Alnæmisfaraldurinn gæti verið úr sögunni árið 2030 - búið að ná þúsaldarmarkmiðum

Þús­ald­ar­mark­mið Sam­ein­uðu þjóð­anna í þró­un­ar­málum um alnæmi hefur verið náð, og það á undan áætlun. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sam­eig­in­legrar áætl­unar SÞ gegn alnæmi, sem var birt í gær í tengslum við alþjóð­legu þró­un­ar­sam­vinnu­ráð­stefn­una sem nú fer fram í Eþíópíu.

Þús­ald­ar­mark­miðið um alnæmi snéri að því að stöðva ætti útbreiðslu HIV-veirunnar og fækka smitum. Nýjum HIV-smitum hefur fækkað um 35 pró­sent og dauðs­föllum tengdum alnæmi hefur fækkað um 41 pró­sent frá því að mark­miðið var sett árið 2000.

Þá var mark­mið um að árið 2015 hlytu fimmtán milljón sjúk­lingar með­ferð við HIV talið mjög óraun­sætt, en það hafð­ist. Árið 2000 smit­uð­ust 8.500 manns á hverjum degi og 4.300 manns lét­ust á dag af völdum alnæmis eða tengdra sjúk­dóma. Nú er fjöldi nýrra smita um tvær millj­ónir, en var 3,1 milljón árið 2000. Ef ekk­ert hefði verið aðgert væru þessi fjöldi lík­lega nálægt sex millj­ónum í dag.

Ban Ki-moon, fram­kvæmda­stjóri Sam­ein­uðu þjóð­anna, segir að heim­inum hafi tek­ist mark­mið sitt, að stöðva útbreiðslu og snúa við þróun alnæm­is­far­ald­urs­ins. Nú þurfi allir að leggj­ast á eitt til að binda endi á alnæm­is­far­ald­ur­inn. „Þetta þýðir að við erum að nálg­ast kyn­slóð lausa við alnæmi.“

SÞ segir skýrsl­una sýna fram á að við­brögðin við HIV hafi verið meðal gáfu­leg­ustu fjár­fest­inga sem ráð­ist hafi verið í á sviði alþjóða­heil­brigð­is­mála og þró­un­ar­mála. Með áfram­hald­andi mark­vissum aðgerðum á næstu fimm árum verði hægt að stöðva alnæmi fyrir árið 2030.

„Fyrir fimmtán árum síðan var í gangi sam­særi um þöggun. Alnæmi var sjúk­dómur „hinna“ og með­ferðir voru fyrir ríka en ekki fátæka,“ segir Michel Sidibé, fram­kvæmda­stjóri sam­eig­in­legu áætl­un­ar­innar gegn alnæmi. „Við höfum sannað að þetta var ragnt, og í dag eru fimmtán millj­ónir manna í með­ferð – fimmtán milljón vel­geng­is­sögur.“

Næstum 75 pró­sent allra þung­aðra kvenna sem lifa með HIV í heim­inum hafa nú aðgang að lyfjum sem bæta lífs­gæði þeirra og vernda börn þeirra fyrir smiti.

Eþíópía leiðir þegar kemur að því að tryggja að ekk­ert barn fæð­ist með HIV. Þar hefur smitum meðal barna fækkað um meira en 85 pró­sent á und­an­förnum 15 árum. Ban óskaði Eþíóp­íu­mönnum til ham­ingju með þann árangur og benti á að önnur ríki, eins og Senegal, hafi náð svip­uðum árangri. „Við höfum stöðvað og snúið við þessum far­aldri á heims­vísu. Engin þess­arar vel­gengni hefði átt sér stað án hug­rekkis þess fólks sem lifir með HIV. Við stöndum með ykkur.“

Ban minnti þó á að hvergi í heim­inum sé alnæmi úr sög­unni. Margir við­kvæmir hópar yrðu fyrir hindr­unum í þessum málum, ungar konur og stúlkur, fólk sem þegar sé með HIV-veiruna, sam­kyn­hneigðir karl­menn, trans­fólk, fólk sem er í vændi og fólk sem sprautar sig með eit­ur­lyfjum. „Enginn á að upp­lifa hindr­anir gegn rétti sínum til heilsu, virð­ingar og reisnar. Enginn ætti að deyja úr alnæmi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár