Engin rök fyrir ómerkingu vegna sérfróðs meðdómanda

Engin hald­bær rök voru fyrir þeirri kröfu ákærðu í Al-Thani mál­inu að dómur yfir þeim í hér­aði yrði ómerktur vegna van­hæfis sér­fróðs með­dóm­anda sem var kvaddur til í hér­aðs­dómi. Það er nið­ur­staða Hæsta­réttar um ómerk­ing­ar­kröfu fjór­menn­ing­anna sem voru dæmdir í mál­inu í dag.

Hinir ákærðu kröfð­ust þess til vara í Hæsta­rétti að dóm­ur­inn yfir þeim yrði ómerktur, byggt á því að þeir drægu í efa óhlut­drægni og hæfi Magnúsar Bene­dikts­sonar, sem var með­dóms­maður í hér­aðs­dómi, vegna láns­við­skipta hans við Kaupþing og SPRON. Láns­við­skiptin hafi valdið því að hann hafi haft mikla per­sónu­lega hags­muni tengda Kaup­þingi, en tvö félög sem hann er mjög tengdur hafa verið tekin til gjald­þrota­skipta und­an­farin miss­eri. Kröfur í eitt þeirra hafi meðal ann­ars verið á hendi Dróma og Arion banka. Hann sé einnig á van­skila­skrá vegna skuldar við Íslands­banka.

„Um þessar rök­semdir ákærðu [um óhlut­drægni Magnúsar] er þess fyrst að gæta að engan veg­inn verður séð hvernig skuldir með­dóms­manns­ins eða félaga, sem hann á fyrri tímum hefur gegnt störfum fyrir, við Spari­sjóð Reykja­víkur og nágrennis, Dróma hf. eða Íslands­banka hf. gætu valdið í mál­inu þeirri aðstöðu, sem um ræðir,“ segir í dómi Hæsta­réttar. Sama gegni um skuld­bind­ingar gagn­vart Arion banka.

Þótt með­dóm­and­inn hafi einnig borið skuld­bind­ingar við Kaupþing „verður heldur ekki séð hvernig sú aðstaða gæti leitt til van­hæfis í mál­inu eftir nefndu laga­á­kvæði, enda hljóta lán­takar þess banka hér á landi að hafa að minnsta kosti skipt mörgum tugum þús­unda. Tengsl með­dóms­manns­ins við tvö félög, sem munu hafa verið tekin til gjald­þrota­skipta, og van­skil í einu til­viki við banka eru ekki þess eðlis að hann hafi ekki full­nægt almennum hæf­is­skil­yrðum 1. mgr. 4. gr. nefndra laga til að taka sæti með­dóms­manns. Eru því ekki hald­bær rök fyrir kröfu ákærðu um ómerk­ingu hér­aðs­dóms á þessum grunni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár