Íslendingar borguðu 4 milljörðum of mikið í bensín í fyrra

Sam­keppni á íslenskum elds­neyt­is­mark­aði er „veru­lega skert“ og álagn­ing olíu­fé­lag­anna á bensín mikil. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu frá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu, sem gerði mark­aðs­rann­sókn á elds­neyt­is­mark­aðnum hér á landi. Eft­ir­litið segir þetta mikið áhyggju­efni.

Bens­ín­verð á Íslandi er hærra en gengur og ger­ist í flestum öðrum vest­rænum ríkjum og mun­ur­inn er svo mik­ill að það er ekki hægt að skýra hann með smæð mark­að­ar­ins eða auknum kostn­aði vegna sölu elds­neytis hér á landi, segir Sam­keppn­is­eft­ir­litið. Álagn­ingin og óhag­kvæmur rekstur olíu­fé­lag­anna á þessu sviði bendir líka til þess að tak­mörkuð sam­keppni sé fyrir hendi. Olíu­fé­lögin stunda hátt­semi sem getur hindrað sam­keppni og miklar aðgangs­hindr­anir eru fyrir nýja aðila að koma inn á þennan markað.

Sam­keppn­is­eft­ir­litið full­yrðir ekki hvort um sam­ráð er að ræða, en segir sterkar vís­bend­ingar um að olíu­fé­lögin sam­hæfi hegðun sína með „þegj­andi sam­hæf­ingu.“

Sam­keppn­is­eft­ir­litið telur að þörf sé á aðgerðum til að bæta hag almenn­ings í bens­ín­málum, enda sé elds­neyt­is­mark­að­ur­inn þjóð­hags­lega mjög mik­il­vægur. Samkvæmt skýrsl­unni greiddu neyt­endur 4.000 til 4.500 millj­ónum króna of mikið í bensín á síð­asta ári.

Grípa þarf til aðgerða til að auka sam­keppni, sem myndi verða til hag­kvæm­ari rekst­urs olíu­fé­lag­anna og það myndi stuðla að lægra verði til neyt­enda, segir Sam­keppn­is­eft­ir­litið. Það þarf því að breyta aðgangs­hindr­unum að mark­aðnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár