Mynd: Birgir Þór Harðarson

Íslensk stjórnmál eru gjörbreytt... og hrunið breytti þeim

Á síð­ustu árum hefur fjór­flokk­ur­inn svo­kall­aði misst yfir­burða­stöðu sína í íslenskum stjórn­málum. Flokk­arnir sem smíð­uðu kerfin ná ekki lengur nægi­legu fylgi til að verja þau. Öfl stofnuð eftir 2012 taka til sín nær sama magn atkvæða og þeir.

Fyrir banka­hrun var stjórn­mála­kerfi til staðar hér­lendis sem kalla má 4+1. Hér voru fjórir stjórn­mála­flokkar sem röð­uðu sér niður á mis­mun­andi stöðum í hinu hefð­bundna póli­tíska lit­rófi, frá vinstri til hægri. Einn sós­íal­ískur flokkur (lengi vel Alþýðu­banda­lagið), einn sós­í­alde­mókrat­ískur flokkur (lengi vel Alþýðu­flokk­ur­inn), einn íhalds­samur bænda­flokkur (Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn) og einn stór íhalds­flokkur (Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn) sem hafði mjög breiða skírskotun þótt hann skil­greindi sig á tylli­dögum sem hægri flokk.

Til við­bótar var oft einn flokkur til við­bótar á þingi sem end­ur­spegl­aði nýjar áherslur í sam­fé­lag­inu hverju sinni. Skýrasta dæmið um slíkan flokk var Kvenna­list­inn á níunda ára­tugnum, sem lyfti grettistaki í jafn­rétt­is­bar­áttu kvenna og rann á end­anum inn í meg­in­straums­stjórn­mál þegar áherslur hans voru að hluta orðnar norm en ekki jað­ar­skoð­anir.

Á tíunda ára­tugnum og eftir ald­ar­mót breytt­ist lands­lagið lít­il­lega með tvennum hætti. Í fyrsta lagi má segja að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn færði sig frá því að vera flokkur allra stétta og í átt að nýfrjáls­hyggju og auð­ræði. Flokk­ur­inn umfaðm­aði hug­mynda­fræð­ina um lága skatta á fjár­magn og eig­endur þess og hélt því fram að þannig myndi kakan stækka. Vissu­lega myndi sneið fjár­magns­eig­end­anna gera það líka en mylsnan sem félli af myndi auðga allt sam­fé­lagið sam­hliða og bæta lífs­gæða ann­arra. Hin stóra breyt­ingin var til­raunin til að sam­eina vinstri væng stjórn­mál­anna í Sam­fylk­ing­unni. Þangað inn var runnu Alþýðu­flokk­ur­inn, klofn­ings­fram­boðið Þjóðvaki, Alþýðu­banda­lagið og Kvenna­list­inn. Til átti að verða jafn­að­ar­manna­flokkur sem yrði svip­aður að stærð og á hinum Norð­ur­lönd­unum. Ljóst varð þó til­tölu­lega snemma að Sam­fylk­ingin leit líka mjög til þeirrar þró­unar sem var að eiga sér stað hjá Verka­manna­flokknum í Bret­landi undir stjórn Tony Blair varð­andi áherslur. Þar var verið að vinna með „þriðju leið­ina“. Hug­myndin þar var að sam­þætta og umfaðma mark­aðs­á­herslur kap­ít­al­ism­ans á sama tíma og lögð yrði áhersla á sós­íal­ískar áherslur í rík­is­rekstri og sterkt vel­ferð­ar­kerfi.

Það var mikil jafn­væg­is­list að reyna að valda þessum and­stæðum og skiptar skoð­anir eru um hversu vel til tókst. Margir vinstri­menn eru þeirrar skoð­unar að Sam­fylk­ingin hafi algjör­lega yfir­gefið hlut­verk jafn­að­ar­manna­flokk­anna sem flokks launa­fólks og vinnu­mark­aðs­rétt­inda til að hlýja sér hjá auð­vald­inu og boða aukna alþjóða­hyggju og við­skipta­frelsi sem leiðir til að bæta kjör verka­lýðs­ins. Strax í byrjun ákváðu enda lyk­il­menn úr flokk­unum fjórum sem stofn­uðu Sam­fylk­ing­una um ald­ar­mótin að taka ekki þátt heldur að stofna eigið nýtt vinstri­afl, Vinstri­hreyf­ing­una grænt fram­boð. Hinn mikli sam­runi á vinstri vængnum breytti því 4+1 kerf­inu ekki á neinn hátt. Fjór­flokk­ur­inn sem rað­aði sér frá vinstri til hægri var enn til staðar og var kjöl­festan í íslenskum stjórn­málum áfram sem áður með yfir 90 pró­sent atkvæða og þorra þing­manna.

Kerfið skilaði nánast alltaf sömu flokkunum við stýrið

Kerfið sem var til staðar skil­aði nán­ast alltaf þeirri nið­ur­stöðu að annað hvort Sjálf­stæð­is­flokkur eða Fram­sókn­ar­flokkur voru við völd, og oft­ast saman. Það gerð­ist fyrst árið 2009 að hvor­ugur þess­ara flokka ætti sæti í meiri­hluta­stjórn á Íslandi. Frá lýð­veld­is­stofnun hefur Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn stýrt land­inu í þrjú af hverjum fjórum árum sem liðið hafa og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn í tvö af hverjum þremur. Þeir hafa því mótað kerfin sem Ísland hvílir á og sniðið stjórn­sýslu lands­ins og lagaum­hverfi að sínum áherslum. Í aðdrag­anda banka­hruns­ins var Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn til að mynda í rík­is­stjórn sam­fleytt frá árinu 1991. Í tólf þeirra ára – frá 1995 til 2007 – stýrði hann með Fram­sókn­ar­flokknum.

Við hrunið breytt­ist allt. Á einni nóttu hvarf traust almenn­ings til flestra stofn­ana sam­fé­lags­ins, þar með talið stjórn­mál­anna. Það var mjög almenn skoðun að stjórn­mál, stjórn­sýsla, og auð­vitað banka- og við­skipta­menn­irnir sem nýtt höfðu sér kerfið sem skapað hafði verið til að valda sínum skaða, hefðu saman valdið því tjóni sem almenn­ingur stóð frammi fyrir. Geng­is­hruni, atvinnu­leysi, eigna­missi, verð­bólgu­skoti, skulda­fang­elsi og svo fram­vegis. Helgi Hrafn Gunn­ars­son, fyrr­ver­andi þing­maður Pírata, ræðir það í nýjasta þætti Kjarnans á Hring­braut, sem fjallar um breyt­ingar í íslenskum stjórn­málum eftir hrun.

Sam­fylk­ingin slapp ansi vel frá því að vera kennt um, þrátt fyrir að hafa setið í rík­is­stjórn frá 2007 og fram yfir hrun með Sjálf­stæð­is­flokknum. Þegar fjölda­mót­mæli felldu rík­is­stjórn­ina snemma árs 2009 gat hún myndað minni­hluta­stjórn með Vinstri grænum og selt þá hug­mynd að þar væri komin til­tekt­ar­stjórn sem ætl­aði að hreinsa upp eftir partýið. Partý sem Sam­fylk­ingin hafði sann­ar­lega tekið þátt í, og bar að hluta til ábyrgð á hvernig end­aði.

Í kosn­ing­unum 2009 var því kerf­is­varn­ar­flokk­unum, sem stýrt höfðu Íslandi að mestu á lýð­veld­is­tím­anum, refsað mest allra. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fékk sína verstu útreið í sög­unni og ein­ungis 23,7 pró­sent atkvæða. Hann tap­aði níu þing­mönnum. Fram­sókn­ar­flokknum gekk ögn betur og náði 14,8 pró­sent atkvæða, sem þýddi að hann bætti við sig tveimur þing­mönnum milli kosn­ingar. En sig­ur­veg­ar­arnir voru Vinstri græn (21,7 pró­sent) og Sam­fylk­ingin sem nú var farin að flagga vinstri­á­herslum í stað þriðju leið­ar­innar (29,8 pró­sent). Saman náðu þessir tveir flokkar á vinstri væng stjórn­mál­anna 34 þing­mönnum og meiri­hluta. Til varð fyrsta hreina tveggja flokka vinstri­st­jórnin í Íslands­sög­unni.

En fjór­flokka­kerfið lifði góðu lífi. Saman fékk það 90 pró­sent atkvæða. Plús­flokkur þess tíma – and­ófs­flokk­ur­inn Borg­ara­hreyf­ingin sem spratt upp úr fjölda­mót­mælum vegna hruns­ins – náði að krækja sér í 7,2 pró­sent atkvæða og fjóra þing­menn.

Traust hverfur í miðri tækni- og upplýsingabyltingu

Þótt 4+1 kerfið virt­ist lifa góðu lífi var ljóst að eðl­is­breyt­ingar voru í far­vatn­inu. Mikil hreyf­ing var á þing­mönnum milli flokka á kjör­tíma­bil­inu og átökin milli stjórnar og stjórn­ar­and­stöðu voru ein þau hörð­ustu sem sést hafa. Það skýrist auð­vitað að ein­hverju leyti af því að við­fangs­efnin voru for­dæma­laus. Samhliða var að eiga sér stað tækni- og upp­lýs­inga­bylt­ing sem mun breyta því hvernig við lifum meira en iðn­bylt­ingin. Hún hefur t.d. þegar breytt því algjör­lega hvernig fólk nálg­ast upp­lýs­ingar og getu þess til að taka þátt í þjóð­fé­lags­um­ræðu.

Þetta and­rúms­loft skil­aði af sér ótrú­legum kosn­ingum árið 2013. Þar má segja að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hafi náð að stela kosn­ing­unum með því að eigna sér Icesave-nið­ur­stöð­una, sem fallið hafði skömmu áður, og með því að bjóð­ast til að gefa ákveðnum hópi, verð­tryggðum hús­næð­is­lán­tökum, ævin­týra­legar fjár­hæðir ef þeir myndu kjósa flokk­inn. Það er for­dæma­laust í íslenskri stjórn­mála­sögu að flokkur bjóði fólki bein­línis reiðufé úr rík­is­sjóði fyrir að kjósa sig.

Árangur Pírata, sem nú eru með tíu manna þingflokk, hefur vakið heimsathygli.
Árangur Pírata, sem nú eru með tíu manna þing­flokk, hefur vakið heims­at­hygli.

Þetta svín­virk­aði hins vegar og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn náði í 24,4 pró­sent atkvæða. Kostn­að­ur­inn vegna þessa kosn­inga­sig­urs reynd­ist á end­anum vera 72,2 millj­arðar króna sem runnu úr rík­is­sjóði til hluta þeirra sem voru með verð­tryggð hús­næð­is­lán á árunum 2008 og 2009, undir hatti Leið­rétt­ing­ar­innar. Þorri upp­hæð­ar­innar fór til hópa sem áttu miklar eignir og voru með háar tekjur. Aðgerðin gerði stöðu þeirra sem virki­lega þurftu á aðstoð að halda, eigna­lausra, tekju­lágra og ungs fólks, mun verri en hún hefði verið ella. Þótt Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn bætti örlítið við sig í kosn­ing­unum var fylgi hans enn ein­ungis 26,7 pró­sent, sem er langt frá því sem áður þótti ásætt­an­legt. Raunar var þetta ein­ungis í þriðja sinn sem flokk­ur­inn fékk undir 30 pró­sent atkvæða.

Stjórn­ar­flokk­unum tveimur var refsað illi­lega. Samtals töp­uðu þeir 27,7 pró­sent atkvæða og voru ein­ungis með 16 þing­menn sam­an­lagt að loknum kosn­ing­unum. Þau undur gerð­ust þó að tveir aðrir flokkar utan fjór­flokks­ins náðu inn á þing. Annars vegar Píratar (5,1 pró­sent) og hins vegar Björt fram­tíð (8,2 pró­sent), syst­ur­flokkur Besta flokks­ins sem þá stýrði Reykja­vík­ur­borg. 4+1 mynstrið var því brotið. Það hafði vissu­lega gerst áður en þá vegna klofn­ings­fram­boða úr hefð­bundnu flokk­unum. Píratar og Björt fram­tíð voru hvor­ugt. Sam­an­lagt fylgi fjór­flokks­ins dróst líka umtals­vert saman milli kosn­inga, og var nú 74,9 pró­sent. Alls fengu ell­efu aðrir flokkar atkvæði í kosn­ing­unum. Það var aug­ljós­lega eitt­hvað í loft­inu.

Mestu breytingarkosningar í Íslandssögunni

Kosn­ing­arnar haustið 2016 urðu svo mestu breyt­ing­ar­kosn­ingar í Íslands­sög­unni. Aðdrag­andi þeirra var auð­vitað ein­stakur: afsagnir tveggja lyk­il­ráð­herra á kjör­tíma­bil­inu, Panama­skjölin sem opin­ber­uðu að Íslend­ingar, þar á meðal íslenskir stjórn­mála­menn, voru heims­meist­arar miðað við höfða­tölu í að nýta sér aflands­fé­lög til að koma sér undan skatt­greiðslum eða til að fela eignir og stærstu mót­mæli sem haldin hafa verið hér­lendis þegar 26 þús­und manns kröfð­ust kosn­inga og afsagnar rík­is­stjórnar Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar. Það er vægt til að orða tekið að sú rík­is­stjórn sem sat á árunum 2013 til 2016 hafi mis­tek­ist að end­ur­vekja það traust í sam­fé­lag­inu sem glat­að­ist í hrun­inu og til­tek­inni eftir það.

Samfylkingunni vegnaði ekki vel á meðan að fyrst Árni Páll Árnason og síðan Oddný Harðardóttir stýrðu henni. Flokkurinn rétt skreið inn á þing í kosningunum 2016 með 5,7 prósent atkvæða og þrjá þingmenn.
Sam­fylk­ing­unni vegn­aði ekki vel á meðan að fyrst Árni Páll Árnason og síðan Oddný Harð­ar­dóttir stýrðu henni. Flokk­ur­inn rétt skreið inn á þing í kosn­ing­unum 2016 með 5,7 pró­sent atkvæða og þrjá þing­menn.

Það segir ýmis­legt um síð­ustu kosn­ingar að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn var álit­inn sig­ur­veg­ari þeirra þrátt fyrir að hann hafi ein­ungis fengið 29 pró­sent atkvæða. Í þriðju kosn­ing­unum í röð fékk þessi stærsti, og skipu­lagð­asti flokkur lands­ins, undir 30 pró­sent atkvæða. Sam­fylk­ingin, breið­fylk­ing jafn­að­ar­manna, var næstum því þurrkuð út og fékk ein­ungis 5,7 pró­sent atkvæða. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn fékk sína verstu nið­ur­stöðu í 100 ára sögu sinni, ein­ungis 12,7 pró­sent atkvæða. Eini fjór­flokk­ur­inn sem bætti meira en fimm pró­sentum við sig voru Vinstri græn, sem fengu 15,9 pró­sent atkvæða. Sam­an­lagt fylgi fjór­flokks­ins, sem hafði verið alls­ráð­andi í íslenskum stjórn­málum alltaf, var nú komið niður í 62 pró­sent. Rík­is­stjórn kerf­is­varn­ar­flokk­anna Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks kol­féll og nú vildu ein­ungis fjórir af hverjum tíu kjós­endum þessa tvo flokka.

Hvert fór allt þetta fylgi? Jú, það fór til flokka sem stofn­aðir voru eftir árið 2012. Í eft­ir­hruns-Íslandi. Slíkir fengu 38 pró­sent atkvæða. Þrír þeirra náðu mönnum inn á þing og þeir fengu sam­tals 21 þing­mann, eða þriðj­ung þeirra. Alls fengu átta flokkar sem stofn­aðir eru eftir árið 2012 atkvæði í kosn­ing­unum.

Nú eru því sjö flokkar á Alþingi og þeir þrír sem stofn­aðir voru á síð­ustu árum fengu ekki mikið minna fylgi en kerf­is­varn­ar­flokk­arnir tveir þegar talið var upp úr kjör­köss­unum. Konur hafa aldrei verið fleiri á þingi og þing­mannaflóran hefur aldrei end­ur­speglað jafn vel fjöl­breyti­leika íslensku þjóð­ar­innar.

Allir flokk­arnir þrír, Björt fram­tíð, Viðreisn og Píratar, eiga það sam­eig­in­legt að vera and­kerf­is­flokkar, að minnsta kosti í orði, og leggja mikla áherslu á frjáls­lyndi. Þeir vilja breyt­ingar sem byggja á jákvæðni, meira gagn­sæi og meira vald til fólks­ins sam­kvæmt stefnu­skrám. Og þeir eru allir alþjóð­lega og lýð­ræð­is­lega sinn­aðir. Vilja minni spill­ingu og minni frænd­hygli. Opnara sam­fé­lag.

Það er athygl­is­verð þróun því í öðrum löndum í kringum okkur hefur breyt­ing­ar­fylgið verið að fara mun meira til flokka sem boða þjóð­ern­ispopúl­isma og hafa lagt áherslu á mis­munun, hræðslu, minni alþjóða­væð­ingu og ein­angr­un­ar­hyggju í mál­flutn­ingi sínum, sér­stak­lega þegar kemur að mál­efnum inn­flytj­enda. Einn slíkur flokkur, Íslenska þjóð­fylk­ingin, bauð fram í kosn­ing­unum 2016 og fékk 0,2 pró­sent. 303 manns kusu hann.

Fordæmalausar óvinsældir ríkisstjórnar sem fáir vildu

Þrátt fyrir þessar miklu breyt­ingar má segja að nær eng­inn hafi verið ánægður með nið­ur­stöðu kosn­ing­anna. Mjög erfitt var að mynda rík­is­stjórn. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn þurfti að róa á ný mið eftir makker í ljósi þess að Framsókn dugði ekki lengur til ein og sér og eng­inn hinna flokk­anna vildi mynda rík­is­stjórn með Fram­sókn­ar­flokknum. Það þurfti ansi margar til­raunir til að klístra saman rík­is­stjórn og á end­anum varð til þriggja flokka stjórn Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar undir for­sæti Bjarna Bene­dikts­sonar. Flokk­arnir þrír eru ekki með meiri­hluta atkvæða á bak við sig og minnsta mögu­lega meiri­hluta þing­manna, 32 tals­ins.

Það er ekki óvar­legt að segja að þetta hafi verið rík­is­stjórn sem fáir voru ánægðir með. Ágrein­ingur innan hennar og stuðn­ingur almenn­ings við hana síðan að hún tók við völdum í jan­úar sýnir það svart á hvítu.

Engin ríkisstjórn hefur notið jafn lítils stuðnings meðal almennings á fyrstu starfsdögum sínum og ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar. Og stuðningur við hana hefur dregist saman eftir því sem frá líður.
Engin rík­is­stjórn hefur notið jafn lít­ils stuðn­ings meðal almenn­ings á fyrstu starfs­dögum sínum og rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar. Og stuðn­ingur við hana hefur dreg­ist saman eftir því sem frá líður.

Í nýj­ustu skoð­ana­könnun MMR, sem birt var á þriðju­dag, kom fram að ein­ungis 31,4 pró­sent lands­manna styður rík­is­stjórn­ina. Engin rík­is­stjórn hefur nokkru sinni, frá því að mæl­ingar hófust, farið af stað með jafn lít­inn stuðn­ing og sú sem nú situr. Allir stjórn­ar­flokk­arnir þrír tapa fylgi á sam­starf­inu. Björt fram­tíð mælist nú með 3,2 pró­sent fylgi – jafn mikið og Flokkur fólks­ins – og er því langt frá því að ná inn þing­manni ef kosið yrði nú. Viðreisn, sem fékk 10,5 pró­sent atkvæða í síð­ustu kosn­ingum, mælist nú með fimm pró­sent fylgi og er við það að detta út af þingi ef kosið yrði í dag. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist með 25,2 pró­sent, sem yrði næst versta kosn­ing hans frá upp­hafi ef það væri nið­ur­staða kosn­inga.

Fylgið er fyrst og fremst að fær­ast yfir á gömlu vinstri flokk­anna, Vinstri græn og Sam­fylk­ingu sam­kvæmt könn­un­inni. Samt er sam­an­lagt fylgi fjór­flokks­ins ein­ungis 70 pró­sent og kerf­is­varn­ar­flokk­arnir, Sjálf­stæð­is­flokkur og Fram­sókn­ar­flokkur, mæl­ast ein­ungis með rúm­lega 36 pró­sent fylgi.

Kannanir sýna því skýrt að breyt­inga­skeiði íslenska stjórn­mála er fjarri því lokið. Tryggð kjós­enda við einn flokk er á miklu und­an­haldi og fylgið stans­laust á fleygi­ferð. Sífellt bæt­ast ný fram­boð í flór­una, nú síð­ast Sós­í­alista­flokkur Íslands sem stofn­aður var 1. maí. Ef sá flokkur nær fót­festu er ljóst að hann mun fyrst og síð­ast taka fylgi af Vinstri grænum og Sam­fylk­ingu. Þá er hópur Fram­sókn­ar­manna að máta sig við nýtt fram­boð sem myndi hverf­ast í kringum Sigmund Davíð Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi for­mann flokks­ins sem ýtt var til hliðar í kjöl­far Wintris-máls­ins.

Það má því segja að það eina sem við vitum um þró­un­ina í íslenskum stjórn­málum á næstu miss­erum er að við vitum ekki neitt. Að öðru leyti en það að tími 4+1 kerf­is­ins er lið­inn. Og kemur lík­lega aldrei aftur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár