Evrópusambandið ætlar að skipta Dyflinnarreglugerðinni út fyrir nýtt regluverk

Ursula von der Leyen, for­seti fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins, til­kynnti í dag að ESB ætl­aði sér að afnema Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­ina og koma upp nýju reglu­verki í kringum umsóknir um alþjóð­lega vernd.

Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins.
Ursula von der Leyen, for­seti fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins. Mynd: EPA

Ursula von der Leyen, for­seti fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins, til­kynnti í dag að Evr­ópu­sam­bandið ætl­aði sér að „afnema Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­ina“ og setja í stað­inn upp nýtt sam­evr­ópskt stjórn­kerfi varð­andi mál­efni hæl­is­leit­enda og flótta­manna, sem myndi tryggja að ríki Evrópu tækju jafn­ari ábyrgð í mála­flokknum.

Þetta kemur fram á franska vef­miðl­inum France24, sem hefur þetta eftir frétta­veit­unni AFP.

Í frétt­inni segir að hún hafi kynnt þetta fyrir Evr­ópu­þing­mönnum í Brussel í dag. Fyrr í dag flutti von der Leyen sína fyrstu stefnu­ræðu sem for­seti fram­kvæmda­stjórn­ar­innar og þar kall­aði hún eftir auk­inni sam­stöðu ríkja Evrópu í mál­efnum flótta­fólks.

Samkvæmt frétt AFP er búist við því að útfærsla fram­kvæmda­stjórnar ESB á þessum breyt­ingum verði kynnt 23. sept­em­ber, en þrátt fyrir að vilji standi til þess­ara breyt­inga hjá ráða­mönnum sam­bands­ins þarf hvert og eitt aðild­ar­ríki ESB að sam­þykkja breyt­ing­arnar.

Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­inni var komið á innan Schengen-sam­starfs­ins árið 1990 og hefur tví­vegis verið tekin til end­ur­skoð­unar, síð­ast árið 2013. Til­gangur hennar er sá að koma í veg fyrir að fólk sæki um alþjóð­lega vernd í mörgum Evr­ópu­ríkjum á sama tíma og var ætlað að jafna byrði ríkj­anna.

Á umliðnum árum hafa ríki í Suður-Evrópu, sér­stak­lega Grikk­land og Ítalía, kvartað undan því að núver­andi fyr­ir­komu­lag leiði til þess að þau beri of mik­inn þunga af mál­efnum flótta­fólks í Evrópu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hælisleitendur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár