Stjórnarskrárfrumvarp lagt fram á Alþingi

Sigurður Ingi Jóhanns­son for­sæt­is­ráð­herra hefur lagt fram frum­varp um breyt­ingar á stjórn­ar­skránni. R

Breyt­ing­arnar eru í sam­ræmi við til­lögur stjórn­ar­skrár­nefndar og fela í sér þrjú ný ákvæði í stjórn­ar­skrá. Nefndin lagði til að sett yrði inn almennt ákvæði um að auð­lindir nátt­úru Íslands til­heyri íslensku þjóð­inni, ákvæði um umhverf­is- og nátt­úru­vernd og ákvæði þar sem lagt er til að 15% kosn­inga­bærra manna geti knúið fram þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um lög frá Alþingi. Ekki náð­ist sam­komu­lag um ákvæði um fram­sal vald­heim­ilda í þágu alþjóða­sam­vinn­u.

Samkvæmt frum­varpi Sigurðar Inga koma þrjár nýjar greinar í stjórn­ar­skrána á eftir 78. grein hennar, um nátt­úru Íslands, auð­lindir nátt­úru Íslands og um þjóð­ar­at­kvæða­greiðslur.

Breyt­ing­arnar má sjá hér að neðan.

a. (79. gr.)
Náttúra Íslands er und­ir­staða lífs í land­inu. Ábyrgð á vernd nátt­úru og umhverfis hvílir sam­eig­in­lega á öllum og skal verndin grund­vall­ast á var­úðar- og lang­tíma­sjón­ar­miðum með sjálf­bæra þróun að leið­ar­ljósi. Stuðlað skal að því að fjöl­breytni nátt­úr­unnar sé við­haldið og vöxtur líf­ríkis og við­gangur tryggður. 
Allir skulu njóta heil­næms umhverfis. Almenn­ingi er heimil för um landið og dvöl þar í lög­mætum til­gangi. Ganga skal vel um nátt­úr­una og virða hags­muni land­eig­enda og ann­arra rétt­hafa. Mælt skal nánar fyrir í lögum um inn­tak og afmörkun almanna­réttar. 
Í lögum skal mælt fyrir um rétt almenn­ings til upp­lýs­inga um umhverfið og áhrif fram­kvæmda á það svo og til þátt­töku í und­ir­bún­ingi ákvarð­ana sem áhrif hafa á umhverfið.

b. (80. gr.)
Auð­lindir nátt­úru Íslands til­heyra íslensku þjóð­inni. Þær ber að nýta á sjálf­bæran hátt og til hags­bóta lands­mönnum öllum. Ríkið hefur eft­ir­lit og umsjón með með­ferð og nýt­ingu auð­lind­anna í umboði þjóð­ar­innar.
Nátt­úru­auð­lindir og lands­rétt­indi sem ekki eru háð einka­eign­ar­rétti eru þjóð­ar­eign. Enginn getur fengið þessi gæði eða rétt­indi tengd þeim til eignar eða var­an­legra afnota og aldrei má selja gæðin eða veð­setja. Hand­hafar lög­gjaf­ar­valds og fram­kvæmd­ar­valds fara með for­ræði og ráð­stöf­un­ar­rétt þeirra í umboði þjóð­ar­innar.
Að jafn­aði skal taka eðli­legt gjald fyrir heim­ildir til nýt­ingar nátt­úru­auð­linda og lands­rétt­inda sem eru í eigu íslenska rík­is­ins eða þjóð­ar­eign. Veiting nýt­ing­ar­heim­ilda skal grund­vall­ast á lögum og gætt skal jafn­ræðis og gagn­sæis. Slíkar heim­ildir leiða aldrei til var­an­legs eign­ar­réttar eða óaft­ur­kall­an­legs for­ræðis yfir nátt­úru­auð­lindum eða lands­rétt­indum í þjóð­ar­eign.

c. (81. gr.)
Fimmtán af hundraði kosn­ing­ar­bærra manna geta kraf­ist þess að nýstað­fest lög frá Alþingi verði borin undir þjóð­ina í almennri, leyni­legri og bind­andi atkvæða­greiðslu. Kröfuna ber að leggja fyrir ráð­herra innan sex vikna frá birt­ingu lag­anna og skal atkvæða­greiðslan fara fram í fyrsta lagi sex vikum og í síð­asta lagi fjórum mán­uðum eftir að stað­fest krafa liggur fyrir. Fjárlög, fjár­auka­lög, lög um skatta­mál­efni og lög sem sett eru til að fram­fylgja þjóð­rétt­ar­skuld­bind­ingum verða ekki borin undir þjóð­ina sam­kvæmt þess­ari máls­grein. 
Fimmtán af hundraði kosn­ing­ar­bærra manna geta enn fremur kraf­ist þess að ályktun Alþingis skv. 21. gr. verði borin undir þjóð­ina í almennri, leyni­legri og bind­andi atkvæða­greiðslu. Heimilt er með lögum, sem sam­þykkt eru með 2/3 hlutum atkvæða á Alþingi, að ákveða að sama gildi um álykt­anir sem hafa rétt­ar­á­hrif eða fela í sér mik­il­væga stefnu­mörkun. Krafan þarf að ber­ast ráð­herra innan sex vikna frá sam­þykkt Alþingis og skal atkvæða­greiðslan fara fram í fyrsta lagi sex vikum og í síð­asta lagi fjórum mán­uðum eftir að stað­fest krafa liggur fyrir.
Alþingi getur fellt úr gildi lög eða aft­ur­kallað ályktun áður en til þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu kemur og fer hún þá ekki fram.
Til þess að hnekkja lögum eða álykt­unum sam­kvæmt þess­ari grein þarf meiri hluti í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu, þó minnst fjórð­ungur kosn­ing­ar­bærra manna, að synja þeim sam­þykkis. 
Með lögum, sem sam­þykkt eru með 2/3 hlutum atkvæða á Alþingi, skal mælt nánar fyrir um upp­hafs­tíma og fyr­ir­svar und­ir­skrifta­söfn­unar, form og söfnun und­ir­skrifta, miðlun upp­lýs­inga, fram­kvæmd þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu og lausn ágrein­ings­mála fyrir dóm­stólum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár