Héraðsdómur segir ekkert hafa gefið til kynna hópnauðgun

Hér­aðs­dómur Reykja­víkur sýkn­aði í morgun fimm unga menn af ákæru um hópnauðgun, en þeim hafði verið gefið að sök að hafa nauðgað sextán ára gam­alli stúlku í sam­kvæmi vorið 2014. Einn mann­anna var hins vegar dæmdur fyrir að hafa tekið upp mynd­band af athæf­inu, og fyrir það var hann dæmdur í mán­að­ar­fang­elsi, skil­orðs­bundið, og til að greiða kon­unni 500 þús­und krónur í miska­bætur.

Dómurinn komst að þeirri niðu­stöðu að ekk­ert hafi komið fram í mál­inu sem gefi til kynna að stúlkan hafi ekki verið sam­þykk því sem fram fór.

Stúlkan kærði menn­ina í maí síð­ast­liðnum, en hún lagði sjálf fram mynd­bands­upp­töku þegar hún lagði fram kæruna. Menn­irnir voru allir úrskurð­aðir í gæslu­varð­hald í kjöl­farið, og sættu ein­angrun á meðan á því stóð. Menn­irnir, sem þá voru 17 til 19 ára gamlir, geng­ust allir við því að hafa haft sam­farir við stúlk­una en sögð­ust telja að hún væri því sam­þykk.

Mynd­bands­upp­takan, sem einn mann­anna var dæmdur fyrir að hafa gert, var í fyrra talin styðja fram­burð stúlkunnar í mál­inu. Lög­reglan taldi þetta og not­aði sem rök­semd fyrir því að hneppa ætti menn­ina í gæslu­varð­hald, og Hér­aðs­dómur Reykja­víkur tók undir að upp­takan styddi fram­burð stúlkunnar. Þá var tekið fram í úrskurð­inum að rann­sóknin væri skammt á veg komin og eftir ætti að ræða við fjölda vitna sem gætu gefið nán­ari upp­lýs­ingar um mik­il­væg atriði. Tugir ein­stak­linga voru yfir­heyrðir vegna máls­ins. Við rann­sókn máls­ins kom fram í fjöl­miðlum að mönn­unum hefði ekki borið saman um atburð­inn og atburða­rás honum tengda.

Dómurinn hefur ekki verið birtur opin­ber­lega, en Morg­un­blaðið og Vísir hafa dóm­inn undir höndum. Í frétt blaðs­ins kemur fram að sam­ræmi hafi verið milli fram­burðar allra mann­anna á meðan þeir hafi setið í gæslu­varð­haldi. Fram­burður stúlkunnar hafi verið breyti­legur um sum atriði og komið hafi fram í máli hennar að hún myndi sumt illa. Hún hafi sagt að hún hafi gefið mönn­unum til kynna að hún vildi ekki vera með þeim en ekki sagt það berum orðum, en síðar hafi hún sagt að hún gæti hafa sagt það berum orðum en myndi það ekki.

Þá segir í dómnum að stúlkan „virð­ist“ fyrst hafa talað um nauðgun eftir að mynd­bands­upp­tök­una bar á góma. Þar segir einnig að þrjú vitni hafi sagt að stúlkan hefði sagt að ef mynd­bandið sem tekið var upp færi í dreif­ingu myndi hún segja að um nauðgun hafi verið að ræða. Einnig segir í dómnum að gögn um skoðun neyð­ar­mót­töku styðji ekki fram­burð stúlkunnar, og því sé ósannað að menn­irnir hafi gerst sekir um nauðgun.

Sveinn Andri Sveins­son, verj­andi eins mann­anna, segir við DV að hann geri ráð fyrir því að menn­irnir muni „sækja sinn rétt“ vegna gæslu­varð­halds­ins, og að hugs­an­lega verði konan kærð fyrir rangar sak­ar­giftir.

Erlendur Þór Gunn­ars­son, verj­andi ann­ars ungu mann­anna, segir hins vegar við Kjarnann að umbjóð­andi hans hafi aldrei íhugað að kæra hana.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár