Fyrstu tölur í Reykajvík reyndust sannspáar, meirihlutinn er fallinn og staðan fyrir meirihlutaviðræður er snúin.
Sjálfstæðisflokkur fær sex borgarfulltrúa, Samfylking fimm, Framsóknarflokkur fjóra, Píratar þrjá, Sósíalistaflokkur tvo, Viðreisn einn, Flokkur fólksins einn og Vinstri græn einn.
Sjálfstæðisflokkurinn er áfram stærsti flokkurinn í borginni þrátt fyrir verstu úrslit í sögu flokksins. Samfylkingin tapaði sömuleiðis tveimur borgarfulltrúum. Ljóst er að Framsókn er í lykilstöðu fyrir myndun meirihluta með sína fjóra borgarfulltrúa, en flokkurinn átti ekki fulltrúa eftir borgarstjórnarkosningarnar 2018.
Framsókn er einnig sigurvegari sveitarstjórnarkosninganna á landsvísu þar sem hann bætir mest við sig. Sjálfstæðisflokkurinn á áfram flesta kjörna fulltrúa í sveitarstjórnum en flokkurinn, ásamt Miðflokknum, Samfylkingu og Viðreisn tapa allir sveitarstjórnarsætum milli kosninga.
Lokaniðurstaða í Reykjavík:
Sjálfstæðisflokkur: 24,5 prósent - 6 fulltrúar
Samfylking: 20,3 prósent - 5 fulltrúar
Framsóknarflokkur: 18,7 prósent - 4 fulltrúar
Píratar: 11,6 prósent - 3 fulltrúar
Sósíalistaflokkurinn: 7,7 prósent - 2 fulltrúar
Viðreisn: 5,2 prósent - 1 fulltrúi
Flokkur fólksins: 4,5 prósent - 1 fulltrúi
Vinstri græn: 4 prósent - 1 fulltrúi
Miðflokkurinn: 2,4 prósent
Ábyrgð framtíð: 0,8 prósent
Reykjavík, besta borgin: 0,2 prósent
Athugasemdir