Segir „stærstu hagstjórnarmistök síðasta árs“ hafa leitt af sér fasteignabólu

Mistök voru að beita bönk­unum í efna­hags­legum björg­un­ar­að­gerðum segir Kristrún Frosta­dóttir. Til­hneig­ing bank­anna til að festa fé í steypu hafi leitt af sér fast­eigna­bólu í stað verð­mæta­sköp­unar. Spenna á fast­eigna­mark­aði er meiri en spár gerðu ráð fyrir.

Ráðast hefði þurft í beina innspýtingu fjármagns með markvissum hætti frá ríkinu til þeirra sem lentu í tekjustoppi að mati Kristrúnar.
Ráðast hefði þurft í beina inn­spýt­ingu fjár­magns með mark­vissum hætti frá rík­inu til þeirra sem lentu í tekju­stoppi að mati Kristrúnar. Mynd: Skjáskot úr útsendingu RÚV.

Það að beita banka­kerf­inu í efna­hags­legum björg­un­ar­að­gerðum vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins voru stærstu hag­stjórn­ar­mis­tök síð­asta árs að mati Kristrúnar Frosta­dóttur, hag­fræð­ings og odd­vita Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður. Ástandið á fast­eigna­mark­aði svipi nú til áranna 2016-17 þegar mikil spenna var í hag­kerf­inu sem var fyr­ir­sjá­an­legt að mati Kristrúnar, miðað við þær aðgerðir sem rík­is­stjórnin í sam­vinnu við Seðla­bank­ann réðst í á síð­asta ári.

„Hug­mynda­fræði­leg tregða gerði það að verkum að eng­inn vilji var til staðar til að ráð­ast strax í beina inn­spýt­ingu fjár­magns, með mark­vissum hætti, frá rík­inu til þeirra sem lentu í tekju­stoppi vegna stór­kost­legs mark­aðs­brests – vegna nátt­úru­ham­fara og opin­berra aðgerða fyrir almanna­hag,“ skrifar Kristrún í færslu sinni á Facebook. [adspot]

Hún segir að sú leið sem hafi verið farin hafi ekki verið almenn­ingi í hag og leitt til verri nið­ur­stöðu fyrir alla. „Með því að úthýsa ákvörðun sem er mjög póli­tísk í eðli sínu, hverjum á að bjarga og hverjum ekki, til bank­anna varð nið­ur­staðan ekki almenn­ingi í hag. Bank­arnir reyna að minnka áhættu­töku sína, ekki hag­kerf­is­ins, og vilja helst festa fjár­magn í öruggri steypu.“

Eðlilegt sé að skuldir auk­ist í svona ástandi, skrifar Kristrún, „spurn­ingin er bara hvar sú aukn­ing á sér stað. Það er í góðu lagi að auka skuldir ef fjár­magn­inu er varið í hluti sem ýta undir sköpun starfa, halda fyr­ir­tækjum og fólki á floti, skapa tæki­færi.“ Sú áhersla bank­anna að festa fjár­magn í öruggri steypu hafi ekki skapað verð­mæti heldur leitt til gíf­ur­legra verð­hækk­ana á fast­eigna­mark­aði.

„Þetta er skamm­tíma­fix. Það er engin verð­mæta­sköpun sem felst í því að borga 10 millj­ónum meira fyrir íbúð en þú hefðir þurft í fyrra. Þetta er eigna­bóla, á mark­aði fyrir grunn­þarfir fólks. Venju­legt fólk græðir ekki á svona ástandi. Þetta hækkar bara verð á næstu eign sem þarf að kaupa, hækkar fast­eigna­skatta, hækkar verð­bólgu og skilur stærri hóp eftir án öruggs hús­næðis að lokum,“ skrifar Kristrún.

Verðhækkanir umfram spár

Tólf mán­aða verð­hækkun sér­býlis mælist nú 17 pró­sent og lækkar örlítið milli mán­aða. Tólf mán­aða hækkun fjöl­býlis er um þessar mundir 15,3 pró­sent og hefur ekki verið meiri síðan í októ­ber árið 2017. Þetta kemur fram í nýbirtum tölum Þjóð­skrár Íslands sem fjallað er um í Hagsjá Lands­bank­ans. „Hækkanir á íbúða­verði eru nú orðnar áþekkar því sem sást á árunum 2016 og 2017 og hefur spenna auk­ist nokkuð umfram það sem spár gerðu ráð fyrir,“ segir í Hag­sjánni.

Þar kemur fram að ólík­legt þyki að spá um 10,5 pró­senta árs­hækkun íbúða­verðs muni halda. Spáin gerði ráð fyrir að Seðla­bank­inn myndi beita þjóð­hags­var­úð­ar­tækjum sínum til að slá á spenn­una, líkt og hann gerði í júní þegar veð­setn­ing­ar­hlut­fall fast­eigna­lána var fært niður í 80 pró­sent, úr 85 pró­sentum. Samkvæmt Hag­fræði­deild Lands­bank­ans þarf meira til. „Við teljum ólík­legt að sú aðgerð ein og sér dugi til þess að slá á þá miklu eft­ir­spurn sem nú virð­ist ríkja.“

Ástandið „farið að valda Seðlabankanum áhyggjum“

Met­fjöldi íbúða selst nú yfir ásettu verði eða um 43 pró­sent íbúða í sér­býli. Hlut­fallið hefur ekki verið jafn hátt frá því að mæl­ingar hófust í upp­hafi árs 2013. Hlutfall íbúða í fjöl­býli sem selst yfir ásettu verði er 37 pró­sent. Þar að auki selj­ast um helm­ingi fleiri íbúðir í hverjum mán­uði það sem af er árs miðað við sama tíma í fyrra.

Að mati Hag­fræði­deildar er þessi mikla eft­ir­spurn afleið­ing lágra vaxta og minni einka­neyslu vegna far­ald­urs­ins. Hag­fræði­deildin hefur því gert ráð fyrir því að þessi mikla eft­ir­spurn á hús­næð­is­mark­aði sé tíma­bundin og að þegar far­aldr­inum muni linna breyt­ist neyslu­venjur fólks og þar með muni hægj­ast á eft­ir­spurn eftir stærri og dýr­ari fast­eignum.

Hag­fræði­deildin segir það ekki ólík­legt að gripið verði til frek­ari aðgerða. „Það virð­ist hins vegar alls óvíst hvenær lífið kemst end­an­lega í samt horf og því erfitt að segja með nákvæmni til um það hvenær neyslu­venjur og eft­ir­spurn eftir hús­næði breyt­ast. Það er í það minnsta ljóst að ástandið er farið að valda Seðla­bank­anum áhyggjum og ekki ólík­legt að gripið verði til frek­ari aðgerða til þess að hægja á eft­ir­spurn­ar­aukn­ing­unni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár