Ísland ekki meðal þeirra sem settu sig upp á móti kröfum þróunarríkja

Ísland setti sig ekki upp á móti kröfum þró­un­ar­ríkj­anna um upp­færslu skatta­nefndar Sam­ein­uðu þjóð­anna á alþjóð­legri ráð­stefnu um fjár­mögnun þró­un­ar­sam­vinnu, sem lauk í vik­unni. Þetta kemur fram í svari utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans. Fjórir full­trúar frá Íslandi voru á ráð­stefn­unni, þar á meðal Gunnar Bragi Sveins­son utan­rík­is­ráð­herra.

Í gær greindi Kjarninn frá því að þró­un­ar­ríkin börð­ust fyrir því á ráð­stefn­unni að skatta­nefnd Sam­ein­uðu þjóð­anna yrði breytt og hún efld til þess meðal ann­ars að tryggja að stór­fyr­ir­tæki nýti sér ekki spill­ingu og lélega laga­setn­ingu í fátækjum ríkjum. Utan­rík­is­ráðu­neytið sagði einnig frá því að mörg vest­ræn ríki voru á móti þessum breyt­ingum, og færðu þau rök fyrir því að OECD fari nú þegar með alþjóð­leg skatta­mál auk þess sem öllum þró­un­ar­ríkjum bjóð­ist að starfa með Alþjóð­legum vett­vangi um gagn­sæi og upp­lýs­inga­skipti í skatta­málum.

Nið­ur­staðan varð mála­miðlun, þar sem skatta­nefndin mun fjölga starfs­dögum sínum og fá aukið fjár­magn, en aðrar rót­tæk­ari breyt­ingar verða ekki gerðar á nefnd­inni. Þetta hefur verið gagn­rýnt af alþjóð­legum mann­úð­ar­sam­tökum, sem telja að ekki sé nóg gert til að laga skatta­mál fátæku fólki í hag.

Ísland var ekki meðal þeirra vest­rænu ríkja sem setti sig upp á móti kröfu þró­un­ar­ríkj­anna. „Utan­rík­is­þjón­ustan leit­aði sam­ráðs við fagráðu­neyti á öllum stigum samn­inga­við­ræðn­anna, þ.m.t. fjár­mála­ráðu­neytið sem fer með skatta­mál. Ísland setti sig ekki upp á móti kröfum þró­un­ar­ríkj­anna um upp­færslu skatta­nefnd­ar­innar en nið­ur­staða samn­ing­anna sem kveður á um styrk­ingu og aukin umsvif nefnd­ar­innar er skýr mála­miðlun þeirra sem sterk­ustu afstöð­una höfðu, þ.e. ríkja á borð við Banda­ríkin og Japan meðal vest­rænu ríkj­anna og Indlands meðal þró­un­ar­ríkja,“ segir í svari utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans.

„Í loka­nið­ur­stöð­unni er kveðið skýrt á um að upp­ræta þurfi ólög­mætt flæði fjár­magns og und­an­skot frá skatti, þ.m.t. af hálfu stórra alþjóð­legra fyr­ir­tækja. Sérstök athygli er vakin á þeirri vinnu sem þegar fer fram á þessum vett­vangi, þ.m.t. hjá Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðnum og OECD og Alþjóð­lega vett­vangs­ins um gagn­sæi og upp­lýs­inga­skipti í skatta­málum (Global Forum on Transparency and Exchange of Information for Tax Purposes).“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár