Öll umferð lesta milli Danmerkur og Þýskalands stöðvuð vegna flóttafólks

Lestar­fyr­ir­tækið DSB í Danmörku hefur stöðvað allar lestar­ferðir milli Dan­merkur og Þýska­lands vegna straums flótta­fólks um álf­una. Frá þessu greinir danska rík­is­út­varpið, DR. Þetta gildir um báðar leiðir DSB til og frá Þýska­landi, hvort sem það frá Rød­by­havn til Putt­gar­den eða um Padborg á Suður-Jótlandi.

Þessi tíð­indi voru höfð eftir Tony Bispekov, upp­lýs­inga­full­trúa DSB, í fréttum DR í dag. Ferð­irnar til Þýska­lands hafa verið stöðv­aðar í óákveðin tíma. Nokkuð hefur verið um að Danir hafi farið á einka­bílum yfir landa­mærin til Sví­þjóðar eða Þýska­lands og sótt flótta­fólk sem eru stranda­glópar í öðru­hvoru land­inu og flutt með sér til Dan­merkur. Það er hins vegar bannað og á fólk hættu á fanga­vist verði það upp­víst af slíku.

Í Rødby hefur lög­regla farið um borð í lestir sem komið hafa frá Þýska­landi og skilið vatns­þurfa börn frá for­eldrum sínum, og komið í lækn­is­hendur. Flótta­fólkið heldur sig í lest­inni sem stendur kyrr við braut­ar­pall­inn og neitar jafn­vel mat­ar­gjöfum frá lög­regl­unni, segir Jyllands Posten.

Tvær lestir standa kjurrar við braut­ar­pall­inn í Rødby. Önnur kom þangað aðfara­nótt þriðju­dags en hin í nótt með um 150 flótta­menn um borð. Flótta­fólkið neitar hins­vegar að fara frá borði og skrá sig í Danmörku sem flótta­fólk. Þriðja lestin var um borð í ferj­unni frá Þýska­landi og verður stöðvuð í Rødby. Talið er að um 100 flótta­menn séu þar um borð. Jyllands Posten hafði ekki fengið fengið svör frá lög­regl­unni á Suður-Jótlandi eða í Lálandi.

Flótta­fólkið er flest á leið til Sví­þjóðar þar sem stjórn­völd eru mun mild­ari en þau dönsku gagn­vart inn­flytj­endum og flótta­mönnum frá Sýrlandi. Á sunn­an­verðu Jótlandi hafa stjórn­völd fyr­ir­skipað flug­bann yfir þjóð­vegum vegna þess að þar fara nú um meira en 300 flótta­menn á leið sinni til Sví­þjóðar. Bannið nær yfir þyrlu­flug og lág­flug. Frá þessu er greint á vef DR.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár