Sótt að Trump vegna ráðningar Bannon

Stephen Bannon er veru­lega umdeildur maður sem fær bráðum skrif­stofu í Hvíta hús­inu og mikil völd. Hann hefur und­an­farin ár stýrt Breit­bart News, sem hefur verið lýst sem miðli fyrir þá sem þykir Fox News of kurt­eis og hóf­samur fjöl­mið­ill.

Ráðningu Bannon hefur verið mótmælt harðlega.
Ráðningu Bannon hefur verið mót­mælt harð­lega.

Enginn skortur er þessa dag­ana á gagn­rýni á Donald Trump, verð­andi for­seti Banda­ríkj­anna, frekar en verið hefur und­an­farna mán­uði og ár. Hann til­kynnti um fyrstu ráðn­ingar sínar sem for­seti, og hefur ráðið Reince Priebus, for­mann lands­nefndar Repúblikana­flokks­ins, í starf starfs­manna­stjóra Hvíta húss­ins. Ráðningu Priebus hefur verið fagnað af Repúblikönum, enda innsti koppur í búri þar á bæ. Hin ráðn­ingin vakti minni lukku, og miklu meiri gagn­rýni. Í starf yfir­manns stefnu­mót­unar og ráð­gjafa réði Trump nefni­lega mann að nafni Stephen Bannon. Bannon tók við stjórn­ar­taumunum á kosn­inga­bar­áttu Trumps undir það síð­asta, frá því í ágúst síð­ast­liðnum, en hann var fram að því stjórn­ar­for­maður Breit­bart News, sem er hægri­s­inn­aður fjöl­mið­ill sem hefur verið lýst sem frétta­miðli þeirra sem finnst Fox News of kurt­eis og hóf­samur fjöl­mið­ill.

„Maður sem hvetur til haturs“

Bannon er meðal ann­ars sak­aður um að hafa ýtt undir kyn­þátta­for­dóma, gyð­inga­hatur og kynja­mis­munun í starfi sínu hjá Breit­bart. Ýmsir mann­rétt­inda­hópar gagn­rýndu ráðn­ing­una strax, sem og margir Demókratar og þónokkrir Repúblikanar. Flestir þeirra ein­beittu sér þó að því að fagna hinni ráðn­ing­unni, og minnt­ust ekki á Bannon. En John Weaver, sem var kosn­inga­stjóri John Kasich í for­kosn­ing­unum og áður ráð­gjafi John McCain, tjáði sig frjáls­lega. „Rasíska, fasíska öfga­hægrið er með full­trúa nokkrum skrefum frá skrif­stofu for­set­ans. Vertu á varð­bergi Ameríka.“ 

Elizabeth Warren, hinn áhrifa­mikli öld­unga­deild­ar­þing­maður Demókrata, var meðal þeirra sem gagn­rýndi ráðn­ing­una harð­lega. „Þetta er maður sem hvetur til hat­urs, hann hefur verið lof­aður af stuðn­ings­mönnum KKK og nas­ista, og hann hefur verið for­dæmdur af rétt­inda­sam­tökum,“ sagði hún meðal ann­ars. „Forseti Banda­ríkj­anna á að for­dæma ofstæk­is­menn – ekki afhenda þeim skrif­stofu í Vest­ur­álm­unni (e. West Wing) og veita þeim völd til að taka ákvarð­anir sem varða fram­tíð lands­ins okkar. Donald Trump seg­ist vilja vera for­seti fyrir alla Banda­ríkja­menn. En ráðn­ing Bannon sýnir að hingað til er verð­andi for­set­inn Trump á sömu braut ljót­leika og sund­ur­lyndis og hann var á alla kosn­inga­bar­átt­una.“ Nancy Pelosy, leið­togi Demókrata í full­trúa­deild þings­ins, sagði að það væri ekki hægt að syk­ur­húða þá stað­reynd að búið væri að ráða hvítan þjóð­ern­is­sinna sem yfir­mann í stjórn Trump.

Bernie Sanders, keppi­nautur Hillary Clinton um útnefn­ingu Demókra­ta­flokks­ins sem for­seta­fram­bjóð­andi, tjáði sig líka um ráðn­ing­una á Bannon og segir að þjóðin ætti að vera „mjög áhyggju­full“ yfir henni. Banda­ríkin hafi barist við mis­rétti, ras­isma, karl­rembu og for­dóma gegn hinsegin fólki í hund­ruð ára, og mætti ekki við því að stíga skref til baka. „Við munum segja herra Bannon og öðrum ráð­gjöfum að við munum ekki snú­ast gegn hverju öðru. Við munum standa saman.“

Einn hópur fagnar ráðningunni

Og þessir hvítu þjóð­ern­is­sinnar og kyn­þátta­hyggju­hópar fagna ráðn­ingu hans. Fyrr­ver­andi leið­togi Ku Klux Klan, David Duke, segir að honum þyki ráðn­ingin fram­úr­skar­andi góð. „Það er gott að sjá að hann (Trump) heldur sig við mál­efnin og hug­mynd­irnar sem hann setti fram sem fram­bjóð­andi. Nú er hann verð­andi for­seti og hann heldur sig við þetta og ítrekar þessi mál­efni.“

Peter Brimelow, sem stjórnar kyn­þátta­hyggju­síðu sem heitir VDARE og ein­beitir sér aðal­lega að mik­illi harð­línu­stefnu gagn­vart inn­flytj­endum, fagn­aði líka ráðn­ing­unni við CNN og sagði hana gefa Trump teng­ingu við svo­kall­aða alt-hægri hreyf­ingu á net­inu. „Mér finnst þetta frá­bært. Geturðu ímyndað þér Mitt Romney gera þetta? Það er næstum eins og Trump sé annt um hug­myndir.“ Enn annar stjórn­andi kyn­þátta­hyggju­síðu, Brad Griffin, seg­ist telja að Bannon muni halda Trump við efnið þegar kemur að lof­orðum eins og því að byggja vegg á landa­mær­unum við Mexíkó, vísa inn­flytj­endum burt úr land­inu og hætta að taka á móti flótta­mönnum.

Leiðtogi banda­ríska nas­ista­flokks­ins, Rocky J. Suhayda, finnst ráðn­ingin til marks um alvöru Donalds Trump, en hann hafi átt von á að hann myndi ekki velja Bannon vegna mót­mæla ann­arra. „Kannski verður hann þá ekki önnur strengja­brúða...og ætlar í alvöru að rugga bátnum. Tíminn mun leiða það í ljós.“

Annað fólk innan úr kosn­ingateymi Trumps hefur líka komið honum til varnar. Kellyanne Conway, einn helsti ráð­gjafi Trump, sagði til að mynda við New York Times að fólk ætti að skoða alla fer­il­skrána hjá Bannon. Hann væri með gráðu frá Harvard, hefði verið í sjó­hernum og náð árangri í skemmt­ana­brans­anum. Hún neit­aði því að hann hefði nokkra teng­ingu við öfga­fulla hægri þjóð­ern­is­sinna. Bannon sjálfur hefur sagt að það séu vissu­lega snertifletir með þessum hópum væru gagn­rýnendur hans að „mála með of breiðum bursta.“ Þetta fólk væru föð­ur­lands­vinir sem elska landið sitt.

En hvernig er Breitbart?

Áður en Bannon fór yfir í kosn­ingateymi Trumps var mjög ljóst að hann, og Breit­bart News undir hans stjórn, styddu Trump. Í mars síð­ast­liðnum komst fjöl­mið­ill­inn í frétt­irnar í tengslum við Trump, eftir að blaða­maður þar, Michelle Fields, sak­aði þáver­andi kosn­inga­stjóra Trump um að hafa gripið í sig og ýtt sér í burtu frá Trump. Hún hætti í kjöl­far þess að fjöl­mið­ill­inn tók ekki undir hennar mál­stað, heldur birti fréttir um að hún hefði mis­skilið hlut­ina eitt­hvað. Einn rit­stjór­anna á Breit­bart, Ben Shapiro, og þónokkrir blaða­menn til við­bótar, hættu einnig. Shapiro sagði í sinni yfir­lýs­ingu að Steve Bannon væri fantur, tuddi, sem hefði svikið hug­sjón­ina sem fjöl­mið­ill­inn hefði verið stofn­aður utan um til þess að styðja annan fant, Donald Trump. Bannon hefði gert fyr­ir­tækið að eins­konar per­sónu­legri Prövdu fyrir Trump, í svo miklum mæli að hann styddi ekki einu sinni sinn eigin frétta­mann gegn enn öðrum fanti, kosn­inga­stjór­anum þáver­andi Corey Lewandowski. Þá var greint frá því að allar fréttir um Trump þyrftu að fara í gegnum Bannon sjálfan áður en þær birt­ust.

Eftir að Bannon var ráð­inn í Hvíta húsið tjáði Shapiro sig enn frekar um málið. Þá sagði hann sjálfur að Bannon hefði tekið ras­istum opnum örmum, auk þess sem hann væri hefni­gjarn og ógeð­felldur maður sem væri þekktur fyrir að atyrða bæði vini sína og hóta óvinum. Hann væri klár­ari útgáfa af Trump.

Um leið og Breit­bart studdi Trump, gagn­rýndi mið­ill­inn um leið fjöl­marga hefð­bundn­ari Repúblik­ana. Steve Bannon tók við stjórn­ar­taumunum þar árið 2012 eftir að stofn­and­inn og vinur hans Andrew Breit­bart lést. Flestir eru þeirrar skoð­unar að Bannon hafi togað mið­il­inn enn lengra til hægri en áður var, og jafn­vel íhalds­menn sem áður höfðu tengsl við Breit­bart hafa afneitað miðl­inum sem hat­ursá­róðri, sem ýti undir mis­rétti og for­dóma. New York Times hefur tekið saman nokkrar af umdeild­ustu frétt­unum sem mið­ill­inn hefur birt undir stjórn Bannon.

Meðal frétta á vefnum er þessi hér til vinstri, um að getn­að­ar­varnir geri konur óaðl­að­andi og klikk­aðar. Þá eru þar greinar um að Huma Abedin, einn helsti ráð­gjafi Hillary Clinton, sé að öllum lík­indum njósn­ari frá Sádi-Arabíu með mikil tengsl við alþjóð­lega hryðju­verka­starf­semi. Þá er talað með mjög niðr­andi hætti um trans­fólk, sam­kyn­hneigða og konur.

Meðal þess sem sagt er um konur er að það halli í raun ekk­ert á konur í ráðn­ingum í tækni­geir­anum. Þær séu bara mjög lélegar í við­tölum.

Þá er sagt að lausnin við áreiti á net­inu sé ein­föld, konur eigi ein­fald­lega að hætta á net­inu.

Einnig er talað með niðr­andi hætti um gyð­inga, og Bannon sjálfur hefur skrifað um kæru gegn yfir­manni Fox News sem plott til að auka líkur Hillary Clinton á að verða for­seti. Roger Ailes, yfir­maður á Fox, var kærður fyrir kyn­ferð­is­lega áreitni, en Bannon sagði þetta ekki bara ætlað til að auka líkur Hillary heldur líka til að gefa sam­tökum eins og Black Lives Matter „og öllum hinum klikk­haus­unum“ meira vægi.

Mót­mæl­unum vegna þess­arar ráðn­ingar virð­ist ekki vera að linna, og þegar er fjöld­inn allur af und­ir­skrifta­söfn­unum kom­inn af stað til að krefj­ast þess að Trump standi ekki við ráðn­ing­una og hleypi Bannon í þessa ábyrgð­ar­stöðu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár