Hinn fullkomni vinnustaður

Vel­gengni WeWork vinnu­að­stöð­unnar, sem finna má víða í borgum Banda­ríkj­anna, hefur verið með ólík­indum. Á sex árum hefur vöxt­ur­inn verið hraður, og er fyr­ir­tækið metið á meira en tvö þús­und millj­arða. Markmið, var að búa til hinn full­komna vinnu­stað.

Skrif­stofu­rými sem fólk deilir með öðrum hafa sprottið upp í borg­ar­sam­fé­lögum á und­an­förnum árum, og njóta mik­illa vin­sælda. Sér­stak­lega eru það frum­kvöðlar og lítil fyr­ir­tæki sem sækja í þessa aðstöðu.

Það fyr­ir­tæki sem hefur leitt mikla sókn þessa teg­undar skrif­stofu­að­stöðu er WeWork. Það er með rætur í New York og Kali­forníu, þar sem umfangs­mesta aðstaða fyr­ir­tæk­is­ins er.

Í gær greindi Wall Street Journal frá því að WeWork væri nú metið á sextán millj­arða Banda­ríkja­dala, eða um tvö þús­und millj­arða króna. Sókn­ar­á­ætlun fyrir Asíu-markað er á teikni­borð­inu, og hafa þegar verið tryggðar 450 millj­ónir Banda­ríkja­dala í það verk­efni.

Góð aðstaða á góðum stað

Grund­vall­ar­hugs­unin að baki WeWork er ein­föld. Hún er sú að útvega fjölda fólks aðstöðu til að vinna á góðum stað í borgum. Við­skipta­á­ætl­anir í upp­hafi gerðu ráð fyrir því að reyna að ná til ungs fólks, sem hefði ekki mikla getu til að greiða háa leigu fyrir skrif­stofu. En með því að fá fólk til þess að deila rými, væri hægt að ná því fram að bjóða leigu á góðum stað á hag­stæðu verði, en um leið fá rekstr­ar­að­il­arnir hag­stætt fer­metra­verð, þar sem margir not­endur nýta rýmið vel með því að deila skrif­borðum, fund­ar­að­stöðu og kaffi­stofum.

Þekking flæðir á milli fólks

Það sem hefur verið lyk­ill­inn að vel­gengn­inni er svo það sem ekki var aug­ljóst, áður en farið var að stað. Fólk úr ýmsum áttum virð­ist tengja vel saman í gegnum deili-hugs­un­ina sem er að baki skrif­stofu­rým­inu. Skapandi and­rúms­loft verður til sem hjálpar ekki síst þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref með við­skipta­hug­myndir, eða þeim sem eru að reyna að efla tengsl í ákveðnum geirum.

Lagt er upp með að hafa aðstöð­una með fal­legri hönnun og hús­gögnum sem eru aðlað­andi.

Dæmigert skrif­stofu­rými, sem fólk leigir, kostar að með­al­tali um 600 Banda­ríkja­dali á mán­uði, eða sem sam­svarar um 78 þús­und krónum. Það þykir afar hag­stætt verð í stór­borgum, en verðin eru þó mis­jöfn eftir stað­setn­ingum. Vel stað­sett rými í Soho í New York kosta 750 Banda­ríkja­dali, eða sem nemur um 100 þús­und krónum á mán­uði.

Samfélag leigjenda

Til við­bótar fá not­endur þjón­ust­unnar síðan að tengj­ast sam­fé­lagi not­enda þjón­ust­unnar, sem fá boð á reglu­lega fundi, fyr­ir­lestra og ráð­stefnur, svo eitt­hvað sé nefnt. Þá geta þeir sem nýta sér aðstöð­una einnig nýtt sér aðstöðu WeWork í öðrum borgum og löndum.

Þessi nálgun hefur reynst höfða vel til þeirra sem vilja fá sveigj­an­leika í sitt vinnu­um­hverfi.

WeWork aðstaða á 26 stöðum í New York

Á einu ári hefur WeWork vaxið hratt, og er New York dæmi um stað þar sem nýir staðir hafa sprottið upp. Á einu ári hafa tíu ný rými bæst við í eigna­safni WeWork, og eru stað­irnir nú sam­tals 26 tals­ins. Næstu rými munu opna í Mexíkó borg, og síðan í fimm öðrum löndum þar sem stað­setn­ingar hafa ekki verið nákvæm­lega til­greindar ennþá. Það eru Indland, Kína, Ástralía, Suður-Kórea og Hong Kong. Gefið hefur verið út að rými verði í Seúl, höf­uð­borg Suður-Kóreu, og í Sidney, stærstu borg Ástralíu, en nákvæm­ari stað­setn­ingar hafa ekki verið gefnar út.

Framtíðarvinnustaðir blandaðir?

Þessi mikla vel­gengni hefur vakið upp umræðu um hvort þetta deili-rým­is­fyr­ir­komu sé vísir að fram­tíð­ar­vinnu­staða­menn­ingu, ekki síst á sviðum þar sem sér­fræð­ingar vinna oft hver í sínu horni eða þar sem inn­blástur úr óvæntum áttum hjálpar fólki að leita lausn á vanda­mál­unum sem glímt er við. Stofn­end­urnir þrír, Jesse Midd­leton, Adam Neumann og Miguel McKelvey, trúa því að svo sé og stofn­uðu til fyrsta rým­is­ins í New York árið 2010, með það sem leið­ar­ljós að búa til hinn full­komna vinnu­stað. Þar sem ólíkt fólk kæmi saman, deildi þekk­ingu sinni og gæti unnið í not­e­legu og „svölu“ umhverfi.

Þeir átt­uðu sig ekki á því að verk­efnið yrði jafn risa­vaxið og raunin er orðin, en frá árinu 2010 hefur fyr­ir­tækið sjö sinnum sótt fjár­magn til tíu fjár­festa og fjár­fest­ing­ar­sjóða, sam­tals ríf­lega 1,4 millj­arða Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um 180 millj­örðum króna. Nú þegar WeWork er að stíga fyrstu stóru skrefin út fyrir Banda­ríkja­markað, með inn­reið­inni í Asíu, gæti þessum „full­komnu“ vinnu­stöðum átt eftir að fjölga hratt á næstu árum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár