Lögreglan hefur ekki sérstaka heimild til að nota njósnabúnað

Íslenska lög­reglan hefur ekki haft við­skipti við hið ítalska Hacking Team sem fram­leiðir njósn­a­búnað fyrir snjall­síma. Þetta segir í til­kynn­ingu lög­regl­unnar eftir að greint var frá því lög­reglan hafi átt tölvu­sam­skipti við fyr­ir­tækið um slíkan búnað.

Reykja­vik Grapevine sagði frá því í gær að í gögnum frá Wikileaks kæmi fram að tveir íslenskir lög­reglu­menn hefðu átt í tölvu­póst­sam­skiptum árið 2011 við Hacking Team og meðal ann­ars óskað eftir því að kom­ast á póst­lista fyr­ir­tæk­is­ins. Í tölu­vpóst­unum má finna sam­skipti milli rann­sókn­ar­lög­reglu­manns­ins Ragnars Ragn­ars­sonar hjá tölvu­rann­sókna- og raf­einda­deild lög­reglu höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og starfs­manns Hacking Team, þar sem íslenska lög­reglan spyrst fyrir um njósn­a­for­rit fyrir snjall­síma.

Hörður Helgi Helgason, lög­maður og fyrr­ver­andi for­stjóri Per­sónu­verndar, sagði svo í sam­tali við RÚV í dag að engin sér­stök laga­heim­ild væri til sem leyfði lög­reglu að koma njósn­a­bún­aði fyrir í far­símum almenn­ings.

Til eru ákvæði í lögum um fjar­skipti sem fjalla um per­sónu­upp­lýs­ingar og frið­helgi einka­lífs auk ákvæða um með­ferð saka­mála þar sem sím­hlustun er til­tekin, sagði Hörður Helgi. Lögreglu er því heim­ilt að hlera sím­töl og fá upp­lýs­ingar um sím­notkunn í ákveðnum til­fellum. Ætli lög­regla að nota búnað sem sam­svarar njósn­a­bún­aði Hacking Team verður það undir dóm­ara komið að úrskurða um hvort bún­að­ur­inn falli undir þessi laga­á­kvæði.

RÚV greinir einnig frá því að bún­að­ur­inn geti auð­veldað mann­rétt­inda­brot. Bún­að­ur­inn geti fyglst með öllum aðgerðum í snjall­símum; sím­tölum, sam­tölum, stað­setn­ingu, umhverf­is­hljóðum, gögnum á sím­anum og notkun sam­fé­lags­miðla.

„Mjög margir líta niður á þessi fyr­ir­tæki, bæði Hacking Team og Fin­fis­her, vegna þess að þau bein­línis vinna við að auð­velda mann­rétt­inda­brot,“ segir Smári McCarthy, tækni­stjóri hjá Organized Crime and Corruption Report­ing Project, í sam­tali við RÚV.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár