Umræðu um fjárlög haldið áfram á mánudag

Forseti Alþingis á von á því að önnur umræða geti farið fram á mánudag.
Forseti Alþingis á von á því að önnur umræða geti farið fram á mánu­dag. Mynd: Birgir Þór

Umræðum um fjár­laga­frum­varpið verður haldið áfram eftir helgi, von­andi á mánu­dag, segir Einar K. Guð­finns­son, for­seti Alþingis. Þá mun hefj­ast önnur umræða um frum­varpið, en hún átti sam­kvæmt starfs­á­ætlun þings­ins að fara fram þann 26. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. Á mánu­dag verður því komin 12 daga seinkun á starfs­á­ætl­un­inni.

Árni Páll Árnason, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, vakti athygli á því á Alþingi í dag að meiri­hluti fjár­laga­nefndar Alþingis væri ekki búin að skila af sér breyt­ing­ar­til­lögum sínum fyrir aðra umræðu fjár­lag­anna. „Þriðja umræða fjár­laga átti að fara fram í gær og maður spyr sig: Hvað veldur?“ Árni Páll sagði ótrú­legan skort á verk­stjórn af hálfu for­ystu fjár­laga­nefndar og rík­is­stjórn­ar­innar. „Ég verð því að spyrja virðu­legan for­seta: Hvenær getur þá önnur umræða fjár­laga farið fram og mun for­seti ekki fara að tryggja það að for­usta fjár­laga­nefndar hætti að móðga fólk úti í bæ og fari að vinna vinn­una sína?“

Það er löngu orðið ljóst að komin sé seinkun á þing­störfin, líkt og oft ger­ist á þessum tíma, enda eru aðeins þrír dagar eftir af þing­inu sam­kvæmt starfs­á­ætlun.Vigdís Hauks­dóttir, for­maður fjár­laga­nefndar, sagði í sam­tali við Kjarnann þegar þetta var orðið ljóst að hún væri „algjör­lega óstressuð yfir því“ að seinkun væri komin á afgreiðslu fjár­laga. Hún sagði það vera til þess fallið að skapa úlfúð þegar rætt væri um að umræður muni ekki stand­ast starfs­á­ætlun þings­ins og stjórn­ar­and­staðan hugsi ekki um dag­skrá þings­ins þegar hún stund­aði mál­þóf.

Stjórnarfrumvörpum fjölgað

Eins og fram kom í frétta­skýr­ingu Kjarnans í nóv­em­ber hafði rík­is­stjórnin aðeins lagt fram 25 stjórn­ar­frum­vörp þann 23. nóv­em­ber. Aldrei á þess­ari öld hafði rík­is­stjórn lagt fram eins fá mál þegar svo langt var liðið á haust­þing. Síðan þá hefur rík­is­stjórnin hins vegar lagt fram 20 stjórn­ar­frum­vörp til við­bótar, svo málin eru alls 45. Sex eru orðin að lögum, tíu bíða enn fyrstu umræðu á meðan 21 er í nefnd eftir fyrstu umræðu. Tvö frum­vörp hafa verið afgreidd úr nefnd og bíða ann­arrar umræðu, þrjú eru í nefnd eftir aðra umræðu og þrjú bíða þriðju og síð­ustu umræðu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár