Sápuópera úthverfakarla býður upp á sinn óvæntasta söguþráð

Það er óhætt að segja að vend­ingar í ensku úrvals­deild­inni, vin­sæl­ustu knatt­spyrnu­deild ver­aldar, hafi orðið aðrar en búist var við fyr­ir­fram. Frá því að deildin var sett á fót árið 1992 þá hefur verið hægt, með nokk­urri vissu, að spá fyrir um hvaða lið það verði sem berj­ast um tit­il­inn hverju sinni, hvaða lið það séu sem kljást um Evr­ópu­sætin og hverjir séu lík­leg­astir til að falla. Stærstu frá­vikin frá þessu hafa verið þau þegar Wayne Rooney-laust Everton náði óvænt fjórða sæt­inu fyrir rúmum ára­tug síðan og þegar Bradford City hélt sér uppi í deild­inni um síð­ustu ald­ar­mót.

Það hafa enda ein­ungis fimm lið unnið ensku úrvalds­deild­ina. Fjögur þeirra hafa gert það oftar en einu sinni: Manchester liðin United og City, Chelsea og Arsenal. Eina liðið sem hefur troðið sér í þetta partý er Blackburn Rovers, sem hirti doll­una árið 1995 með góðri hjálp frá pen­ing­unum hans Jack Walker. Það sem meira er þá hefur ein­ungis Liverpool lent í einu af þremur efstu sætum deild­ar­innar frá árinu 2003 þegar frá eru talin ofan­greind fjögur lið.

Allar spár sem sér­fræð­ingar í enskri knatt­spyrnu, og þeir skipta þús­undum, lögðu fram í aðdrag­anda þessa tíma­bils spáðu því að þessi upp­á­halds­sápu­ópera hvítra, bjór-úr-dós-drekk­andi úthverfa­karla sem klæða sig í bún­inga og öskra á sjón­varpið hverja helgi, myndi spil­ast út með sam­bæri­legum hætti og þátt­arað­irnar á undan. Flestir spáðu Chelsea titl­inum en að Manchester-liðin og Arsenal gætu verið með vesen. Margir spáðu nýlið­unum í deild­inni, ásamt Leicester City sem bjarg­aði sér á ævin­týr­an­legan hátt árið áður, falli.

Ekkert af þessu hefur auð­vitað gengið eftir.

Hefur spilast á allt annan hátt en nokkur átti von á

Þvert á móti hefur deildin spil­ast á hátt sem eng­inn spáði fyrir um. Það reikn­aði eng­inn með því að Chelsea væri búið að tapa níu leikjum af 18 né að Manchester United væri búið að tapa fimm og væru aðeins þremur stigum fyrir ofan liðið í ell­efta sæti, sem er hið mjög ókyn­þokka­fulla Stoke City. Enginn átti von á því að West Ham ynni nán­ast öll fyr­ir­fram ákveðnu topp­liðin á úti­velli á fyrstu vikum tíma­bils­ins. Enginn átti von á því að Crystal Palace og Watford væru að berj­ast um meist­ara­deild­ar­sæti og eng­inn átti von á því að Everton og Liverpool yrðu um miðja deild þegar tíma­bilið væri hálfnað en væru samt bara fimm og sex stigum frá meist­ara­deild­ar­sæti.

Og það sem allir áttu minnst von á var auð­vitað að Leicester City, sem bjarg­aði sér með undra­verðum hætti frá falli á síð­asta tíma­bili, sem rak þjálf­ar­ann sinn eftir kyn­lífsskandall sonar hans í Tælandi skömmu fyrir tíma­bilið, sem réð fyrrum þjálf­ara gríska lands­liðs­ins í knatt­spyrnu sem náði þeim ein­staka árangri að tapa fyrir Færeyjum og sem eyddi mestum pen­ingum fyrir tíma­bilið í að kaupa hinn jap­anska Shinji Okazaki, væri á toppnum um jólin. En þannig er samt sem áður staðan.

Hreinstefnumenn byrjaðir að trúa á ný

Margir bíða eftir því að Leicester bólan springi. Sagan segir okkur hins vegar að margir megi bíða lengi. Það er nefni­lega þannig að lið sem er á toppnum um jólin hefur aldrei ekki náð meist­ara­deild­ar­sæti. Í fjögur af síð­ustu fimm árum hefur liðið á toppnum um jólin unnið tit­il­inn.

Það er ekki ofsögum sagt að Leicester-ævin­týrið sé að end­ur­vekja trú margra hrein­stefnu­manna á því að enn sé von fyrir knatt­spyrnu­heim­inn þrátt fyrir inn­reið og yfir­töku óheyri­legra pen­inga á und­an­förnum árum sem hafa, því miður, allt of oft gert nið­ur­stöður deild­ar­keppna allt of fyr­ir­sjá­an­lega.

Það er Mighty Ducks-fílíngur í kringum Leicester og allir áhan­gendur liða sem eru ekki að berj­ast í toppnum vona að þeir vinni deild­ina. Liðið er frá mið-Englandi, frá lít­illi borg sem er þekkt­ust fyrir að fram­leiða Walkers-kart­öflu­flögur. Svæðið þykir afar óspenn­andi og helstu fjendur liðs­ins eru Nott­ing­ham Forest. Liðið er í eigu tælensku Srivadd­hanaprabha-fjöl­skyld­unnar og er stýrt af fikt­ar­anum fræga, Claudio Ranieri, sem hefur aldrei unnið deild­ar­titil á um 30 ára ferli sem þjálf­ari þrátt fyrir að hafa stýrt stór­liðum á borð við Napoli, Fior­ent­ina, Valencia, Atletico Madrid, Chelsea, Parma, Juventus, Roma, Inter Milan og Monaco.

Byrj­un­ar­liðið er sam­an­sett af mönnum eins og Danny Simpson, Danny Drinkwater, Robert Huth og Kasper Schmeichel sem náðu aldrei að sanna sig hjá stærri liðum, ódýrum erlendum leik­mönnum á borð við N´Golo Kanté, Christian Fuchs og Riyad Mahrez sem stærri lið í ensku deild­inni litu ekki við fyrir örfáum mán­uðum síðan en eru nú til­búin að borga tugi millj­óna punda fyrir og auð­vitað verka­manna­stétt­ar­hetj­unni sjálfri, Jamie Vardy.

„Chat shit get banged“

Margir sem fylgj­ast með enskri knatt­spyrnu vita að Vardy var að leika með Fleetwood í utandeild­inni fyrir þremur árum síðan. Að hann var að leika með Stocksbridge Park Steels í sjö­undu efstu deild fyrir sjö árum síðan. Að hann var dæmdur fyrir hlut­deild í lík­ams­árás árið 2007 og þurfti að bera ökkla­band í sex mán­uði í kjöl­farið. Að hann setti inn óskilj­an­lega stöðu­upp­færslu á Twitter haustið 2011 þar sem stóð „Chat shit get banged“ og að sá frasi hafi fylgt honum alla tíð síðan. Að hann hafi kallað jap­anskan mann ítrekað „Jap“ á spila­víti í aðdrag­anda tíma­bils­ins sem leiddi til þess að hann þurfti að biðj­ast opin­ber­lega afsök­unar á kyn­þátta­hatri sínu.

En það sem allir aðdá­endur enskrar knatt­spyrnu vita er að Jamie Vardy er marka­hæstur í deild­inni með 15 mörk í 18 leikjum. Að Vardy er ein­ungis fimmti leik­mað­ur­inn í sögu ensku úrvals­deild­ar­innar til að vera val­inn leik­maður mán­að­ar­ins tvo mán­uði í röð. Að hann hafi bætt met Ruud Van Nistelrooy með því að skora í ell­efu deild­ar­leikjum í röð og með því að vera val­inn í enska lands­liðið, og spila sína fyrstu leiki með því, 28 ára gam­all síð­asta sumar. Vardy, sem verður 29 ára í jan­úar, er nú orð­aður við Chelsea, Manchester United og Manchester City í jan­ú­ar­glugg­anum. Talið er að hann myndi kosta um 30 millj­ónir punda. Og Hollywood er að und­ir­búa kvik­mynd um hann.

Hér að neðan má sjá Vardy skora fyrir Stockbridge fyrir sex árum síðan:

Óvæntustu úrslit sögunnar (staðfest)

En það er ekki bara Leicester og Vardy sem hafa snúið öllu á haus í ensku deild­ar­keppn­inni. Það virð­ist vera eins og allir geti raun­veru­lega unnið alla. Þ.e. nema Aston Villa, eitt þeirra sjö liða sem aldrei hefur fallið úr úrvalds­deild­inni. Þeir virð­ast ekki geta unnið neinn og ef/þegar Aston Villa fellur þá verður það einn við­burð­ur­inn sem verður sögu­legur við yfir­stand­andi tíma­bil.

The Economist tók nýverið saman ítar­lega grein­ingu á þeim úrslitum sem orðið hafa á þessu tíma­bili og kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að þau séu þau óvænt­ustu í sög­unni. Þ.e. út frá veð­mála­stuðlum. Þegar greinin birt­ist 19. des­em­ber höfðu 42 af 160 leikjum sem þegar höfðu verið leiknir í ensku úrvals­deild­inni unn­ist af lið­inu sem var með verri vinn­ings­líkur sam­kvæmt stuðlum veð­mála­fyr­ir­tækj­anna.

Margir velta fyrir sér hvað valdi. Og margir kom­ast að sömu nið­ur­stöðu: pen­ingar.

Gjörbreytt staða

Und­an­farna rúma tvo ára­tugi hafa pen­ingar getað keypt árangur. Það er stað­reynd. Skamm­vinnur árangur Blackburn á tíunda ára­tugnum, og árangur Chelsea og Manchester City á und­an­förnum árum er lif­andi sönnun þess. Syk­ur­pabbar hafa dælt fé inn í félögin sem hafa gert þeim kleift að kaupa marga af bestu leik­mönnum heims, ráð­ast í stór­kost­legar inn­viða­fjár­fest­ingar og eyða for­múu í ýmis­konar mark­aðs­setn­ingu til að auka tekju­streymið.

Þessi staða hefur á und­an­förnum árum gert það að verkum að „minni“ liðin í deild­inni, og er þar átt við c.a. 15 lið af 20, hafa ekki getað haldið sínum bestu leik­mönnum þegar „stærri“ liðin bönk­uðu upp á. Fjár­hags­staðan, sem var nán­ast án und­an­tekn­ingar í járnum vegna þeirra launa sem þarf að greiða leik­mönnum í efstu deild, leyfði ein­fald­lega ekki annað.

Þetta hefur nú breyst. Í dag eru vissu­lega sum lið miklu rík­ari en önnur í deild­inni. En öll liðið eru samt sem áður rík, geta leyft sér að kaupa leik­menn fyrir tugi millj­óna punda á hverju ári og ýtt frá sér risa­stórum til­boðum í stjörnu­leik­menn sína. Það sást vel í fyrra­sumar þegar Everton tók ekki í mál að selja John Stones til Chelsea fyrir á fjórða tug millj­óna punda og þegar WBA stóð fast í lapp­irnar gagn­vart til­raunum Totten­ham til að kaupa Saido Berahino.

Ástæða þess­arrar breyt­ingar er ein­föld: Stærsti sjón­varps­rétt­ar­samn­ingur í sögu evr­ópskrar íþrótta­deildar sem tekur gildi að loknu þessu tíma­bili.

Peningarnir bjarga knattspyrnunni frá peningunum

Umfang sjón­varps­rétt­ar­samn­inga hefur eðli­lega auk­ist gríð­ar­lega sam­hliða auknum vin­sældum ensku úrvals­deild­ar­innar og fleiri kepp­ast nú um að kom­ast yfir rétt­inn en áður. Í byrjun þessa árs var gerður nýr samn­ingur sem er að mörgum talin nærri galin. Þá var rétt­ur­inn fyrir árin 2016-2019 seldur fyrir 5,2 millj­arða punda. Það þýðir að Sky Sports og BT Sport, sem keyptu rétt­inn, borga meira en tíu milljón pund fyrir hvern leik sem stöðv­arnar sýna.

Til sam­an­burðar má nefna að samn­ing­ur­inn sem var í gildi fyrir árin 2013 til 2016 kost­aði um þrjá millj­arða punda. Og þegar úrvals­deildin var sett á fót árið 1992 var sjón­varps­rétt­ur­inn seldur til sex ára fyrir 191 milljón punda. Til að setja þann vöxt á sölu­tekjum sjón­varps­réttar í sam­hengi þá fengu liðin í deild­inni sam­tals 32 millj­ónir punda á með­al­tali á árið á tíma­bil­inu 1992 til 1997. Á árunum 2016 til 2019 fá þau um 1,3 millj­arða punda til skipt­anna.

Til við­bótar segja enskir fjöl­miðlar að salan á alþjóð­legum sýn­ing­ar­rétti á enska bolt­anum muni skila ensku úrvals­deild­inni þremur millj­örðum punda á samn­ings­tím­anum. Samtals verður rétt­ur­inn því seldur fyrir um eitt þús­und og sex­hund­ruð millj­arða íslenskra króna. Eina íþrótta­deildin í heim­inum sem þénar meira vegna seldra sjón­varps­rétta er banda­ríska NFL-deildin.

Það má því vel velta því fyrir sér, í ljósi þess sem á hefur gengið í ensku úrvalds­deild­inni á þessu tíma­bili, hvort pen­ingar hafi bjargað knatt­spyrn­unni frá pen­ing­unum. Sama afl og mörgum fannst vera að eyði­leggja knatt­spyrn­una virð­ist nú vera að breyta henni á ný.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár