Illugi: Það vantar fólk í þetta land og við höfum gott af því að fá aðeins fleiri hingað

„Það vantar fólk í þetta land og við höfum gott af því að fá aðeins fleiri hingað inn hvað það varðar,“ sagði Illugi Gunn­ars­son mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra á Alþingi í dag. Illugi var að svara fyr­ir­spurn frá Óttari Proppé, for­manni Bjartrar fram­tíðar, um íslensku­kennslu fyrir inn­flytj­endur.

Óttarr sagði það eig­in­lega eins­dæmi á Norð­ur­löndum að kostn­aður við tungu­mála­kennslu inn­flytj­enda sé ekki að fullu greiddur af rík­inu. Greiðslu­hlut­fal rík­is­ins hefði farið lækk­andi og það væri orðið hamlandi fyrir inn­flytj­endur að sækja íslensku­nám. Illugi sagði átak til að bæta læsi nem­enda gagn­ast öllum, bæði íslenskum og erlendum börnum, og miklu skipti að tryggja að öll börn geti lesið á íslensku. Það þurfi líka að horfa á mót­töku flótta­manna í stærra sam­hengi og til lengri tíma en nokk­urra mán­aða. „Mér hefur fund­ist svo­lítið vanta í þessa umræðu akkúrat þann punkt sem hátt­virtur þing­maður tekur hér upp, að við séum með nægi­legt fjár­magn.“

Óttarr benti þá á að kvótaflótta­menn væru lít­ill hluti af heild­ar­meng­inu. Allt í allt búi tug­þús­undir útlend­inga á Íslandi sem tali annað tungu­mál sem fyrsta mál. Hann hvatti til þess að þessi mála­flokkur yrði styrktur.

„Með því að taka vel á móti útlend­ingum, hvort sem um er að ræða flótta­menn eða bara það fólk sem kýs að koma hingað, búa með okkur hér og starfa með okkur, eru fólgin mikil tæki­færi fyrir okkur Íslend­inga til að fjár­festa í þessum hópi, sér­stak­lega börn­unum, tryggja að þau læri íslensk­una. Um leið og við lærum tungu­málið lærum við líka þau gildi, þær hug­myndir og þann hug­mynda­heim sem við erum sjálf sprottin upp úr og þar með auð­vitað eiga þessir ein­stak­lingar miklu betri tæki­færi til að verða hluti af sam­fé­lag­inu. Það vantar fólk í þetta land og við höfum gott af því að fá aðeins fleiri hingað inn hvað það varðar,“ sagði Illugi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár