Dagur og Kristrún halda að sér spilunum

Logi Ein­ars­son telur aðra geta gert betur en hann sem for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Lík­leg­ustu arf­takar Loga, Dagur B. Egg­erts­son og Kristrún Frosta­dóttir, hafa þakkað Loga fyrir störf hans en hvor­ugt þeirra tjáð sig um fram­haldið.

Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, til­kynnti um fyr­ir­hugað brott­hvarf sitt úr for­manns­stólnum í við­tali við Frétta­blaðið í gær. Fjöl­margir hafa brugð­ist við til­kynn­ingu Loga, einkum úr röðum sam­flokks­fólks hans sem hefur þakkað honum góð störf sem for­maður flokks­ins og margir óska þess að hann hverfi þó ekki alfarið úr stjórn­málum.

[links]Í við­tal­inu sagð­ist Logi vera að axla ábyrgð á slæ­legu gengi flokks­ins í síð­ustu þing­kosn­ingum. Hann væri sann­færður um að aðrir gætu gert betur en hann. Þá liggur ljóst fyrir að formans­skipti verða innan Sam­fylk­ing­ar­innar í haust, en þar þykja þau Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri og Kristrún Frosta­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, lík­leg­ust til að verða arf­takar Loga. Bæði hafa þau tjáð sig um til­kynn­ingu Loga með færslu á Facebook, en hvor­ugt þeirra gefur nokkuð upp um áform sín, hvort heldur af eða á, er varðar fram­haldið.

Lík­leg­ast er að stjórn­mála­menn­irnir tveir ráði nú ráðum sínum er varðar fram­haldið, en hvor­ugt þeirra hefur veitt fjöl­miðlum við­tal síðan Logi til­kynnti um að arf­taki hans yrði val­inn í haust.

[adspot]Dagur hefur verið einn far­sæl­asti stjórn­mála­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og setið í borg­ar­stjórn í Reykja­vík í 20 ár og verið borg­ar­stjóri í 8, en borg­ar­stjóra­tíð hans er senn á enda þegar Einar Þor­steins­son, odd­viti Fram­sókn­ar­flokks­ins í Reykja­vík og sam­starfs­maður Dags í nýjum meiri­hluta borg­ar­stjórnar í kjöl­far sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­anna sem fram fóru í maí, tekur við sæt­inu.

Kristrún er hins vegar nýliði í póli­tík og gekk í Sam­fylk­ing­una árið 2020 en vakti mikla athygli fyrir sterka fram­komu er hún leiddi lista flokks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður í Alþing­is­kosn­ing­unum á síð­asta ári. Ljóst er að Kristrún hefur nokkurn með­byr innan flokks­ins en ekki liggur fyrir hvort hún sé strax farin að eygja for­manns­stól­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár