Guðmundur Árni leiðir hjá Samfylkingunni í Hafnarfirði

29 árum eftir að hann hætti sem bæj­ar­stjóri í Hafn­ar­firði mun Guð­mundur Árni Stef­áns­son leiða lista Sam­fylk­ing­ar­innar í sveit­ar­fé­lag­inu í kom­andi sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum. Hann tók síð­ast virkan þátt í póli­tík árið 2005.

Guðmundur Árni Stefánsson.
Guð­mundur Árni Stef­áns­son. Mynd: Facebook-síða Guðmundar Árna Stefánssonar.

Guð­mundur Árni Stef­áns­son, fyrr­ver­andi bæj­ar­stjóri Hafn­ar­fjarðar, mun leiða lista Sam­fylk­ing­ar­innar í sveit­ar­fé­lag­inu í kom­andi sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum. Hann sigr­aði í flokksvali flokks­ins í dag með yfir­burðum. Alls fékk Guð­mundur Árni 537 atkvæði í fyrsta sæti list­ans, en alls greiddu 962 atkvæði. Í öðru sæti var Sigrún Sverr­is­dóttir með 290 atkvæði í fyrsta til annað sætið og Árni Rúnar Þor­valds­son, sem sótt­ist einnig eftir odd­vita­sæt­inu, varð í þriðja sti með 485 atkvæði í fyrsta til þriðja sætið.

Hildur Rós Guð­bjargs­dóttir varð í fjórða sæti, Stefán Már Gunn­laugs­son í þvi fimmta og Kolbrún Magn­ús­dóttir í sjötta. Kosn­ingar í sex efstu sætin eru bind­andi. Sam­fylk­ingin er sem stendur í minni­hluta í Hafn­ar­firði þar sem meiri­hluti Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks ræður ríkjum.

[adspot]Guð­mundur Árni til­kynnti nokkuð óvænt um end­ur­komu sína í stjórn­mál fyrir um mán­uði síðan. Í stöðu­upp­færslu á Facebook sagð­ist hann vera viss um að Sam­fylk­ingin geti orðið stærsti flokkur bæj­ar­ins. „Fái ég stuðn­ing flokks­fé­laga minna í próf­kjör­inu, þá stefni ég óhikað að því að Sam­fylk­ing vinni góðan sigur í bæj­ar­stjórn­ar­kosn­ingum í maí og tvö­faldi bæj­ar­full­trúa­tölu sína, þ.e. úr tveimur í fjóra. Og að afloknum kosn­ingum geti Sam­fylk­ingin í góðu sam­starfi við aðra flokka tekið við for­ystu um stjórn bæj­ar­ins.“

Guð­mundur Árni, sem verður 67 ára í haust, hefur áður verið leið­andi afl í bæj­ar­stjórn­arpóli­tík í Hafn­ar­firði. Hann sat í bæj­ar­stjórn í tólf ár á síð­ustu öld, þar af sem bæj­ar­stjóri í sjö. Guð­mundur Árni steig upp úr þeim stóli 1993, fyrir 29 árum síð­an, og sett­ist á þing í kjöl­farið fyrir Alþýðu­flokk­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2022

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár