Segir „svikalogn sumarsins“ vera að renna sitt skeið á enda

Formaður Samtaka ferða­þjón­ust­unnar segir það „hreinan barna­skap“ að halda að ferða­menn sem dvelji að með­al­tali sjö til átta nætur á land­inu komi til að „dúsa inni­lok­aðir“ megnið af ferð­inni. Hún telur atvinnustig verða miklu verra en ótt­ast var.

Bjarnheiður Hallsdóttir er formaður Samtaka ferðaþjónustunnar.
Bjarn­heiður Halls­dóttir er for­maður Samtaka ferða­þjón­ust­unnar. Mynd: SAF

Tvöföld skimun og 4-5 daga sótt­kví allra sem koma til lands­ins mun bitna á öllu á sam­fé­lag­inu sam­kvæmt Bjarn­heiði Halls­dóttur for­manns Samtaka ferða­þjón­ust­unnar. Þetta segir Bjarn­heiður í nýrri skoð­ana­grein sinni, Menn­ing­ar­vet­ur­inn, sem birt­ist á Vísi. Þar segir hún ákvörð­un­ina vera enn eitt rot­höggið fyrir ferða­þjón­ustu á Íslandi. „Á end­anum líka, hvort sem mönnum líkar það betur eða verr fyrir allt sam­fé­lagið,“ segir Bjarn­heiður.

Hún segir að allt eins hefði verið hægt að taka upp tveggja vikna sótt­kví fyrir alla þá sem koma til lands­ins ef mark­miðið sé að útrýma veirunni úr sam­fé­lag­inu. „Það munu fáir, ef ein­hverjir „venju­legir“ ferða­menn, sem dvelja að með­al­tali 7-8 nætur á land­inu, koma til lands­ins til að dúsa inni­lok­aðir megnið af ferð­inni. Það er hreinn barna­skapur að halda að svo verði,“ segir Bjarn­heiður í grein sinni.

Frostavetur fremur en menningarvetur fram undan

Bjarn­heiður gerir grein Lilju Alfreðs­dóttur, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, sem birt­ist í Morg­un­blað­inu 15. þessa mán­aðar að umfjöll­un­ar­efni sínu en þar tal­aði Lilja um til­slak­anir til að auka menn­ing­ar­virkni. Bjarn­heiður seg­ist sam­mála Lilju um að listir og menn­ing gefi líf­inu gildi og séu mik­il­vægar. „Hins vegar er það deg­inum ljós­ara að svika­logn sum­ars­ins er nú að renna sitt skeið á enda. Það stöðv­að­ist end­an­lega við nýj­ustu tíð­indin af stjórn­ar­heim­il­inu. Að óbreyttu mun atvinnustigið innan skamms verða miklu verra en ótt­ast var,“ bætir Bjarn­heiður svo við.

Hún segir að kaup­máttur muni minnka og einka­neysla drag­ast saman, sam­hliða lægri ráð­stöf­un­ar­tekjum stórs hluta starfs­manna á almennum mark­aði. Þá muni eft­ir­spurn erlendra ferða­manna eftir vörum og þjón­ustu stöðvast að sögn Mar­grétar. Hún lýkur svo grein sinni á efa­semd­ar­orðum um að menn­ingin geti vegið upp á móti því sem tap­ast með minnk­andi umsvifum í ferða­þjón­ustu: „Hvort menn­ing­ar­vet­ur­inn hennar Lilju Alfreðs­dóttur nái að vega þar upp á móti, leyfi ég mer að stór­ef­ast um. Kannski væri nær að byrja að búa sig undir frosta­vetur.“

Miklir hagsmunir í húfi

Líkt og Kjarninn hefur fjallað um þá hafa stjórn­völd lagt mat á efna­hags­leg áhrif þess að opna landið og borið það saman við ábatann af því að hleypa ferða­mönnum inn. Í minn­is­blaði rík­is­stjórn­ar­innar sem lagt var fram fyrir helgi var sagt að „efna­hags­legir hags­munir af því að kom­ast hjá hörðum sótt­varna­að­gerðum geta hlaupið á hund­ruðum millj­arða króna á árs­grund­velli.“ Nið­ur­staða minn­is­blaðs­ins virð­ist vera sú að efna­hags­legur kostn­aður þess að hafa landa­mærin opin sé meiri en ábat­inn sem það skapi fyrir ferða­þjón­ustu.

[links]

Um efna­hags­lega hags­muni þess að kom­ast hjá hörðum sótt­varna­að­gerðum segir í minn­is­blað­inu: „Þegar far­ald­ur­inn stóð sem hæst var korta­velta Íslend­inga inn­an­lands um 10 millj­örðum króna minni á mán­uði en hún hefði verið án far­ald­urs­ins eða sem sam­svarar um fjögur pró­sent af lands­fram­leiðslu hvers mán­aðar. Í mörgum Evr­ópu­löndum þar sem beitt var harð­ari aðgerðum en á Íslandi dróst lands­fram­leiðsla saman um 10-20 pró­sent á öðrum árs­fjórð­ungi.“

Í minn­is­blað­inu kemur einnig fram að fram­lag hvers ferða­manns á hag­kerfið sé metið á 100 til 120 þús­und krónur og því er áætlað að þeir ferða­menn sem hafa heim­sótt landið frá því að tak­mörk­unum var lyft á landa­mærum Íslands um miðjan júní hafi lagt um átta millj­arða króna til efna­hags­lífs­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár