Risinn í franska boltanum

Zlatan Ibrahimovic hefur skorað 133 mörk fyrir PSG sem er met hjá klúbbnum, Síðan sænski landsliðsfyrirliðinn gekk til liðs við PSG, hefur sigurganga liðsins verið óstöðvandi.
Zlatan Ibrahimovic hefur skorað 133 mörk fyrir PSG sem er met hjá klúbbnum, Síðan sænski lands­liðs­fyr­ir­lið­inn gekk til liðs við PSG, hefur sig­ur­ganga liðs­ins verið óstöðv­andi. Mynd: EPA

Stór­liðið Paris Saint-Germain hefur ekki tapað leik síðan í mars á síð­asta ári. Ósigr­aðir í alls 34 leikjum sem er met í Frakk­landi. PSG leiðir frönsku deild­ina með 24 stiga for­ystu og hefur náð slíkum yfir­burðum að ekk­ert annað franskt lið er með tærnar þar sem það er með hæl­ana. Stóra stundin er hins­vegar framundan: Í næstu viku tekur PSG á móti Chelsea í 16-liða úrslitum Meist­ara­deild­ar­innar. Það ríkir mikil spenna og eft­ir­vænt­ing fyrir þennan leik. Gamli ríg­ur­inn milli Eng­lend­inga og Frakka tekur sig upp að nýju. Mikill við­bún­aður er hjá lög­regl­unni vegna ýmissa vand­ræða sem sköp­uð­ust þegar liðin mætt­ust á síð­asta ári. Eða eins og aðal­fram­herji liðs­ins, Zlatan, orðar það: Það er stríð framundan!

PSG – Chelsea

Liðin mæt­ast á þriðju­dag­inn, 16. febr­úar, í París og síðan aftur í Lundúnum, mið­viku­dag­inn 9. mars. Á síð­asta ári sló PSG Chelsea úr keppni með eft­ir­minni­legu jafn­tefli á Stamford Bridge þar sem jöfn­un­ar­mörkin komu á lokamín­útum leiks­ins. PSG voru einum manni færri eftir að Zlatan Ibrahimovic fékk að líta rauða spjaldið eftir að ein­ungis hálf­tími var lið­inn af leiknum.

Það er á ákveð­inn hátt tákn­rænt að þessi tvö lið skuli eig­ast við í Meist­ara­deild­inni. Bæði for­rík og umdeild höf­uð­borg­ar­lið sem hafa skapað sér miklar óvin­sældir með miklum og dýrum leik­manna­kaupum. Fá lið hafa eytt jafn miklum pen­ingum í leik­manna­kaup og PSG síð­ast liðin ár. Og það er ekk­ert lát á! Gert er ráð fyrir því liðið ætli að festa kaup á nýjum leik­mönnum fyrir alls 300 millj­ónir evra á þessu ári. Kaupin á Angel di Maria frá Manchester United vöktu mikla athygli á síð­asta ári, en svo virð­ist sem þau kaup hafi marg­borgað sig því Maria hefur verið allt í öllu síðan hann kom til PSG og virð­ist leggja upp flest mörk lið­ins; hann hefur hrein­lega blómstrað í París. Þessa dag­ana eru margir leik­menn orð­aðir við liðið: Eden Hazard, Pierre-Emerick Auba­meyand og síð­ast en ekki síst Cristiano Ronaldo.

Laurent Blanc verður áfram þjálfari

Samn­ing­ur­inn við þjálf­ar­ann, Laurent Blanc, var nýlega fram­lengdur um tvö ár. Þar með guf­uðu upp þær sögu­sagnir að José Mourinho væri á leið til Parísar. Enda vildu allir hafa Laurent Blanc áfram. Hvað annað? Þessi fimm­tuga knatt­spyrnu­goð­sögn, sem er stundum kall­aður for­set­inn, þykir hafa náð ein­stökum árangri með Par­ís­ar­lið­inu. Blanc var þekktur sem útsjón­ar­samur varn­ar­jaxl sem lék m.a. með Napoli, Barcelona, Manchester United og fleiri stór­liðum á sínum yngri árum og fagn­aði svo heims­meist­aratitli með Frökkum 1998. Síðan tóku við þjálf­ara­störf, hann stýrði m.a. franska lands­lið­inu til 2012 og kom lið­inu í und­an­úr­slit á EM 2012 eftir mikil hrak­fallaár á undan. Hann byggði upp nýja kyn­slóð franska lands­lið­ins þangað til að hann var ráð­inn til PSG.

Eigendur liðs­ins, fjár­sterkir aðilar frá Katar, hafa eytt millj­örðum í þetta lið, gerðu allt til þess að halda Blanc hjá PSG. Hann tók við lið­inu 2013, af Carlo Ancelotti, og mun nú stýra lið­inu allt fram til árs­ins 2018. „Það er mikil ábyrgð að stýra PSG; mik­il­væg­ast er að huga að fram­tíð­inni. Ævin­týrið heldur áfram. Ég er mjög ánægður hjá PSG og þakka traustið sem mér er sýnt.“

Eftir að hafa unnið allt sem hægt er að vinna í Frakk­landi er mark­miðið ein­falt: Vinna Meist­ara­deild­ina. Það er krafa klúbbs­ins, eig­and­anna og ekki síst krafa Zlatans Ibrahimovic sem hefur aldrei unnið þann titil og hefur látið í veðri vaka að hann yfir­gefi liðið – náist ekki það mark­mið. Undir stjórn Blanc hefur liðið unnið alla titla sem hægt er að vinna í Frakk­landi, en aldrei kom­ist lengra en í átta liða úrslit Meist­ara­deild­ar­innar. Í bæði skiptin verið stöðv­aðir af Barcelona. Það er alveg ljós hvað hann ætlar sér með liðið: „Leikmenn liðs­ins hafa sýnt það og sannað að þeir eru heimsklassa­leik­menn sem geta sigrað hvaða lið sem er. Þetta er leik­menn sem vilja vinna titla. Stóra mark­miðið er auð­vitað að vinna Meist­ara­deild­ina. Þetta er afar erfið keppni en einn dag­inn mun PSG vinna Meist­ara­deild­ina.“

Vandræði með fótboltabullur

Heima­völlur PSG, Parc de Prince, var um ára­bil mik­ill vand­ræða­staður. Áhan­gendur liðs­ins voru þekktar bullur um allt Frakk­land sem lögðu allt í rúst hvert sem þeir fóru. Eftir stór ofbeld­is­mál, m.a. morð­mál, var allt tekið í gegn, margir þekktir ofbeld­is­seggir voru settir í ævi­langt bann og öll örygg­is­mál á vell­inu hert. Sömu­leiðis, eins og víða ann­ars staðar í fót­bolta­heim­inum, var sett af að stað mikið átak til að upp­ræta kyn­þátta­for­dóma. Sama hefur raunar verið uppi á ten­ingnum hjá Chelsea; ýmis­konar vand­ræði hafa fylgt lið­inu.

Á síð­asta ári þegar þessi lið mætt­ust í París skap­að­ist mikið vand­ræða­á­stand eftir leik þegar stuðn­ings­menn Chelsea veitt­ust að þeldökkum manni í neð­an­jarð­ar­lest. Sungu og köll­uðu ýmis­konar ras­ista­bull. Eins og: „We’re racist, we’re racist and that’s the way we like it.”

Þetta atvik fór fyrir brjóstið á mörgum og var rann­sakað af lög­regl­unni. Kyn­þátta­for­dómar eru bann­aðir með lögum í Frakk­landi og þetta er raunar í fyrsta og eina skiptið sem frönsk yfir­völd hafa þurft að skipta sér af erlendu fót­boltaliði vegna kyn­þátta­for­dóma.

Enskar fót­bolta­bullur hafa lengi haft slæmt orð á sér. Svona atvik gætu haft afar alvar­legar afleið­ingar í för með sér, bæði fyrir saka­menn og sömu­leiðis liðið sjálft. Knatt­spyrnu­sam­band Evrópu íhugar nú að herða enn frekar regl­urnar varð­andi þessu mál. Því gætu svona atvik leitt til að áhof­enda- og leikja­banns. Það er ekki langt síðan að John Terry, leik­maður Chelsea, var sektaður um 220.000 þús­und pund fyrir að kyn­þátt­a­níð. Stuðn­ings­menn Chelsea verða því undir sér­stakri smá­sjá yfir­valda á þriðju­dag­inn kemur þegar liðin mæt­ast í París.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár