Andstæðingur samkynja hjónabanda vill verða leiðtogi allra Ítala

Hún stofn­aði stjórn­mála­flokk sem á rætur að rekja til flokks sem stofn­aður var úr rústum fas­ista­flokks Mus­sol­ini. En hún segir ítalskan fas­isma heyra sög­unni til. Giorgia Meloni verður fyrsti kven­kyns for­sæt­is­ráð­herra Ítalíu.

Giorgia Meloni verður fyrsta konan sem gegnir embætti forsætisráðherra Ítalíu.
Giorgia Meloni verður fyrsta konan sem gegnir emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra Ítalíu. Mynd: EPA

„Ég er Giorgia, ég er kona, ég er móðir, ég er ítölsk, ég er kristin,“ sagði Giorgia Meloni, leið­togi Bræðra­lags Ítalíu, á kosn­inga­fundi í Róm árið 2019.

Meloni er í lyk­il­stöðu eftir þing­kosn­ingar á Ítalíu um síð­ustu helgi. Meloni verður fyrsta konan sem gegnir emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra Ítalíu. Þetta er augna­blik sem Meloni hefur beðið frá því að hún var póli­tískur aðgerðasinni á tán­ings­aldri í verka­manna­hverfi í Róm.

En hver er Giorgia Meloni, fyrir utan að vera ítölsk, kristin, móðir?

Meloni er mælsk og bein­skeytt í tali, með sterkan Róm­ar­hreim og kald­hæð­inn húmor. Hún fædd­ist 15. jan­úar 1977 í Róm. Faðir hennar, Francesco, var frá Sardiníu og móðir hennar, Anna, frá Sikiley. Meloni á eldri systur, Ariönnu, og voru þær ungar að árum þegar faðir þeirra fór frá fjöl­skyld­unni og flutti til Kanarí­eyja með ást­konu sinni. Syst­urnar ólust því að mestu leyti upp hjá ein­stæðri móður og flutt­ust þær til úthverf­is­ins Gar­batella í Róm þar sem móð­ur­afi hennar og amma voru búsett.

[adspot]Faðir hennar var vinstri­s­inn­aður en móðir hennar aðhyllt­ist hægriás stjórn­mál­anna, sem hefur ýtt undir get­gátur þess efnis að hvati að póli­tísku veg­ferð Meloni hafi að hluta til falist í því að ná fram hefndum á föður hennar sem yfir­gaf fjöl­skyld­una.

15 ára gömul gekk Meloni til liðs við ung­liða­hreyf­ingu Ítölsku sam­fé­lags­hreyf­ing­unnar (Movi­mento Sociale Italiano - MSI), ný-fasísks stjórn­mála­flokks, sem stofn­aður var úr rústum fas­ista­flokks Benito Mus­sol­ini af gömlum stuðn­ings­mönnum hans árið 1946, eftir að Fas­ista­flokk­ur­inn hafði verið bann­aður.

19 ára gömul varð hún for­maður stúd­enta­hreyf­ingar Þjóð­ar­banda­lags­ins, sem átti rætur sínar að rekja til MSI. Þar kynnt­ist hún Marco Marsilio, sem í dag er for­seti Abruzzo-hér­aðs, og varð hann fljótt hennar banda­maður í stjórn­málum.

„Hún var eft­ir­tekt­ar­verð. Á hverjum ein­asta fundi stöðv­aði hún hvern þann sem dirfð­ist að taka af henni hljóð­nem­ann,“ segir Marsilio.

17 ára Meloni sagði Mussolini „góðan stjórnmálamann“

Það var á þessum árum, eða þegar Meloni var 17 ára, sem hún lét þau orð falla að Mus­sol­ini hefði verið „góður stjórn­mála­maður“. „Allt sem hann gerði, gerði hann fyrir Ítalíu,“ sagði Meloni í sjón­varps­við­tali. Í dag segir hún að að um glópsku frá hennar yngri árum sé að ræða.

Meloni vann fyrir sér sem þjónn, bar­þjónn á næt­ur­klúbbi og barn­fóstra á náms­ár­unum. Menntun hennar hefur reyndar verið til umræðu fyrir þær sakir að ekki liggur ljóst fyrir hvers konar menntun hún hefur í raun og veru lokið. Sjálf seg­ist hún hafa útskrif­ast með hæstu ein­kunn af mála­braut Amerigo Vespucci-mennta­skól­ans í Róm en við eft­ir­grennslan fjöl­miðla kom í ljós að við þann skóla er engin mála­braut, heldur er um tækni­skóla að ræða, með sér­hæf­ingu í ferða­manna­iðn­aði.

Árið 1998 var hún kjörin í borg­ar­ráð Rómar. Þar með var stjórn­mála­fer­ill­inn form­lega haf­inn og átta árum síðar tók hún sæti í neðri deild ítalska þings­ins (Camera dei deputati) fyrir Þjóða­banda­lagið, þá 29 ára gömul. Sama ár hóf hún störf sem blaða­maður.

Yngsti ráðherra Ítalíu í ríkisstjórn Berlusconi

Tveimur árum síðar varð hún ráð­herra mál­efna ung­menna í fjórðu rík­is­stjórn Silvio Berlusconi og þar með yngsti ráð­herr­ann í sögu Ítalíu, 31 árs gömul. Óhætt er að segja að hún hafi skorið sig úr meðal grá­hærðra karla. Ljóshærð, græn­eyg og hvít­klædd, en Meloni klædd­ist iðu­lega hvítri dragt hvar sem hún kom fram, nokkuð sem frama­konur víðs vegar í heim­inum hafa tamið sér í vald­efl­ing­ar­skyni.

Meloni var ráð­herra í þrjú ár, þar til Berlusconi sagði loks af sér vegna ítrek­aðra spill­ing­ar­mála.

Ítalía og Ítalir framar öllu

Meloni tók þátt í stofnun Bræðra­lags Ítalíu árið 2012 og hefur verið leið­togi flokks­ins frá 2014. Þá hefur hún verið for­seti flokka­hóps sjálf­stæðis- og end­ur­bóta­sinna (European Conservatives and Reformists - ECR) á Evr­ópu­þing­inu frá 2020.

Nafn flokks­ins, Bræðra­lagið, er vísun í ítalska þjóð­söng­inn, sem hefst á þessum orðum, Fratelli d’Italia, og slag­orð flokks­ins, Ítalía og Ítalir framar öllu, hefur Meloni túlkað sem svo að fari eigi eftir ítölskum gildum, til að mynda að kjarna­fjöl­skyldan skiptir máli. Kjarna­fjöl­skylda sem sam­anstendur af móður, föður og börnum sem búa á saman á einu heim­ili.

Tilkynnti óléttu á meðan hún mótmælti ættleiðingum samkynja para

Meloni er á móti hjóna­böndum sam­kyn­hneigðra og að sam­kynja pör fái að ætt­leiða börn. Í jan­úar 2016 tók hún þátt í mót­mælum, „Fjöl­skyldu­deg­inum“, þar sem ætt­leið­ingum sam­kynja para var mót­mælt.

Hún nýtti einnig tæki­færið á mót­mæl­unum til að til­kynna að hún ætti von á sínu fyrsta barni, með sam­býl­is­manni sínum Andrea Giambruni, fjöl­miðla­manni hjá Mediaset, sem er í eigu Berlusconi. Þau eign­uð­ust dótt­ur­ina Ginervu 16. sept­em­ber 2016. Meloni og Giambruni eru ekki gift og hafa spurn­ingar vaknað þess efnis hvort það gangi ekki gegn gildum Meloni, það er kristnu gild­unum og kjarna­fjöl­skyld­unni?

Kannski enginn Mussolini, en hvað með Trump?

Meloni hefur til­einkað sér fleiri slag­orð en slag­orð Bræðra­lags­ins. Í kosn­inga­bar­átt­unni mátti sjá aug­lýs­inga­skilti frá Bræðra­lag­inu með slag­orð­inu “Pronti a risollevare l’Italia” eða: Reiðu­búin að gera Ítalíu stór­feng­lega á ný. Hljómar kannski kunn­ug­lega?

Því hefur einmitt verið velt upp hversu hægrisinnuð, eða jafn­vel öfga­kennd, Meloni raun­veru­lega er. „Hún er kannski eng­inn Mus­sol­ini - en hún gæti verið Trump,“ segir í frétta­skýr­ingu The Guardian. Þar er farið yfir þá stöðu sem stjórn­mála­skýrendur er nú í, að greina hvort Meloni sé fas­isti, nýfas­isti (e. neofascist) eða síð­fas­isti (e. post-fascist)?

Sjálf segir Meloni að ítalskur fas­ismi heyri sög­unni til. Hún skil­greinir Bræðra­lag Ítalíu sem íhalds­flokk en flokknum hefur ítrekað verið lýst sem fas­ista­flokki þar sem auð­velt er að rekja rætur hans til MSI og banda­manna Mus­sol­ini.

Fasískir angar innan Bræðralagsins

Póli­tískar rætur Bræðra­lags­ins liggja í MSI, sem reis upp úr ösku fas­isma Mus­sol­ini. Fljót­lega eftir að nið­ur­stöður kosn­ing­anna lágu fyrir var farið að tala um að nú tæki við hægri­s­inn­að­asta rík­is­stjórn Ítalíu frá lokum seinni heims­styrj­ald­ar­innar.

Ein­kenn­is­merki flokks­ins er logi í ítölsku fána­lit­unum, logi sem hefur verið túlk­aður sem eld­ur­inn sem reis af gröf Mus­sol­ini.

„Giorgia Meloni vill ekki segja skilið við merkið þar sem hún getur ekki sagt skilið við það sem það táknar; æsku hennar,“ segir Gianluca Passarelli, pró­fessor í stjórn­mála­fræði við Sapienza-háskól­ann í Róm.

„Flokk­ur­inn hennar er ekki fas­ista­flokkur,“ segir Pass­arrelli. „Fasismi merkir að kom­ast til valda og eyði­leggja stjórn­kerfið. Hún mun ekki gera það og gæti það raunar ekki. En það eru angar innan flokks­ins sem teygja sig í átt­ina að ný-fas­ista hreyf­ing­unni. Hún hefur alltaf stað­sett sig þar á milli.“

Meloni hefur áhuga á öðru en stjórn­málum. 11 ára gömul las hún Hringa­drótt­ins­sögu og dróst fljótt inn í ævin­týra­heim Tolkien og ann­arra fantasíu­bóka, nokkuð sem hún á sam­eig­in­legt með fólki með svip­aðar stjórn­mála­skoð­anir, nefni­lega fas­isma. Þá er hún ein­skær áhuga­mann­eskja um dreka.

Úr tveimur prósentum í 26 á áratug

Bræðra­lagið byrj­aði sem smár stjórn­mála­flokkur fyrir ára­tug en er skyndi­lega orð­inn stærsti flokk­ur­inn á ítalska þing­inu.

Í fyrstu þing­kosn­ing­unum sem Bræðra­lagið bauð fram, árið 2013, fékk flokk­ur­inn aðeins tvö pró­sent atkvæða. Í kosn­ing­unum árið 2018 var stuðn­ing­ur­inn fjögur pró­sent en í dag er Bræðra­lagið stærsti flokk­ur­inn á ítalska þing­inu, með 26 pró­sent atkvæða kjós­enda á bak­við sig. Því má ef til vill þakka að flokk­ur­inn er eini stóri flokk­ur­inn á þing­inu sem var ekki hluti af þjóð­stjórn Mario Draghi, sem féll síð­asta sumar.

Þegar úrslit kosn­ing­anna voru ljós sagði Meloni ítalska kjós­endur vera að senda skýr skila­boð um hægri stjórn undir stjórn Bræðra­lags­ins auk Lega sem leiddur er af Matteo Salvini og Forza Italia, flokki Silvio Berlusconi, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra. Á meðan Bræðra­lagið bætti hressi­lega við fylgi sitt dróst fylgi flokka Salvini og Berlusconi saman. Saman ná flokk­arnir þó 43 pró­sent fylgi sem nægir þeim til að tryggja meiri­hluta í báðum deildum þings­ins.

Ætlar að verða leiðtogi allra

Ör stjórn­ar­skipti hafa ein­kennt ítölsku stjórn­mál frá lokum seinni heims­styrj­ald­ar­innar þegar lýð­ræði var komið á og verður rík­is­stjórn Meloni sú sjö­tug­asta í röð­inni frá 1945, og eins og áður hefur komið fram, sú hægri­s­inn­að­asta.

Meloni var hóf­söm í sig­ur­ræðu sinni, nokkuð sem hún tamdi sér engan veg­inn í kosn­inga­bar­átt­unni sjálfri. Hún seg­ist ætla að verða leið­togi allra og hún ætlar ekki að svíkja traust kjós­enda.

Meðal stefnu­mála sem Meloni lagði áherslu á í kosn­inga­bar­átt­unni voru skatta­læk­anir, lokun landamæra fyrir straumi inn­flytj­enda, auk þess sem hún vill sporna gegn því sem hún hefur kallað „lobbí­isma hinsegin fólks“. Þá hefur hún sagst vera á móti fjöl­menn­ingu og hefur verið sökuð um andúð gegn útlend­ingum.

Það verður því að telj­ast ólík­legt að henni tak­ist það sem hún ætlar sér: Að vera leið­togi allra. En það völdu hana ekki allir Ítalir, að minnsta kosti ekki hinsegin fólk, sem ótt­ast að Meloni og Bræðra­lagið fari fyrir nýrri rík­is­stjórn.

Meðal spurn­inga sem stjórn­mála­skýrendur spyrja þessa dag­ana er hvort Meloni muni nýta þá leið­andi stöðu sem hún er komin í til að tryggja sér, og Bræðra­lag­inu, langvar­andi for­ystu í lands­málum. Tíminn einn mun leiða það í ljós.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár