Topp 10: Tölvuleikir

Hvað eru bestu tölvu­leikir sem hafa verið búnir til? Sitt sýn­ist hverju, svo mikið er víst. Kristinn Haukur Guðnason sagn­fræð­ingur tók saman sinn upp­á­halds lista.

Tölvu­leikja­iðn­að­ur­inn er sá skemmt­ana­iðn­aður sem er í hvað hröð­ustum vexti. Hvað varðar tekjur er hann kom­inn fram úr kvik­mynda-, bóka- og tón­list­ar­iðn­að­inum og í dag er aðeins sjón­varps­iðn­að­ur­inn stærri. Hluti af þeirri skýr­ingu er hversu aðgengi­legir tölvu­leikir eru orðnir.

Í upp­hafi voru þeir bundnir við spila­kassa. Svo komu leikja­tölvur tengdar við sjón­varp, borð­tölvur og hand­tölvur. Loks símar og spjald­tölvur. Leik­irnir eru eins mis­mun­andi og þeir eru margir. Allt frá dúkkúlísu hönn­un­ar­leikjum til epískra geim­stríða og allir ættu að gera fundið eitt­hvað við sitt hæfi. Hér eru 10 af allra bestu og áhrifa­mestu tölvu­leikj­unum í gegnum tíð­ina.

[adspot]

10. Civilization

Kanada­mað­ur­inn Sid Meier er þekktur fyrir upp­bygg­ingar-og her­kænsku­leiki. Þekkt­asti leikur hans er Civilization sem kom fyrst út árið 1991 fyrir PC tölvur. Í leiknum byggir maður upp sið­menn­ingu og reynir að gera hana að heims­veldi, annað hvort með hern­aði eða tækni, efna­hags-og menn­ing­ar­fram­förum. Í hverri umferð byggir maður upp borgir, vegi og her­deildir, setur fé í tækninýj­ungar, leggur á skatt, ákveður stjórn­skipun o.sv.frv. Leik­ur­inn byrjar í fornöld og það er hægt að spila á raun­veru­legu landa­korti eða til­búnu. Sið­menn­ingum er þó blandað saman í einn graut og sagn­fræði­legt gildi leiks­ins er því ekki mikið. Banda­ríkja­menn geta skipst á tækninýj­ungum við Rómverja og Gandhi getur sent á mann kjarn­orku­sprengju. Leik­irnir þykja ennþá meðal bestu her­kænsku og upp­bygg­ing­ar­leikja sem til eru. Nýjasti leik­ur­inn, Civilization VI, kom út árið 2016.

9. Grand Theft Auto

Fyrsti leik­ur­inn í Grand Theft Auto (GTA) ser­í­unni kom út árið 1997 og gæti virst frum­stæður í yngri aðdá­enda ser­í­unnar. Hann var tví­víður með sjón­ar­horni séð ofan frá og svo hraður að erfitt var að keyra ekki á. Þriðji leik­ur­inn frá 2001, og sá fyrsti á Playstation 2 leikja­tölv­unni, var hins vegar sá sem gerði ser­í­una svo vin­sæla. Ástæðan fyrir því var þrí­víddin sem hentar mun betur fyrir þann heim sem skap­aður er í GTA. Í leiknum stjórnar maður und­ir­heima­manni sem klæst við aðra slíka og lög­regl­una. Í leiknum getur maður valið milli verk­efna til að taka að sér (sem inni­halda yfir­leitt bíla­elt­ing­ar­leiki) en þau eru ekki helsta aðdrátt­ar­afl hans. Leik­ur­inn er í raun opinn, þ.e. leik­menn geta gert það sem þeir vilja. Þetta frelsi hefur fengið mikið lof en einnig tölu­verða gagn­rýni. Gagn­rýnin bein­ist einkum að upp­hafingu ofbeldis og það að leik­menn geti fróað ein­hverjum ann­ar­legum hvötum í leiknum. Sumir sem spila leik­inn hafa þó mest gaman að því að rúnta um með útvarpið (sem er lygi­lega gott) í gangi. GTA ser­ían hefur slegið mörg sölu­met í gegnum tíð­ina. Seinasti leik­ur­inn Grand Theft Auto V kom út árið 2013 en næsti kemur senni­lega ekki fyrr en árið 2018.

8. Full Throttle

Um miðjan tíunda ára­tug­inn voru svo­kall­aðir smellu­leikir (click-and-play) ákaf­lega vin­sælir. Í þessum leikjum reyna leik­menn að finna vís­bend­ingar og leysa ákveðna þraut. LucasArts, leikja­fyr­ir­tæki kvik­mynda­leik­stjór­ans og fram­leið­and­ans George Lucas, var leið­andi í þessum smellu­leikjum og fram­leiddi þekkta leiki á borð við Monkey Island (1990), Sam & Max Hit the Road (1993), Day of the Tentacle (1993) og Full Throttle (1995). Full Throttle var sæmi­lega vin­sæll á sínum tíma en varð fljótt költ­ari, sér­stak­lega vegna húmors­ins og tón­list­ar­innar. Þá er einnig tal yfir allan leik­inn sem gerir hann nokkuð sér­stakan. Sagan er líka mjög skemmti­leg. Árið er 2040 og Ben, sem er leið­togi vél­hjóla­gengis, er sak­aður um morð. Hann þarf að kom­ast af því hvers vegna og því minnir leik­ur­inn tölu­vert á film-noir kvik­myndir fimmta ára­tug­ar­ins. Ekkert fram­hald var gert af Full Throttle en end­ur­gerð leiks­ins er vænt­an­leg á þessu ári.

7. FIFA

FIFA International Soccer frá EA Sports kom út árið 1993 á nokkrum leikja­tölvum og olli strax straum­hvörfum. Tveimur árum seinna kom önnur útgáfan og síðan þá hefur FIFA komið út á hverju ári. Helsti keppi­nautur EA Sports á knatt­spyrnu­leikja­mark­að­inum voru Konami með ser­í­una International Superstar Soccer (ISS) sem breytt var í Pro Evolution Soccer (PES) árið 2001. Á fyrstu árum aldr­ar­innar virt­ist PES ætla að hafa yfir­hönd­ina í kapp­hlaup­inu þar sem talið var að leikja­vél þeirra væri ein­fald­lega mun betri og raun­veru­legri en leikja­vél FIFA. PES liðu hins vegar fyrir það að hafa ekki leyfi á liða-og leik­manna­nöfnum og þurftu því að nota skálduð nöfn. Fram­leið­endur FIFA hafa hins vegar alltaf gert út á stjörn­u­rnar og það er ávallt spenn­andi að sjá hvaða leik­maður lendir á kápu leiks­ins. Einnig hefur leiknum verið hælt fyrir góða tón­list. Í kringum 2007 byrj­aði FIFA ser­ían að síga aftur fram úr PES og eru nú komnir langt fram úr. Báðar ser­í­urnar hafa selst mjög vel en í heild­ina hafa selst um tvö­falt fleiri ein­tök af FIFA en ISS/PES.

6. Mortal Kombat

Bar­daga­leik­ur­inn Mortal Kombat kom fyrst út á spila­kassa árið 1992. Fram að þeim tíma höfðu Street Fighter verið lang­vin­sæl­ustu bar­daga­leik­irnir en Mortal Kombat veittu þeim verð­uga keppni. Mortal Kombat voru mun ofbeld­is­fyllri leikir og urðu alræmdir fyrir náð­ar­höggin í lok hvers bar­daga. Með hverjum leiknum sem kom út var reynt að gera þau sem yfir­gengi­leg­ust. Þetta fór illa í ýmsa ráða­menn sem reyndu að koma á harð­ari lög­gjöf gegn ofbeld­is­leikjum og aðgengi barna að þeim. En þetta gerði ekk­ert nema að auka á umtalið og vin­sæld­irnar. SEGA aug­lýstu það sér­stak­lega að þeirra leikur inni­héldi rautt blóð á meðan Super Nintendo útgáfan væri blóð­laus. Fjöldi per­sóna úr leiknum urðu frægar, s.s. Raiden, Baraka og Sub Zero sem og drekaló­góið sem allir unn­endur tölvu­leikja þekkja. Þá komu út teikni­mynda­sögur, sjón­varps­þættir og tvær kvik­myndir byggðar á leikj­unum. Leik­irnir hafa komið út allar götur síðan, sá síð­asti Mortal Kombat X árið 2015. Það er ljóst að ofbeldi borgar sig í heimi tölvu­leikj­anna.

5. Guitar Hero

Tón­list­ar­leikir urðu vin­sælir á Playstation 2 leikja­tölv­unni um miðjan sein­asta ára­tug. Árið 2004 kom söng­leik­ur­inn Singstar út og ári seinna Guitar Hero. Vin­sældir Guitar Hero voru að miklu leyti til­komnar vegna sér­stakrar fjar­stýr­ingar sem var eft­ir­lík­ing af alvöru gítar. Í stað strengja voru þó takkar og flipi til að spila lögin. Því var ekki nauð­syn­legt að kunna á gítar eða þekkja nótur til að spila leik­inn. Skollið var á eins konar ryþma-og dans­leikja­æði og fjöldi nýrra leikja komu út, þar á meðal fleiri Guitar Hero leikir. Árið 2007 skildu hönn­uðir ser­í­unnar, Harmonix, við hana og komu Rock Band á fót þar sem hægt var að spila á fleiri hljóð­færi sam­tímis. Þessar tvær ser­íur voru í harðri sam­keppni næstu fimm árin. Sumir leikj­anna voru almennir en aðrir stíl­aðir inn á ákveðin bönd t.d. Guitar Hero: Metallica (2009) og The Beatles: Rock Band (2009). Leik­irnir hafa haft mjög jákvæð áhrif á tón­list­ar­heim­inn að mörgu leyti. Til dæmis kynna þeir eldri tón­list fyrir yngri hóp og minna þekktar hljóm­sveitir hafa náð að koma sér á fram­færi.

4. Doom

Það má segja að leik­ur­inn Wolfenstein 3D (1992) hafi rutt veg­inn fyrir fyrstu-per­sónu-skot­leiki en Doom gerði þá vin­sæla. Doom kom út árið 1993, frá sama fram­leið­anda og Wolfenstein en var aug­ljós­lega mun vand­að­ari vara. Leik­ur­inn var hraður og minnti því helst á spila­kassa­leik. Umhverfið, sem er nokk­urs konar blanda af annarri plánetu og hel­víti, var einnig umtals­vert flott­ara en gráu múr­veggirnir í Wolfenstein. Leik­ur­inn seld­ist í massa­vís og hrinti af stað bylgju fyrstu-per­sónu-skot­leikja sem um tíma voru ein­fald­lega kall­aðir „Doom-leikir“. Því má segja að Doom hafi breytt tölvu­leikja­heim­inum var­an­lega. En leik­ur­inn var einnig gagn­rýndur fyrir gengd­ar­laust ofbeldi og satan­isma. Sagt var að leikir á borð við Doom væru hvati fyrir ung­menni til að fremja voða­verk á borð við Columbine fjöldamorðið. Vin­sæld­irnar og áhrifin leyna sér þó ekki. Doom varð fyr­ir­myndin að skáld­sögum, teikni­mynda­sögum, borð­spili og kvik­mynd. Þá hafa þrír fram­halds­leikir verið fram­leiddir, sá nýjasti hét ein­fald­lega Doom frá árinu 2016.

3. Wii Sports

Árið 2006 var hrist upp í leikja­heim­inum með til­komu Nintendo Wii vél­ar­innar. Í stað þess að keppa við tækni­lega yfir­burði Sony (Playstation) og Microsoft (XboX), þá hönn­uðu Nintendo fjar­stýr­ingu með hreyfiskynjara sem opn­aði leikja­heim­inn fyrir alger­lega nýjum hópi, þ.e. fólki sem spilar ekki tölvu­leiki. Með tölv­unni fylgdi Wii Sports, íþrótta­leikur sem sýndi hvað best notkun fjar­stýr­ing­ar­innar. Í leiknum er hægt að spila 5 teg­undir íþrótta, þ.e. keilu, tennis, golf, hnefa­leika og hafna­bolta. Allt íþróttir sem leik­mað­ur­inn þarf að sveifla fjar­stýr­ing­unni á ein­hvern hátt. Leik­ur­inn er ein­faldur og ákaf­lega aðgengi­legur sem skýrir vin­sældir hans. Wii Sports seld­ist í 83 millj­ónum ein­taka sem gerir hann að þriðja sölu­hæsta leik allra tíma og margir keyptu tölv­una sjálfa ein­ungis vegna hans. Leiknum hefur verið hrósað fyrir að efla hreyf­ingu hjá ung­mennum og hann hefur verið not­aður í sjúkra­þjálfun og end­ur­hæf­ingu. En hann hefur einnig valdið slysum og eymslum leik­manna, t.d. í liða­mótum. Árið 2009 kom út Wii Sports Resort með mun fleiri íþrótta­greinum, svo sem skylm­ingum, bog­fimi og róðri.

2. Super Mario Bros

Ítalski píuplagn­ing­ar­mað­ur­inn Mario og bróðir hans Luigi höfðu áður birst á skjánum í vin­sælum spila­kassa­leikjum frá Nintendo á borð við Donkey Kong (1981) og Mario Bros (1983). Super Mario Bros frá 1985 og NES komu þó eins og sprengja inn á leikja­mark­að­inn og sumir segja að það hafi bjargað tölvu­leikj­unum á mjög erf­iðum tímum. Super Mario Bros er lit­ríkur palla­leikur (plat­former) þar sem bræð­urnir hoppa á sveppi, skjald­bökur og fleira til að bjarga prinsessu. Tón­listin vakti líka mikla athygli og er tví­mæla­laust sú þekktasta úr nokkrum tölvu­leik. Super Mario leik­irnir hafa verið flagg­skip Nintendo á öllum þeirra tölvum síðan og Mario orð­inn að heims­þekktu vöru­merki. Meðal þekkt­ustu leikj­anna má nefna Super Mario Bros 3 (1988), fyrsta þrí­vídd­ar­leik­inn Super Mario 64 (1996) og Super Mario Maker (2015) sem margir segja að sé það eina góða við hina mis­heppn­uðu WiiU tölvu. Á þessu ári mun koma út Super Mario Odyssey fyrir vænt­an­lega Nintendo Switch tölvu.

1. Championship Manager

Árið 1992 gáfu bræð­urnir Paul og Oliver Collyer út fyrsta Championship Manager leik­inn á Amiga og Atari tölvum. Leik­ur­inn var knatt­spyrnu­hermir þar sem leik­mað­ur­inn hafði enga stjórn á leiknum sjálfum aðra en þá að kaupa og velja leik­menn og stilla upp leikk­erfum. Hann er því að miklu leyti handa­hófs­kenndur. Nýjar og stærri útgáfur komu út fyrir hvert tíma­bil eftir það þar sem ýmsum fídusum og deildum var bætt við. Vin­sæld­irnar náðu hámarki í kringum alda­mótin 2000 og not­endur voru farnir að tala um sig sem fíkla sem lok­uðu sig af dög­unum saman. Árið 2003 var ný leikja­vél tekin í notkun sem var mein­gölluð og olli miklu fjaðrafoki innan aðdá­enda­hóps­ins. Það sama ár skildu Collyer bræður við ser­í­una og komu á fót annarri, Football Manager. Championship Manager dal­aði hægt og bít­andi uns ser­ían lagð­ist af árið 2010 en Football Manager lifir ennþá góðu lífi. Þó er til sam­fé­lag á net­inu sem heldur við og upp­færir Manager vél­ina frá 2002 sem þeir telja enn vera þá allra bestu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár