Covfefe-frumvarpið lagt fram á bandaríska þinginu

Covfefe fær nýja merk­ingu í banda­rískum lögum ef nýtt frum­varp verður sam­þykkt.

Donald Trump tvítaði þessu óskiljanlega tvíti og internetið fór á hliðina.
Donald Trump tví­taði þessu óskilj­an­lega tvíti og inter­netið fór á hlið­ina. Mynd: Samsett mynd

Ef Covfefe-frum­varp demókrata á banda­ríksa þing­inu verður að lögum þá verða öll tíst og allir statusar sitj­andi for­seta skráðir eins og aðrar opin­berar yfir­lýs­ingar.

Donald Trump hefur, síðan hann tók við emb­ætti for­seta, notað sinn per­sónu­lega Twitter-reikn­ing til þess að fjalla um menn og mál­efni. Tístin hans eru oftar en ekki rudda­leg, í það minnsta harka­leg.

Ekkert tíst hefur hins vegar fengið jafn mikla athygli Covfefe-tístið sem gerði allt vit­laust aðfara­nótt 1. júní síð­ast­lið­inn. Þar hóf for­set­inn hefð­bundið tíst um „nei­kvæða fjöl­miðla“ en lauk ekki hugsun sinni heldur skrif­aði hið óskilj­an­lega „covfefe“.

For­set­inn hefur verið skot­spónn grínista síðan hann tók við emb­ætti. Steven Colbert var þess vegna einn þeirra sem tók þetta óskilj­an­lega hug­tak óstinnt upp.

Tístið fékk að standa í um það bil sex klukku­stundir þar til for­set­inn eyddi því. Enginn veit hvað „covfefe“ átti að þýða og það skiptir eflaust ekki neinu máli í stóra sam­heng­inu.

„Ég held að for­set­inn og lít­ill hópur fólks viti nákvæm­lega hvað hann var að meina,“ sagði Sean Spicer, tals­maður for­seta­emb­ætt­is­ins, þegar fjöl­miðla­menn spurðu hann út í merk­ingu „covfefe“.

[adspot]

Nú hafa demókratar á banda­ríska þing­inu ákveðið að leggja fram frum­varp sem kall­ast „Communications Over Various Feeds Electronically For Enga­gement“, skamm­stafað „COVFEFE“. Ef frum­varpið verður að lögum verða öll tíst for­set­ans og öll sam­fé­lags­miðla­sam­skipti hans skráð í opin­berar bækur, með öðrum ræðum og ritum for­set­ans á meðan hann er í emb­ætti.

Frá þessu er greint á vef frétta­stofu Reuters.

Jafnvel þó Donald Trump segi tístin sín aðeins vera „eigin skoð­anir“ en ekki „skoð­anir Hvíta húss­ins“ eða for­seta­emb­ætt­is­ins hefur Spicer sagt tístin hans vera opin­berar yfir­lýs­ingar for­seta Banda­ríkj­anna.

Meira en 32 millj­ónir manna fylgja @realDonaldTrump á Twitter. Hann hefur átt sinn per­sónu­lega aðgang í átta ár. Eftir að hann varð for­seti hafn­aði hann því að taka upp opin­beran Twitter-reikn­ing for­seta­emb­ætt­is­ins @POTUS og notar eigin Android-síma til þess að skrifa örskila­boð til umheims­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár