Íslensk samtök gegn íslamsvæðingu birta áróður gegn flóttamönnum

Samtökin Pegida Iceland, sem segj­ast vera sam­tök fólks gegn „islam­væð­ingu“ vest­rænna ríkja, birta áróður gegn flótta­mönnum á Facebook síðu sinni. Meðal þess sem þar er haldið fram er að hæl­is­leit­endur streymi til Íslands „vegna aug­lýs­inga íslenskra sós­í­alista í fjöl­miðlum erlendis um að hér sé allt að fá“ og fjöl­miðlar eru sak­aðir um að „mis­nota alltaf myndir af börnum í fréttum þegar það er stað­reynd að meiri­hluti þess­ara hæl­is­leit­enda eru karl­menn.“ Talað er um að flótta­fólk í Evrópu séu „efna­hags­flótta­menn“ og að „Evrópa eins og við höfum þekkt hana brátt liðin tíð.“

Kjarninn greindi frá því í jan­úar þegar Pegida síða fyrir Ísland var stofnuð, en Pegida sam­tökin rekja upp­runa sinn til Þýska­lands þar þau stóðu fyrir viku­legum mót­mælum gegn áhrifum íslams í evr­ópskum löndum.

Við stofnun sögð­ust sam­tökin á Íslandi ætla að birta frétta­tengt efni sem tengd­ist inn­reið og upp­gangi íslams í Evrópu, efni sem þau segja að fjöl­miðlar á Íslandi birti ekki vegna þögg­unar og póli­tísks rétt­trún­aðar. Samtökin hafa und­an­farið verið mjög virk á Facebook, en 3350 manns láta sér líka við síð­una.






Þessi mynd birt­ist án orða á síð­unni í júlí, en hún er gömul og sýnir flótta­fólk frá Albaníu koma til hafnar á Ítalíu árið 1991.




Sýnt fram á fölsun mynda


Í erlendum fjöl­miðlum hefur verið bent á það und­an­farna daga hvernig áróð­urs­síður af þessu tagi birta myndir sem eru í raun fals­aðar til þess að sverta flótta­fólk og inn­flytj­endur. BBC birti til dæmis umfjöllun um mynd af manni sem var sagður hafa barist fyrir Íslamska ríkið í fyrra en væri nú kom­inn að landa­mær­unum við Makedóníu þar sem hann þætt­ist vera flótta­maður.


Maðurinn hafði hins vegar barist fyrir frels­is­her Sýrlands, sem berst gegn Íslamska rík­inu. Hann heitir Laith Al Saleh.


Fjöl­mið­ill­inn Vice hefur einnig birt umfjöllun þar sem sýnt er fram á hvernig myndir sem eiga að sýna hæl­is­leit­endur í Evrópu nú, eru teknar ann­ars staðar og á öðrum tímum. Þessar myndir kom­ast oft í mikla dreif­ingu á sam­fé­lags­miðlum, án þess að sann­leiks­gildi þeirra sé kannað frekar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár