„Gagnslaust“ að tala við Pútín

For­sæt­is­ráð­herra Ítalíu segir það „tíma­eyðslu“ að ræða við Vladimír Pútín Rúss­lands­for­seta. Hann segir við­skipta­þving­anir hingað til engu hafa skilað. „Evrópa heldur áfram að fjár­magna Rússland með því að kaupa olíu og gas.“

Kona stendur við lík manns eftir árás Rússa í borginni Kharkiv.
Kona stendur við lík manns eftir árás Rússa í borg­inni Kharkiv. Mynd: EPA

Mario Draghi, for­sæt­is­ráð­herra Ítalíu, segir að við­skipta­þving­anir sem vest­ur­veldin hafi hingað til beitt til að reyna að fá Vladimír Pútín Rúss­lands­for­seta til að hætta stríðs­rekstri í Úkraínu engu hafa skilað. „Ég er far­inn að halda að þeir sem segi gagns­laust að ræða við Pútín hafa rétt fyrir sér, það er aðeins tíma­eyðsla,“ segir for­sæt­is­ráð­herr­ann í við­tali við ítalska dag­blaðið Corriere della Sera. Markmið Pútíns virð­ist vera það að „tor­tíma mót­spyrnu Úkra­ínu­manna, her­nema landið og afhenda svo stjórn hlið­hollri sér valdataumana“.

[adspot]

Draghi og Pútín rædd­ust við í síma 30. mars. Í sím­tal­inu seg­ist Draghi hafa reynt að sann­færa Pútín um að sætt­ast á vopna­hlé í Úkraínu.

„Ég spurði hann: Hvenær ætlar þú að hitta Zelensky [Úkra­ínu­for­seta]? Aðeins þið tveir getið leyst hnút­inn,“ seg­ist Draghi hafa sagt við Pútín. Hann segir Pútín hafa svarað: „Núna er ekki rétti tím­inn.“

Og þegar Draghi ítrek­aði mik­il­vægi vopna­hlés end­ur­tók Pútín orð sín: „Nei, núna er ekki rétti tím­inn.“

Í við­tal­inu við Il Corriere della Sera var for­sæt­is­ráð­herr­ann spurður hvernig hægt væri að hjálpa þjóð sem væri verið að ráð­ast á. „Við­skipta­þving­anir eru mik­il­vægar til að veikja árás­armann­inn en það stoppar heri hans ekki strax. Til að gera það þurfum við að hjálpa Úkra­ínu­mönnum beint – og það er það sem við erum að gera.“

Draghi vill draga úr þörf Ítalíu á við­skiptum við Rússland m.a. með því að kaupa gas af fleirum og hefur nú samið við Alsír um kaup á umtals­verðu magni. Talið er að um 40 pró­sent alls jarð­gass sem Ítalir nota sé keypt frá Rússum.

Svipaða sögu er að segja í mörgum öðrum ríkjum Evr­ópu­sam­bands­ins. Þessu verður að breyta, segir Draghi.

„Evrópa heldur áfram að fjár­magna Rússland með því að kaupa olíu og gas og fleira á verði sem er úr öllu sögu­legu sam­hengi og úr tengslum við fram­leiðslu­kostn­að­inn.“

ESB háð Rússum um gas

Alþjóða orku­stofn­unin (International Engergy Agency) hefur lagt fram nokkrar til­lögur um hvernig Evr­ópu­sam­bandið getur dregið úr því að þurfa að stóla á gas­kaup frá Rússum. Meðal til­lagna er að hætta við nýja orku­samn­inga við Rússland, að kaupa gas frekar af öðrum ríkjum, að flýta fyrir upp­bygg­ingu end­ur­nýj­an­legra orku­gjafa og auka fram­leiðslu í kjarn­orku­verum, svo dæmi séu tekin.

Ítölsk stjórn­völd hafa að sögn Draghi þegar ráð­ist í auknar fjár­fest­ingar í end­ur­nýj­an­legri orku­vinnslu og fleiri aðgerðir eru í far­vatn­inu.

En allt þetta tekur tíma. Og á meðan er fólk að deyja í Úkraínu vegna stríðs­ins. Í nótt hefur rúss­neski her­inn gert ákafar árásir á margar borgir. Fjórum loft­skeytum var skotið á borg­ina Lviv í morgun, borg sem er rétt við landa­mærin að Póllandi. Stöðugar loft­árásir hafa einnig verið gerðar í nágrenni hafn­ar­borg­ar­innar Odesa og sprengjur hafa sömu­leiðis fallið í Kharkiv. Ómögu­legt er að segja hversu mann­fallið í nótt var mikið.

Enn er borgin Mariupol í her­kví þótt Úkra­ínu­menn hafi ekki gef­ist upp líkt og Rússar kröfð­ust að þeir myndu gera ekki seinna en í gær. Borgin hefur verið lögð nán­ast í rúst. Þar er þó enn inn­lyksa fjöldi fólks.

Áfram eru gerðar árásir í aust­ur­hluta Úkraínu, á hinum svo­kall­aða Donbas-svæði. Úkraínsk yfir­völd hafa varað íbúa á svæð­inu við því að árás­irnar eigi eftir að verða harð­ari á næstu dögum og hafa beðið þá um að flýja þar sem „grimmi­leg“ árás Rússa sé yfir­vof­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár