Enginn veit hvað átt hefur

Það var mörgum áfall þegar fréttir bárust af því um allan heim að Notre Dame-kirkjan í París stæði í ljósum logum. Til stendur að safna fyrir endur­byggingu hennar en ljóst er að gríðarleg menningar­verðmæti glötuðust að eilífu í brunanum. Þetta er þó því miður ekki í fyrsta og sennilega ekki síðasta sinn sem mannkynið tapar stórum og mikil­vægum hluta af menningar­arfi sínum á einu bretti.

Griðarstaður margra
Grið­ar­staður margra Stærstur hluti Notre Dame stendur enn og slökkvi­liðs­mönnum tókst að bjarga mörgum munum frá brun­anum, þó að ljóst sé að mikið af menn­ing­ar­verð­mætum töp­uð­ust.

Það er stundum sagt að sagn­fræðingar gráti enn brunann sem tortímdi bóka­safninu í Alexandríu í Egypta­landi en það var eitt merkasta safn heimilda sem til var um hinn forna heim. Það er hins vegar ofsögum sagt að safnið hafi fuðrað upp í heilu lagi eins og margir sjá fyrir sér í dag. Það var miklu frekar aldalöng vanræksla sem varð til þess að smám saman kvarnaðist úr safninu og byggingin tæmdist að lokum af fólki og ritum.

Um hundrað árum fyrir Krists­burð var svo komið að stjórn safnsins var almennt í höndum pólitískra afla en ekki mennta­manna eins og á árum áður. 48 árum fyrir Krist brunnu að minnsta kosti 40 þúsund fornrit í stórbruna sem var settur af stað af Júlíusi Sesar og mönnum hans skammt frá bóka­safninu. Þeir höfðu kveikt í eigin skipum í höfninni í nauðvörn en misstu stjórn á eldinum sem geisaði um alla Alexandríu …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár