Allir nema einn samþykktu stofnun jafnréttissjóðs - Sigríður Andersen á móti

Allir þing­menn nema einn, Sigríður Á. Andersen þing­kona Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sam­þykktu stofnun Jafn­rétt­is­sjóðs Íslands á Alþingi í dag. Þingið kom saman til hátíð­ar­fundar í dag vegna þess að í dag eru liðin 100 ár frá því að konur fengu fyrst kosn­inga­rétt, og stofnun sjóðs­ins var eina málið á dag­skránni.

Tillagan var sam­þykkt með 61 atkvæði, Sigríður var á móti og Hösk­uldur Þór­halls­son var fjar­ver­andi. Formenn allra stjórn­mála­flokk­anna stóðu að þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unni. Aðeins konur tóku til máls í umræð­unum í dag. Þórunn Egils­dóttir hélt ræðu fyrir hönd Fram­sókn­ar­flokks­ins, Katrín Júl­í­us­dóttir fyrir Sam­fylk­ing­una, Katrín Jak­obs­dóttir fyrir VG, Hanna Birna Krist­jáns­dóttir fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn, Björt Ólafs­dóttir fyrir Bjarta fram­tíð og Birgitta Jóns­dóttir fyrir Pírata.

Sigríður greindi frá afstöðu sinni í fyrri umræðu um málið á þriðju­dag. Hún sagði þings­á­lykt­un­ar­til­lög­una vera von­brigði og ekk­ert annað en „enn eitt rík­is­út­gjalda­málið. Í til­lög­unni er lagt til að veru­lega háum fjár­munum sé deilt út með afar ómark­vissum hætti í ýmis verk­efni sem þarna eru talin upp á sama tíma og fé vantar í mörg nauð­syn­leg verk­efni sem ég veit að er jafn­vel þverpóli­tísk sam­staða um að ráð­ast þurfi í.“

Hún sagði það sína skoðun að virð­ingu kvenna væri eng­inn sér­stakur sómi sýndur með til­lögu sem sendi 500 millj­óna króna reikn­ing til skatt­greið­enda, en helm­ingur þeirra væru konur.

„Ég ítreka það sem ég hef áður sagt: Að sjálf­sögðu eigum við að halda upp á 100 ára afmæli kosn­ing­ar­réttar kvenna. En ég spyr þá á móti, virðu­legur for­seti: Þarf alltaf að eyða pen­ingum? Þarf alltaf að gera það? Ég minni á að í aðdrag­anda þessa afmælis allt þetta ár hefur þess­ara tíma­móta verið minnst með marg­vís­legum og veg­legum hætti — allt árið. Útgjöld vegna þessa eru alveg fyrir utan þau útgjöld sem hér eru lögð til.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár