Reglur gilda líka í stríði

Stjórn­mála­sam­band Banda­ríkj­anna og Rúss­lands hangir á blá­þræði eftir að Joe Biden kall­aði Vladimír Pútín stríðs­glæpa­mann. En þó reglur gildi líka í stríði er það hæg­ara sagt en gert að sak­fella þjóð­ar­leið­toga fyrir stríðs­glæpi.

Joe Biden Bandaríkjaforseti fullyrti á blaðamannafundi í Hvíta húsinu í gær að Vladimír Pútín Rússlandsforseti væri stríðsglæpamaður.
Joe Biden Banda­ríkja­for­seti full­yrti á blaða­manna­fundi í Hvíta hús­inu í gær að Vladimír Pútín Rúss­lands­for­seti væri stríðs­glæpa­maður. Mynd: EPA

„Herra for­seti, eftir allt sem við höfum séð, ertu reiðu­bú­inn að full­yrða að Pútín sé stríðs­glæpa­maður?“ Að þessu spurði blaða­maður þegar Joe Biden var að yfir­gefa blaða­manna­fund í Hvíta hús­inu í gær. Svarið hans, í fyrstu, var stutt: „Nei.“

Hann sneri hins vegar við örskömmu síðar og virt­ist ekki hafa náð spurn­ingu blaða­manns­ins eða sam­hengi hennar. Blaða­mað­ur­inn end­ur­tók spurn­ing­una og Biden svar­aði afdrátt­ar­laust: „Að mínu mati er hann stríðs­glæpa­maður.“

Banda­ríkja­for­seti bæt­ist þannig í hóp þeirra þjóð­ar­leið­toga sem hafa sakað Vladimír Pútín Rúss­lands­for­seta um stríðs­glæpi, en það hafa Volodomír Zelenskí, for­seti Úkraínu, og Boris Johnson, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, þegar gert.

Orð „beint frá hjartanu“ frekar en formleg yfirlýsing

Þetta er í fyrsta sinn sem Banda­ríkja­for­seti kemst svo að orði og for­dæmir Pútín. Jen Psaki, upp­lýs­inga­full­trúi Hvíta húss­ins, segir orð Biden hafa „komið beint frá hjart­anu“, frekar en um form­lega yfir­lýs­ingu hafi verið að ræða.

Viðbrögð rúss­neskra stjórn­valda létu ekki á sér standa. „Við teljum full­yrð­ingu eins og þessa frá þjóð­ar­leið­toga óvið­un­andi og ófyr­ir­gef­an­lega. Sprengjur hans hafa orðið mörg hund­ruð þús­und manns að bana um heim allan,“ segir Dmitry Peskov, tals­maður rúss­neskra stjórn­valda í sam­tali við rík­is­reknu frétta­stof­una Tass.

En hvað er stríðs­glæpur í raun og veru? Zelenskí hefur ítrekað sakað Pútín um stríðs­glæpi, meðal ann­ars fyrir loft­árás rúss­neska hers­ins á spít­ala í Mariupol þar sem þrír létu lífið og 17 starfs­menn og sjúk­lingar særð­ust. Rúss­neskar her­sveitir hafa einnig verið sak­aðar um að beina árásum að óbreyttum borg­urum á flótta og þá eru dæmi um að klasa­sprengjum, sem inni­halda margar smá­sprengjur sem dreifast yfir stórt svæði þegar aðal­sprengjan springur, í nágrenni borg­ar­innar Kharkív. Aðgerðir á borð við þessar kunna að brjóta gegn alþjóða­lögum.

Það kann að hljóma ein­kenni­lega en, líkt og Alþjóða­ráð Rauða kross­ins (ICRC) hefur ítrekað bent á, gilda reglur í stríði. Regl­urnar byggja meðal ann­ars á Genfar-sátt­mál­anum, sem sam­þykktur var eftir seinni heim­styrj­öld og með frek­ari við­bótum árið 1977. Markmið sátt­mál­ans er að vernda þau sem ekki taka beinan þátt í stríði eða átökum fyrir afleið­ingum þeirra. Gen­far­sátt­mál­inn eru alþjóð­leg mann­úð­ar­lög og gilda ein­ungis á ófrið­ar­tímum, ólíkt mann­réttinda­reglum sem gilda einnig á frið­ar­tímum.

Innrásin ein og sér flokkist sem stríðsglæpur

Loftárás á spít­ala, beinar árásir á óbreytta borg­ara og notkun klasa­sprengja geta flokk­ast sem stríðs­glæpir en sér­fræð­ingar hafa einnig bent á að inn­rás Rússa í Úkraínu, ein og sér, sé stríðs­glæpur þar sem hún flokk­ist sem árás­ar­gjarn hern­aður.

Það er í höndum hvers ríkis fyrir sig að rann­saka ásak­anir um stríðs­glæpi. Önnur ríki stunda það í rík­ara mæli en önnur og hafa lög­gæslu­yf­ir­völd í Bret­landi boð­ist til að safna saman sönn­un­ar­gögnum um hugs­an­lega stríðs­glæpi í Úkraínu.

Alþjóða­dóm­stóll­inn (ICJ) og alþjóð­legi stríðs­glæpa­dóm­stóll­inn (ICC) gegna því hlut­verki að við­halda reglum sem gilda í stríði. Alþjóða­dóm­stóll­inn sker úr deilu­málum milli ríkja en getur ekki sak­fellt ein­stak­linga. Úkraína hefur þegar höfðað mál á hendur Rúss­landi vegna stríðs­glæpa.

Ef Alþjóða­dóm­stóll­inn mun sak­fella Rússland verður það í höndum örygg­is­ráðs Sam­ein­uðu þjóð­anna að fram­fylgja dómnum. Þar flækj­ast hins vegar málin þar sem Rússland er meðal þeirra fimm ríkja sem hafa neit­un­ar­vald í ráð­inu.

Alþjóð­legi stríðs­glæpa­dóm­stóll­inn getur rann­sakað og ákært ein­stak­linga fyrir stríðs­glæpi. Dóm­stólnum var komið á fót eftir Nürnberg-rétt­ar­höldin þar sem 24 leið­togar nas­ista í seinni heim­styrj­öld­inni voru sak­felldir fyrir stríðs­glæpi. Með Nürnberg-rétt­ar­höld­unum var komið á því for­dæmi að ríki geti látið reyna á alþjóða­lög fyrir sér­stökum dóm­stól.

Heimsleiðtogar komi á fót sérstökum dómstóli vegna stríðsins í Úkraínu

Aðal­sak­sókn­ari alþjóða­lega stríðs­glæpa­dóm­stólsin, breski lög­fræð­ing­ur­inn Karim Khan, segir að margt bendi til þess að stríðs­glæpir hafi verið framdir í Úkraínu. Rann­sóknin sem nú stendur yfir nær allt aftur til 2013, áður en Rússar inn­lim­uðu Krím­skaga. Ef nægar sann­anir eru fyrir hendur getur dóm­stóll­inn gefið út hand­töku­skipun og boðað sak­born­inga til rétt­ar­halda í Haag.

Völd dóm­stóls­ins eru þó tak­mörk­unum háð þar sem hann þarf að treysta á ríki til að fram­kvæma hand­tökur. Líkt og Banda­ríkin er Rússland ekki aðild­ar­ríki að alþjóð­lega stríðs­glæpa­dóm­stólnum, sem, enn og aftur, flækir málin.

Leið­togar heims­ins geta því sakað Rúss­lands­for­seta um stríðs­glæpi að vild en það mun reyn­ast þraut­inni þyngri að fá hann sak­felldan. Philippe Sands, pró­fessor og sér­fræð­ingur í alþjóða­lögum við Uni­versity College í London, er meðal þeirra sér­fræð­inga sem hafa kallað eftir því að þjóð­ar­leið­togar heims sam­mælist um að koma á fót sér­stökum dóm­stól sem leiði til sak­fell­inga um stríðs­glæpi sem framdir hafa verið í Úkraínu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár