Bjarni: Eygló ekki „með í liðinu“

Fjár­mála­ráð­herra segir rík­is­stjórn­ina ekki geta verið eins og leik­skóla þar sem barið sé í borðið þangað til hver fái það sem hann vill.

Eygló Harð­ar­dóttir, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, er ekki lengur „með í lið­inu“ og getur ekki gert miklar kröfur um að fá fram­gang ann­arra mála á meðan hún styður ekki það sem aðrir ráð­herrar eru að fá. Þetta segir Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, við RÚV.

Eygló sat hjá í atkvæða­greiðslu um fjár­mála­stefnu og fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar í gær. Ákvörðun hennar hefur verið harð­lega gagn­rýnd af þing­mönnum Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sem hafa spurt að því opin­ber­lega hvers vegna hún hætti ekki í rík­is­stjórn­inni í ljósi þess að hún hafi ekki stutt þessi stóru mál sem lögð voru fram í nafni hennar.

Bjarni segir við RÚV að það sæti tíð­indum að ráð­herra styðji ekki lyk­il­mál og eðli­legt sé að menn verði hvumsa við. Eygló sé hins vegar ekki ráð­herra á hans ábyrgð. Hvorki hann né þing­flokkur Sjálf­stæð­is­flokks­ins myndu sætta sig við að ráð­herra úr þeirra liði sæti hjá í atkvæða­greiðslu af þessu tagi.

„Þetta er ekki þannig að ég velji í rík­is­stjórn fyrir Fram­sókn­ar­flokk­inn og ég ætla ekk­ert að skipta mér að því hvernig þeir raða sínum málum, þeir verða að gera það sjálfir. Það er lang­best að fylgja ein­faldri línu í þessu, rík­is­stjórnin sest yfir það eftir að ráð­herra­nefnd hefur skoðað þau mál, sem­sagt hvaða svig­rúm er til staðar og hvernig við ætlum að skipta því. Svo er fengin nið­ur­staða. Ef menn segj­ast ætla að setj­ast hjá við það þá eru þeir bara ekki með í lið­inu,“ sagði Bjarni.

Þegar hann var spurður að því hvort það væri þá hans mat að Eygló væri ekki með í lið­inu sagði hann: „Nei hún getur ekki gert miklar kröfur um að fá fram­gang ann­arra mála á meðan hún styður ekki það sem aðrir ráð­herrar eru að fá. Þetta getur ekki verið bara eins og í leik­skóla að menn berji í borðið þangað til hver fái það sem hann vill. Þá verður bara rík­is­stjórnin óstarf­hæf og allt verður í við­stöðu­lausri upp­lausn. En sem betur fer erum við þó ekki komin á þann stað.“

Eygló sagði við RÚV í morgun að hún hefði ekki íhugað að segja af sér vegna máls­ins. „Það hefur ekk­ert verið rætt og ég hef ekki íhugað það. Ég hef sinnt mínum verk­efnum af mik­illi trú­mennsku, barist fyrir bættum kjörum líf­eyr­is­þega og fjöl­skyldna og ég mun halda áfram að gera það.“ Það væri mjög ein­kenni­legt að heyra fólk segja að þing­menn eigi ekki að standa á sann­fær­ingu sinni.

Hún seg­ist ekki hafa tekið ákvörðun um að gefa kost á sér sem for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, og seg­ist ekki vera á leið úr flokknum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár