Fréttastjóri RÚV hafnar gagnrýni ritstjóra DV

Rakel Þor­bergs­dóttir, frétta­stjóri RÚV, sendi frá sér yfir­lýs­ingu rétt í þessu þar sem hún hafnar ummælum Eggerts Skúla­sonar, rit­stjóra DV, í leið­ara 2. febr­úar. Eggert gaf í skyn í leið­ar­anum að Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir, lög­reglu­stjór­inn í Reykja­vík, hefði verið blekkt í við­tal fyrir hádeg­is­fréttir á RÚV árið 2014.

Rakel segir frá­leitt að halda því fram að frétta­stofa Rík­is­út­varps­ins hafi á nokkurn hátt beitt blekk­ingum eða við­haft óeðli­leg vinnu­brögð. Slíkar ásak­anir stand­ist ekki skoðun.

„Ásakanir rit­stjór­ans snú­ast um við­tal við lög­reglu­stjór­ann í Reykja­vík sem spilað var í hádeg­is­fréttum laug­ar­dag­inn 22. nóv­em­ber 2014 en við­talið var tekið upp í hljóð­stofu Rík­is­út­varps­ins í gegnum síma. Öll hljóð­rituð við­töl sem frétta­stofa RÚV tekur þurfa að fara fram í gegnum hljóð­stofu (stúdíó með tækni­manni) því ekki er til bún­aður á frétta­stof­unni sem gerir frétta­mönnum kleift að hljóð­rita sím­töl í borðsíma og frétta­reglur RÚV heim­ila ekki notkun á hljóð­upp­töku úr far­síma sem við­mæl­anda er ekki kunn­ugt um. Þá hefur það aldrei tíðkast, jafn­vel þó að við­mæl­anda væri kunn­ugt um upp­töku á far­síma og sam­þykki lægi fyrir. Ljós­vaka­mið­ill við­hefur önnur vinnu­brögð en t.d. dag­blöð hvað þetta varðar því upp­takan þarf að vera úsend­ing­ar­hæf í útvarpi eða sjón­varpi og því er hljóð­ver alltaf notað.

Í þessu umrædda við­tali hafði frétta­mað­ur­inn rætt við lög­reglu­stjór­ann í far­síma sinn stuttu áður og þegar sam­þykki fyrir við­tali lá fyrir fór frétta­mað­ur­inn í hljóð­stofu og þaðan var hringt í lög­reglu­stjór­ann, venju sam­kvæmt. Upptakan er til í gögnum frétta­stof­unnar í heild sinni, rúmar 23 mín­útur. Á upp­tök­unni segir frétta­mað­ur­inn í lok við­tals að nú ætli hann að hlusta á við­talið og vera í sam­bandi enda hafði lög­reglu­stjór­inn sett það sem skil­yrði fyrir veit­ingu við­tals að hún fengi að vita hvaða hlutar þess yrðu not­aðir í frétt­ina. Áður en fréttin var birt hringdi frétta­mað­ur­inn í lög­reglu­stjór­ann og las upp hand­ritið.

Sú ályktun rit­stjóra DV um að lög­reglu­stjór­inn hafi ekki vitað að hún væri í við­tali eða að hljóð­upp­taka væri í gangi er því röng. Það stað­festir upp­takan sjálf. Þá hefur frétta­stofu aldrei borist kvörtun eða athuga­semd frá lög­reglu­stjór­anum sjálfum, hvorki fyrir 14 mán­uðum þegar við­talið var birt né núna eftir að rit­stjóri DV steig fram á rit­völl­inn með sína túlkun á sam­skiptum frétta­stof­unnar og lög­reglu­stjór­ans. Frétta­stofa hefur boðið lög­reglu­stjór­anum að koma og hlusta á upp­tök­una og það boð stendur.

Með vísan í ofan­greinda mála­vexti er frá­leitt að halda því fram að frétta­stofa Rík­is­út­varps­ins hafi á nokkurn hátt beitt blekk­ingum eða við­haft óeðli­leg vinnu­brögð. Slíkar ásak­anir stand­ast ein­fald­lega ekki skoðun,“ segir Rakel í til­kynn­ingu.

Þess ber að geta að umræddur frétta­maður vinnur nú á rit­stjórn Kjarnans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár