Fjölskyldan sameinast í matarást

Mat­gæð­ing­ur­inn og lista­konan Hanna Þóra var alin upp á miklu mat­ar­heim­ili. Mat­ar­á­hug­inn hefur nú smitað út frá sér til dætra Hönnu sem bakar meðal ann­ars góm­sæt sur­deigs­brauð.

Í vinnustofunni
Í vinnu­stof­unni Hanna Þóra heldur úti upp­skrifta­síðu. Uppi­staða upp­skrift­anna þar kemur frá mömmu hennar. Mynd: Heiða Helgadóttir

Mat­gæð­ing­ur­inn og lista­konan Hanna Þóra Th. Guð­jóns­dóttir tekur vel á móti blaða­manni á vinnu­stofu sinni í Hafn­ar­firði með ilm­andi nýbök­uðu brauði og þeyttu smjöri. Hanna er alin upp á miklu mat­ar­heim­ili og setti upp­haf­lega upp síð­una hanna.is, í sam­starfi við systur sína, til að deila upp­skriftum móður þeirra. Síðan þá hefur vef­síðan vaxið og dafnað og birtir Hanna þar reglu­lega upp­skriftir að nýj­ustu til­raunum sínum í eld­hús­inu. Auk þess hafa fjöl­skyldu­með­limir lagt hönd á plóg og segir Hanna skemmti­legt hvernig vef­síðan hafi sam­einað krafta fjöl­skyld­unnar. Mat­ar­gerðin sé í raun þeirra sam­eig­in­lega áhuga­mál og á hverjum sunnu­degi bjóði hún fjöl­skyld­unni í mat og noti þau þá gjarnan sem til­rauna­dýr til að prófa ýmsa rétti.

„Ég hef alltaf haft gaman af því að búa til mat og er alin upp á miklu mat­ar­heim­ili en mamma hefur alltaf búið til mjög góðan mat og var svo­lítið á undan sinni sam­tíð. Við bjuggum …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár