Gera ekki aðra tilraun til að fá Hönnu Birnu fyrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd

Stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd Alþingis mun ekki gera aðra til­raun til þess að fá Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur til þess að mæta fyrir nefnd­ina og gera grein fyrir sinni sýn á leka­málið, nú þegar hún er snúin aftur á Alþingi.

Þetta stað­festir Ögmundur Jónasson, þing­maður VG og for­maður nefnd­ar­innar, við Kjarnann í dag. Hann segir að nefndin vinni nú að frá­gangi skýrslu sinnar um málið til þings­ins.

Ögmundur sendi Hönnu Birnu boð um að mæta á fund nefnd­ar­innar í jan­úar síð­ast­liðnum. Það var eftir að umboðs­maður Alþingis lauk sinni athugun á sam­skiptum hennar við lög­reglu­stjór­ann á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Í bréf­inu kom fram að mörgum þing­mönnum þætti að í þing­sal hefðu komið fram full­yrð­ingar af hálfu Hönnu Birnu sem væru „mót­sagna­kenndar eða hefðu hrein­lega ekki fengið stað­ist.“ Þá var óskað eftir því að hún kæmi á fund nefnd­ar­innar til að gera grein fyrir sinni sýn á málin og til þess að svara spurn­ingum nefnd­ar­manna um það.

Hanna Birna svar­aði ekki bréf­inu svo að Ögmundur sendi ítrekun um málið þann 12. mars. Hanna Birna svar­aði því bréfi og afþakk­aði boð nefnd­ar­innar. Hún sagð­ist þá vísa til þeirra upp­lýs­inga og gagna sem þegar lægju fyrir um málið. „Þar sem ég gegni ekki lengur emb­ætti inn­an­rík­is­ráð­herra, hef áður svarað umboðs­manni Alþingis í fjórum form­legum bréfum og er sem stendur í leyfi frá þing­störfum, þá vísa ég til ofan­greinds og óska nefnd­inni vel­farn­aðar í sínum störfum en óska jafn­framt ekki eftir að koma frek­ari upp­lýs­ingum að vegna máls­ins,“ sagði hún í bréf­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lekamálið

FréttirLekamálið

Umboðs­maður Alþingis: Borgarar verða að geta treyst því að stjórn­mála­menn skipti sér ekki af lög­reglu­rann­sóknum

„Ég tel nauð­syn­legt sem umboðs­maður Alþingis að vera á varð­bergi um að slík þróun verði ekki í íslenskri stjórn­sýslu,“ segir umboðs­maður í umfjöllun sinni um hátt­semi Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur í árs­skýrslu fyrir 2015. Afskipti ráð­herra af störfum lög­regl­unnar drógu dilk á eftir sér.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár