Fleiri vilja flugvöllinn í Vatnsmýri burt

Tæplega 59% Íslend­inga eru hlynntir því að fram­tíð­ar­stað­setn­ing Reykja­vík­ur­flug­vallar verði í Vatns­mýri, sam­kvæmt nýrri könnun frá Maskínu. Þetta er tals­vert minni stuðn­ingur við núver­andi stað­setn­ingu flug­vall­ar­ins en síð­ast þegar Maskína spurði um málið, í sept­em­ber 2013. Þá voru 72% hlynnt því að flug­völl­ur­inn væri um kyrrt.

43,9% sögð­ust vera mjög hlynnt því að flug­völl­ur­inn verði áfram í Vatns­mýri. 14,7% eru fremur hlynnt því en 19,3% segj­ast vera í með­al­lagi. 9,8% eru fremur and­víg því að halda flug­vell­inum í Vatns­mýri og 12,4% eru mjög and­víg því að flug­völl­ur­inn verði um kyrrt.

Íbúar lands­byggð­ar­innar eru hlynnt­ari flug­vell­inum í Vatns­mýri en íbúar höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og þeir sem eru eldri vilja heldur halda flug­vell­inum á sama stað en þeir sem eru yngri.

47,1% íbúa í Reykja­vík vilja halda flug­vell­inum í Vatns­mýr­inni, 36,5% vilja ekki hafa hann í Vatns­mýri og 16,3 pró­sent velja kost­inn í með­al­lagi, hafa ekki sterka skoðun á mál­inu.

Í nágranna­sveit­ar­fé­lögum Reykja­víkur er meiri­hluti fyrir því að halda vell­inum í Vatns­mýri, 56,6% eru á þeirri skoðun. 19,6% vilja flytja völl­inn og 23,8% eru þar á milli.

71,4 pró­sent svar­enda á lands­byggð­inni eru hins vegar þeirrar skoð­unar að flug­völl­ur­inn eigi að vera áfram í Vatns­mýri. 18,8% velja kost­inn í með­al­lagi en aðeins 9,7% vilja ekki að flug­völl­ur­inn verði um kyrrt.

Minni­hluti fólks til 35 ára ald­urs vill hafa flug­völl­inn áfram, en frá 35 ára og upp úr seg­ist meiri­hluti vilja hafa flug­völl­inn áfram á sama stað. Hlut­fallið hækkar veru­lega með hærri aldri, og í hópi 55 ára og eldri vilja ríf­lega 73 pró­sent halda flug­vell­inum í Vatns­mýr­inni.

Þá eru kjós­endur stjórn­ar­flokk­anna mun hlynnt­ari því að halda flug­vell­inum í Vatns­mýri en kjós­endur stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna eru. 93,1 pró­sent þeirra sem myndu kjósa Fram­sókn­ar­flokk­inn í dag segj­ast vilja halda flug­vell­inum þar sem hann er, og 77,8 pró­sent kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

45,4 pró­sent kjós­enda VG vilja flug­völl­inn áfram í Vatns­mýri, 44,1 pró­sent sam­fylk­ing­ar­fólks og 41,2 pró­sent kjós­enda Pírata. 24,4 pró­sent kjós­enda Bjartrar fram­tíðar styðja að flug­völl­ur­inn verði áfram í Vatns­mýri, en það er líka eini kjós­enda­hóp­ur­inn þar sem meiri­hluti, 51,4 pró­sent, vill að hann víki þaðan.

Svar­endur koma úr Þjóðgátt Maskínu, sem er pan­el­hópur fólks sem er dregið með til­viljun úr Þjóðskrá og svarar á net­inu. Svar­endur eru af báðum kynjum, alls staðar að af land­inu og á aldr­inum 18-75 ára. Gögnin eru vigtuð með til­liti til kyns, ald­urs og búsetu sam­kvæmt Þjóðskrá. Könnunin fór fram dag­ana 15. - 26. jan­úar 2016. Send var áminn­ing þrisvar sinnum á þá sem ekki höfðu svarað. Alls svör­uðu 847 manns og var svar­hlut­fall tæp­lega 50% af upp­haf­legu úrtaki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár