Tíu staðreyndir um íslenska leigumarkaðinn

Íbúða­lána­sjóður birti í byrjun mán­aðar ítar­lega skýrslu um könnun sem Zenter vann fyrir stofn­un­ina um íslenska leigu­mark­að­inn. Hér á eftir fylgja helstu stað­reyndir um nið­ur­stöðu hennar auk við­bótar stað­reynda sem Kjarninn hefur safnað saman.

Þeim hefur fækkað mjög á undanförnum árum leigjendunum sem telja sig eiga möguleika á því að fara út af leigjendamarkaði og kaupa sér eigið húsnæði.
Þeim hefur fækkað mjög á und­an­förnum árum leigj­end­unum sem telja sig eiga mögu­leika á því að fara út af leigj­enda­mark­aði og kaupa sér eigið hús­næði. Mynd: Birgir Þór Harðarson

1. Leigjendum fjölgar

Leigj­endur á Íslandi eru nú um 50 þús­und tals­ins og hefur fjölgað um tíu þús­und á sjö árum. Líklegt er að þeim muni enn fjölga á næstu árum. Á árinu 2017 fjölg­aði lands­mönnum til að mynda um tíu þús­und en 1.768 nýjar íbúðir bætt­ust við á land­inu öllu. Því er eft­ir­spurn eftir hús­næði mun meiri en fram­boðið.

2. Óhagstætt að leigja

92 pró­sent þeirra sem tóku þátt í könnun Íbúða­lána­sjóðs telja að það sé óhag­stætt að vera á leigu­mark­aði. Það er nán­ast sama hlut­fall leigj­enda sem var á þeirri skoðun vorið 2017. Samt töldu 80 pró­sent aðspurðra að þeir yrðu þar áfram á leigu­mark­aði eftir sex mán­uði.

3. Minna húsnæðisöryggi

Leigj­endur búa við minna öryggi en hús­næð­is­eig­endur. Alls segj­ast 94 pró­sent þeirra sem eiga hús­næði að þeir búi við hús­næð­is­ör­yggi. Á meðal leigj­enda er það hlut­fall 57 pró­sent, eða mun lægra. Þeim fer þó fjölg­andi leigj­end­unum sem telja sig búa við öryggi. Í apríl 2017 töldu 45 pró­sent þeirra sig búa við slíkt.

4. Tekjulágir á leigumarkaði

Tekju­lægri hópar eru mun lík­legri til að vera á leigu­mark­aði en tekju­hærri hópar. Þannig eru 26 pró­sent þeirra sem eru með mán­að­ar­tekjur sem eru milli 200-399 þús­und krónur á leigu­mark­aði, en ein­ungis 11 pró­sent þeirra sem eru með mán­aða­tekjur á bil­inu 600-799 þús­und. Meiri­hluti þeirra sem eru á leigu­mark­aði telja sig annað hvort ná saman endum með naum­indum, nota sparifé til að fram­fleyta sér eða safna skuldum vegna fram­færslu.

5. Leiguverð hækkað umfram laun

Hinn mikli skortur sem verið hefur á íbúð­ar­hús­næði á Íslandi á und­an­förnum árum hefur leitt af sér miklar hækk­anir á fast­eigna­verði. Frá árinu 2011 hefur það hækkað um 92 pró­sent. Leigu­verð hefur hækkað aðeins minna, eða um 82 pró­sent. Á sama tíma hafa laun hækkað um 66 pró­sent. Það þýðir að fyrir leigj­endur sem hafa fengið með­al­tals­hækkun launa hefur það hlut­fall launa þeirra sem fer í hús­næð­is­kostnað hækkað veru­lega á umræddu tíma­bili. Mest hefur skilið á milli á allra síð­ustu miss­erum, eða frá miðju ári 2016.

6. Lítið framboð

Árið 2011 töldu 18 pró­sent leigj­enda að fram­boð af íbúð­ar­hús­næði til leigu væri mikið en 55 pró­sent töldu það lítið. Í ár telja ein­ungis sjö pró­sent að mikið fram­boð sé á leigu­í­búðum en 80 pró­sent telja fram­boðið vera lítið. Í milli­tíð­inni hefur leigj­endum fjölgað um tíu þús­und.

7. Verri staða en á Norðurlöndunum

Staða leigj­enda virð­ist að mörgu leyti vera verri hér­lendis en á hinum Norð­ur­lönd­unum. Í lok árs 2016 var leiga til að mynda 50 pró­sent ráð­stöf­un­ar­tekna hjá lág­tekju­hópum á Íslandi. Hvergi á hinum Norð­ur­lönd­unum greiða lág­tekju­hópar jafn hátt hlut­fall af þeim pen­ingum sem standa eftir þegar skattar og gjöld hafa verið greiddir. Noregur er þó ekki langt undan. Þessi breyt­ing er til­tölu­lega nýleg. Á árunum 2008 og 2009 greiddu íslenskir leigj­endur með lágar tekjur 39 pró­sent af ráð­stöf­un­ar­tekjum sínum í leigu sem þá var lægsta hlut­fallið á Norð­ur­lönd­unum. Samhliða fram­boðs­vanda og inn­komu hagn­að­ar­drif­inna leigu­fé­laga á mark­að­inn hefur þetta hlut­fall hækkað.

8. Helmingi færri félagslegar íbúðir

Félags­legum íbúðum hefur fækkað um helm­ing frá árinu 1998, þegar félags­lega hús­næð­is­kerfið var lagt niður. Þá voru félags­legar íbúðir á land­inu alls 11.044 tals­ins. Í lok árs 2016 voru félags­legar íbúðir á Íslandi rúm­lega helm­ingi færri en þær voru þegar kerfið var afnu­mið, eða 5.065 tals­ins. Til við­bótar reka Félags­bú­stað­ir, Búseti, Félags­stofnun stúd­enta, Bygg­inga­fé­lag Náms­manna og Öryrkja­banda­lag Íslands sam­tals nokkur þús­und íbúð­ir.

9. Langir biðlistar

Afleið­ingin er sú að um 1.600 manns eru á biðlista eftir félags­legu hús­næði hjá sveit­ar­fé­lögum lands­ins. Lang­flestir eru á biðlista hjá höf­uð­borg­inni Reykja­vík, sem rekur lang­um­fangs­mestu vel­ferð­ar­þjón­ust­una og á meira af félags­legu hús­næði en öll önnur sveit­ar­fé­lög lands­ins til sam­ans.

10. Heimilislausum fjölgar

Samhliða ofan­greindri þróun á hús­næð­is­mark­aði hefur óstað­settum í Reykja­vík, þeim sem eru ekki með skráð lög­heim­ili eða býr á göt­unni, fjölg­aði um 74 pró­sent á frá byrjun árs 2014 og fram að síð­ustu ára­mót­um. Þeir eru nú 661 tals­ins og hafa aldrei verið fleiri. Í fyrra fjölg­aði þeim um 23,7 pró­sent alls.

Frétta­skýr­ingin birt­ist fyrst í Mannlífi sem kom út 11. maí.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár