Alþjóðlegur baráttudagur kvenna: Kynjajafnrétti verði náð fyrir árið 2030

Alþjóð­legur bar­áttu­dagur kvenna er hald­inn í dag, 8. mars. Af því til­efni hefur UN Women, stofnun Sam­ein­uðu þjóð­anna sem vinnur í þágu kvenna og jafn­réttis, hleypt af stokk­unum her­ferð­inni Step It Up, eða spýtum í lóf­ana, sem miðar að því að fá stjórn­völd til þess að hraða aðgerðum í þágu jafn­réttis. Stofn­unin vill að miðað verði við að kynja­mis­rétti verði útrýmt fyrir árið 2030.

Tuttugu ár eru liðin á þessu ári frá því að fjórða heims­ráð­stefnan um mál­efni kvenna var haldin í Peking í Kína. Þar und­ir­rit­uðu 189 ríki aðgerða­á­ætlun fyrir auknu jafn­rétti kynj­anna, Peking-sátt­mál­ann. UN Women fagnar þessum tíma­mótum í dag, og vill hampa þeim sigrum sem hafa áunn­ist, en um leið brýna stjórn­völd til að gera betur.

[caption id="attachment_22291" align="alignnone" width="640"] Phumzile Mlambo-Ngcuka, fram­kvæmda­stýra UN Women, á blaða­manna­fundi vegna her­ferð­ar­innar. (MYND/UN WOMEN)[/caption]

„Jafn­rétti kynj­anna verður að nást fyrir árið 2030. Til að koma í veg fyrir að börn sem fæð­ast í dag þurfi ekki að bíða í 80 ár eftir full­komnu jafn­rétti í heim­inum, þarf að hraða fram­fara­ferl­inu. Hingað til hefur það farið fram á hraða snigils­ins. Spýtum í lóf­ana og byggjum upp heim þar sem konur, helm­ingur mannskyns, eru jafnar körlum á öllum sviðum fyrir árið 2030,“ segir Phumzile Mlambo-Ngcuka, fram­kvæmda­stýra UN Women, í ræðu sinni í til­efni dags­ins.

Stofn­unin hefur tekið saman upp­lýs­ingar um stöðu jafn­rétt­is­mála í heim­inum, eins og sjá má hér að neðan.



Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár