hann gæti alveg hugsað sér að hjálpa mér yfir ætt­ern­is­stapa. Ég þakk­aði mann­inum bara mjög pent fyrir enda væri gott að vita af þessu ef ég þyrfti ein­hvern tíma slíka aðstoð. Ég hefði þó ekki hugsað mér að gera þetta alveg í bráð en ég myndi hafa hann í huga.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár