Heildarvirði Borgunar jókst um 57 prósent á rúmum átta mánuðum

Þegar Lands­bank­inn seldi hlut sinn í Borgun í nóv­em­ber 2014 var fyr­ir­tækið metið á sjö millj­arða. Rúmum átta mán­uðum síðar var það metið á ell­efu millj­arða. Í dag er það metið á 19-26 millj­arða.

Þegar stjórn­endur Borgunar seldu tæp­lega 2,8 pró­sent hlut í Borgun í ágúst 2015 var miðað við að heild­ar­virði félags­ins væri ell­efu millj­arðar króna. Það er 57 pró­sent hærra heild­ar­virði en miðað var við þegar Lands­bank­inn seldi hlut sinn í Borgun í nóv­em­ber 2014, rúmum átta mán­uðum áður. Þetta hefur for­svars­maður Eign­ar­halds­fé­lags­ins Borgunar, sem keypti hlut stjórn­end­anna í fyr­ir­tæk­inu í ágúst, stað­fest við Kjarnann. Engin fyr­ir­vari var gerður í kaup­samn­ingnum um við­bót­ar­greiðslur vegna val­réttar Borgunar vegna mögu­legrar sölu Visa Europe til Visa Inc.

Mikil virðisaukning á örfáum mánuðum

Þegar Lands­bank­inn seldi 31,2 pró­sent hlut sinn í Borgun, seint í nóv­em­ber 2014, var kaup­verðið 2,2 millj­arðar króna. Í við­skipt­unum var því miðað við að heild­ar­virði Borgunar væri sjö millj­arðar króna. Kaup­and­inn var Eign­ar­halds­fé­lagið Borgun, sem var og er stýrt af Magnúsi Magn­ús­syni, sem er skráður með lög­heim­ili á Möltu. Þeir sem stóðu að félag­inu ásamt Magnúsi voru helstu stjórn­endur Borgunar og ýmsir fjár­sterkir með­fjár­festar sem fengnir voru með í við­skiptin. Það var Magnús sem nálg­að­ist Lands­bank­ann með þá hug­mynd að kaupa hlut bank­ans í Borgun.

Síðan hafa átt sér stað ýmis við­skipti með þennan eign­ar­hlut. Tólf stjórn­endur Borgunar sem tóku þátt í kaup­unum á hlut Lands­bank­ans eiga nú hlut sinn í gegnum félag sem heitir BPS ehf., og hafa raunar átt hann í gegnum það félag frá því seint á árinu 2014. BPS á nú fimm pró­sent hlut í Borgun en Eign­ar­halds­fé­lagið Borgun, sem sam­anstendur af með­fjár­festum þeirra, sem keypti hlut Lands­bank­ans, á 29,38 pró­sent hlut.

Eign­ar­halds­fé­lagið Borgun keypti 36 pró­sent af eign BPS í ágúst síð­ast­liðnum. Um er að ræða tæp­lega 2,8 pró­senta hlut í Borgun. Kaup­verðið var trún­að­ar­mál en Kjarninn hefur nú fengið upp­lýs­ingar um að í við­skipt­unum hafi verið miðað við að heild­ar­virði Borgunar hefði verið ell­efu millj­arðar króna. Það er fjórum millj­örðum krónum meira en heild­ar­virði Borgunar var metið á þegar Lands­bank­inn seldi hlut sinn í fyr­ir­tæk­inu um átta mán­uðum áður. Þetta stað­festir Magnús Magn­ús­son, sem fer fyrir Eign­ar­halds­fé­lag­inu Borgun, í tölvu­pósti til Kjarnans.

Virði Borgunar hækk­aði því um 57 pró­sent frá nóv­em­ber 2014, þegar rík­is­bank­inn Lands­bank­inn seldi hlut sinn í fyr­ir­tæk­inu, og fram í ágúst 2015, þegar BPS ehf. seldi tæp­lega 2,8 pró­sent af hlut sínum.

Tóku mið af síðasta viðskiptaverði

Því fékk BPS, félag stjórn­enda Borgunar, rúm­lega 300 millj­ónir króna fyrir þann hlut sem félagið seldi í ágúst. Það er um meira en 100 millj­ónum krónum meira en félagið greiddi fyrir þann tæp­lega 2,8 pró­sent hlut í nóv­em­ber 2014.

Magnús segir að við­skiptin hafi tekið mið af síð­asta við­skipta­verði með bréf félags­ins. Það er því ljóst að frek­ari við­skipti áttu sér stað með hluti í Borgun fyrir ágúst 2015, á gengi sem var mun hærra en það sem Lands­bank­inn seldi á í nóv­em­ber 2014. Engin fyr­ir­vari var gerður um hlut­deild í mögu­legum hagn­aði vegna sölu á Visa Europe í þessum við­skiptum. Haukur Oddsson, for­stjóri Borgunar og einn eig­enda BPS, segir að það hafi ekki verið gert vegna þess að þeim hafi ekki dottið í hug að val­réttur vegna söl­unnar væri nokk­urs virði á þeim tíma. Þessi hækkun á virði Borgunar er því ekki bein­tengd við val­rétt­inn, heldur er um við­bót­ar­virð­is­aukn­ingu að ræða.

Í dag er þessi val­réttur sann­kall­aður happa­drætt­is­vinn­ingur sem mun skila Borgun millj­örðum króna. Borgun býst við því að fá 33,9 millj­ónir evra, um 4,8 millj­arða króna, í pen­ingum þegar Visa Inc. greiðir fyrir Visa Europe. Auk þess fær Borgun, líkt og aðrir leyf­is­hafar innan Visa Europe, afhent for­gangs­hluta­bréf í Visa Inc. að verð­mæti 11,6 millj­ónir evra, eða um 1,7 millj­arðar króna. Til við­bótar mun Visa Inc. greiða leyf­is­höfum afkomu­tengda greiðslu árið 2020 sem mun taka mið af afkomu starf­semi Visa í Evrópu á næstu fjórum árum, en hlut­deild Borgunar af þeirri fjár­hæð mun ráð­ast af við­skiptaum­svifum Borgunar sem hlut­fall af heild­ar­við­skiptaum­svifum allra selj­enda hluta­bréf­anna á þessum 4 árum.

Því er ljóst að Borgun mun fá um 6,5 millj­arða króna auk afkomu­tengdar greiðslu árið 2020 vegna sölu Visa Europe.

Virði hluta þeirra sem keyptu orðið gríðarlegt

Líkt og áður sagði á BPS, félag stjórn­end­anna, enn fimm pró­sent hlut í Borgun. Eign­ar­halds­fé­lagið Borgun á 29,38 pró­sent hlut. Samkvæmt virð­is­mati sem KPMG vann fyrir stjórn Borgunar, og Morg­un­blaðið greindi frá fyrr í þessum mán­uði, er virði fyr­ir­tæk­is­ins nú áætlað 19 til 26 millj­arðar króna. Hlutur Eign­ar­halds­fé­lags­ins Borgunar er því met­inn á allt að 7,6 millj­arða króna og hlutur BPS, félags stjórn­end­anna, er met­inn á allt að 1,3 millj­arða króna.

Stjórn­end­urnir, sem keyptu sinn tæp­lega 7,8 pró­sent hlut á um 540 millj­ónir króna í nóv­em­ber 2014, og seldu 36 pró­sent hans á rúm­lega 300 millj­ónir króna í ágúst 2015, hafa upp­lifað hreina virð­is­aukn­ingu á fjár­fest­ingu sinni upp á allt að rúman einn millj­arð króna á fjórtán mán­uðum.

BPS skuld­aði 327 millj­ónir króna í lok árs 2014. Ljóst er að salan í ágúst hefur farið lang­leið­ina með að greiða upp það skulda­bréf ef vilji var til.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár