Mjakast varla úr sporunum á Þingvöllum

Sex til átta þús­und manns ganga um Almanna­gjá á hverjum degi nú í júlí. Einar Á.E. Sæmund­sen, þjóð­garðs­vörður Þing­valla, segir áform um að stýra ferða­manna­straumnum enn betur í bígerð. Þórir Sæmunds­son leið­sögu­maður seg­ist varla hafa getað hreyft sig úr spori vegna mann­mergðar á svæð­inu.

Ferða­menn streyma að Þing­völlum þessa dag­ana en um Almanna­gjá leggja sex til átta þús­und manns göngu sína á hverjum degi yfir hásum­arið. Einar Á.E. Sæmund­sen, þjóð­garðs­vörður Þing­valla, segir mjög margt fólk á svæð­inu frá níu til fimm en að svo róist umferðin eftir því sem líði á kvöldið. Því er ráð fyrir ferða­langa sem vilja forð­ast marg­menni að kíkja heldur „einu sinni á ágúst­kvöldi austur í Þing­valla­sveit“ líkt og í lag­inu segir. 

Fjörutíu mínútna bið í þurrgöllum

Mikil bið mynd­að­ist við Silfru þar sem vin­sælt er að snorkla og kafa. En þar var Þórir Sæmunds­son leið­sögu­maður með ferða­menn: „Ég hef aldrei séð svona marga á Þing­völlum áður og í einu. Kúnn­arnir sem ég var með voru að kafa í Silfru og þar er algjört overload af fólki líka. Þannig hann [kúnn­inn] sagði að þeir hefðu verið ofan í Silfru í 25 mín­útur til hálf­tíma en stóðu kyrrir í …

Kjósa
22
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár