Aðild Tyrkja að NATO gæti verið í hættu

Tyrkland getur gleymt aðild að Evr­ópu­sam­band­inu og gæti misst aðild sína að NATO verði dauða­refs­ing tekin upp þar í landi.

John Kerry, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, og Federica Mogherini, utanríkismálastjóri ESB, á blaðamannafundi í dag.
John Kerry, utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna, og Federica Mog­her­ini, utan­rík­is­mála­stjóri ESB, á blaða­manna­fundi í dag. Mynd: EPA

John Kerry, utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna, fundar með utan­rík­is­ráð­herrum aðild­ar­ríkjum Evr­ópu­sam­bands­ins og Federicu Mog­her­ini, utan­rík­is­mála­stjóra ESB, í dag. Þau lögðu áherslu á að Tyrkir yrðu að fylgja lögum og reglu í með­ferð þeirra á þeim sem taldir eru bera ábyrgð á valda­ránstil­raun­inni í Tyrk­landi á föstu­dag.

Tyrkland er aðili að Atl­ants­hafs­banda­lag­inu (NATO) og þaðan hafa vest­ræn ríki flogið hern­að­ar­leið­angra yfir yfir­ráð­ar­svæði Íslamska rík­is­ins í Sýrlandi og Írak. Allar slíkar ferðir frá Tyrk­landi voru stöðv­aðar við valda­ránstil­raun­ina á föstu­dag, enda var loft­rými Tyrk­lands lokað.

Kerry lagði áherslu á það þegar þau Mog­her­ini ávörp­uðu blaða­menn fyrir fund utan­rík­is­ráð­herr­anna að NATO hefði strangar reglur um að lýð­ræði væri við lýði í aðild­ar­ríkjum hern­að­ar­banda­lags­ins. NATO myndi í fram­hald­inu „fylgj­ast náið með fram­vind­unni“ í Tyrk­landi. Í stofnsátt­mála NATO, Atl­ants­hafs­sátt­mál­anum, sem und­ir­rit­aður var 1949 segir í inn­gangi að aðilar banda­lags­ins séu „stað­ráðnir í því að varð­veita frelsi þjóða sinna, […] er hvíla á meg­in­reglum lýð­ræðis, ein­stak­lings­frelsi og lögum og rétti.“

Recep Tayyip Erdogan, for­seti Tyrk­lands, lagði það til í ræðu á sunnu­dag að tyrk­neska þingið myndi íhuga að taka upp dauða­refs­ingu í land­inu á ný eftir atburði föstu­dags­ins. Það gæti þingið gert í krafti þess sem stuðn­ings­menn hans hróp­uðu á strætum og þess hvað klerkar í moskum hafa farið fram á. „Við getum ekki hundsað þessa kröfu,“ sagði Erdogan í æstum múg fyrir utan heim­ili hans í gær. „Í lýð­ræð­is­ríkjum þarf það að ger­ast sem fólkið vill að ger­ist.“

Þegar hafa meira en 7.500 manns verið hand­teknir í Tyrk­landi í kjöl­far valda­ránstil­raun­ar­innar. Í fjöl­miðlum hefur verið talað um póli­tískar hreins­anir í land­inu. Meðal þeirra sem hand­teknir hafa verið eru hæsta­rétt­ar­dóm­arar, her­menn, lög­reglu­menn, yfir­menn í stjórn­sýslu lands­ins og fleiri valda­menn. Hand­tök­urnar eru oftar en ekki hrotta­fengnar. Ljós­myndir sýna suma hand­járn­aða við gólfið á lög­reglu­bílum og afklædda. Fólkinu er svo ýmist haldið í fang­elsum eða stórum íþrótta­sölum sem breytt hefur verið í bráða­brigða­fang­elsi.

Fjöl­margir leið­togar vest­rænna lýð­ræð­is­ríkja hafa stigið fram og hvatt stjórn­völd í Anakara til að fara að lögum og reglu í upp­gjöri sínu við þá sem stóðu að valda­ránstil­raun­inni. Kerry og Mog­her­ini ítrek­uðu þetta á fundi sínum í dag. Tals­maður Angelu Merkel, kansl­ara Þýska­lands, hefur sagt að Tyrkland geti gleymt Evr­ópu­sam­bands­að­ild verði dauða­refs­ingar teknar upp á ný.

Haft er eftir Lilju Alfreðs­dóttur, utan­rík­is­ráð­herra Íslands, á vef ráðu­neyt­is­ins að Íslend­ingar hvetji til still­ingar og sátta í Tyrk­landi. „Lýð­ræð­is­lega kjörin stjórn­völd halda völdum mik­il­vægt er að stöð­ug­leiki kom­ist á sem fyrst. […] Vopnað valda­rán gegn lýð­ræð­is­lega kjörnum stjórn­völdum er árás á lýð­ræðið. Á alþjóða­vett­vangi talar Ísland fyrir lýð­ræð­is­legum ferlum og mann­rétt­indum sem öllum rík­is­stjórnum ber að virða.“

Banda­ríkin og Evr­ópu­sam­bandið styðja stjórn­völd í Tyrk­landi og standa með stjórn­völdum þar í landi um að þeir sem stóðu að valdarán­inu verði sóttir til saka. „Við gerum hins vegar einnig þá kröfu að stjórn­völd í Tyrk­landi beiti sér af yfir­vegun og gæti jafn­ræðis í land­inu,“ sagði Kerry í dag. Hann bætti við að nú von­að­ist hann til að tyrk­nesk stjórn­völd myndu standa við það sem þau segja að sé horn­steinn­inn að land­inu þeirra, og átti þar við umdeildar lýð­ræð­is­yf­ir­lýs­ingar Erdogans for­seta.

Meira en 290 manns lét­ust í valda­ránstil­raun­inni og um það bil 1.400 manns særð­ust á föstu­dags­kvöld og í mót­spyrnu tyrn­keskra stjórn­valda í kjöl­farið. Í dag var um 8.000 lög­reglu­mönnum sagt upp störfum vegna meintra tengsla þeirra við vald­ræn­ingja.

Í NATO eru nú 28 ríki. Ísland er meðal stofn­að­ila Atl­ants­hafs­banda­lags­ins. Tyrkland fékk inn­göngu árið 1952. Frá 1999 hefur mörgum af ríkjum Austur-Evrópu verið veitt aðild að NATO; mörg þeirra voru hluti af Var­sjár­banda­lag­inu sem var svar aust­an­tjalds­landa við Atl­ants­hafs­banda­lag­inu. Banda­ríkin eru eina aðild­ar­ríki NATO sem leyfir dauða­refs­ingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár