Rætt um þinglok í hádeginu

Þinglok og hvernig þeim verður háttað verða til umræðu á fundi þing­flokks­for­manna og fundi for­sætis­nefndar Alþingis í hádeg­inu í dag. Þetta sagði Einar K. Guð­finns­son, for­seti Alþingis, á þingi í morgun. Hingað til hefur ekk­ert verið rætt við stjórn­ar­and­stöð­una um mögu­leg þing­lok eða semja um það hvaða málum verði lokið fyrir þau. End­ur­skoðuð starfs­á­ætlun þings­ins rann út í síð­ustu viku.

Þingmenn stjórn­ar­and­stöð­unnar mót­mæltu því harð­lega við upp­haf þing­fundar í morgun að yfir­höfuð hafi verið boð­aður þing­fundur, þar sem starfs­á­ætlun þings­ins sé runnin út og engin áætlun í gildi. Þeir sögðu nán­ast enga stjórn­ar­þing­menn vera í salnum, og margir þing­menn þurfi að kom­ast í kosn­inga­bar­áttu.

„Eins og okkur öllum er kunn­ugt um eru tvær starfs­á­ætl­anir Alþingis farnar í rusla­körf­una, hafa ekki stað­ist. Samkvæmt síð­ari áætl­un­inni er þing­fundum lokið. Það hefur ekki verið gerð nein ný áætlun um annað og því miður ekki heldur haft neitt sam­ráð um annað,“ sagði Helgi Hjörvar, þing­flokks­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, í upp­hafi þing­fund­ar­ins. „Ég verð að gera alvar­legar athuga­semdir við að boðað sé til þing­fundar að lok­inni starfs­á­ætlun, án þess að það sé rætt í for­sætis­nefnd Alþingis eða við for­menn þing­flokka í þing­inu. Þetta er lýð­ræð­is­stofnun. Henni er ekk­ert stjórnað með til­skip­unum.“

Svandís Svav­ars­dóttir, þing­flokks­for­maður Vinstri-grænna, sagði svo að þetta væri ekki við­un­andi umgengni við Alþingi. „Það er rétt að boð­aður hefur verið fundur með þing­flokks­for­mönnum í hádeg­inu. En við erum án áætl­unar. Það er engin áætlun gild um starf­semi Alþingis Íslend­inga og það eru innan við fjórar vikur til alþing­is­kosn­inga. Við látum hér eins og allt sé eðli­legt, eins og við getum farið að hefja hefð­bund­inn þing­fund með óund­ir­búnum fyr­ir­spurnum o.s.frv. Það er ekki svo,“ sagði hún. „Tíminn er runn­inn út. Tími þess­arar rík­is­stjórnar er runn­inn út. Tími þing­meiri­hlut­ans er runn­inn út. Við þurfum að kom­ast í kosn­inga­bar­áttu.“

Birgitta Jóns­dóttir, þing­flokks­for­maður Pírata, sagð­ist hafa skiln­ing á því að ekki væri hægt að koma með starfs­á­ætlun fyrr en það lægi fyrir hver yrði for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins. Það væri hins vegar óvið­eig­andi að setja á þing­fund áður en búið væri að funda með þing­flokks­for­mönnum. „Mér finnst þetta bara ekki í lagi.“ Þingmenn stjórn­ar­flokk­anna væru úti í kosn­inga­bar­áttu á meðan þing­menn stjórn­ar­and­stöð­unnar væru inni í þing­sal.

„Kosn­inga­bar­áttan er hafin og þing­menn sumir hverjir þurfa að sinna stórum kjör­dæmum fjarri Reykja­vík,“ sagði Bryn­hildur Pét­urs­dóttir, þing­flokks­for­maður Bjartrar fram­tíðar, og bætti því við að það væri mik­ill aðstöðu­munur milli stjórnar- og stjórn­ar­and­stöðu­þing­manna í þessum kjör­dæmum.

Fundur þing­flokks­for­manna mun hefj­ast klukkan 12 og fundur for­sætis­nefndar hefst 12:30.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár