Lögregla fór fram á að komið yrði í veg fyrir myndatökur – Isavia biðst afsökunar

Isavia segir að lög­regla hafi sagt starfs­mönnum örygg­is­gæsl­unnar á Kefla­vík­ur­flug­velli að koma í veg fyrir mynda­tökur fjöl­miðla af aðgerð rík­is­lög­reglu­stjóra í nótt, þar sem 15 umsækj­endur um alþjóð­lega vernd voru fluttir úr landi.

Fjögur ökutæki lýsa hér á myndatökumann RÚV, sem var að reyna að ná fréttamyndum af aðgerðum yfirvalda á Keflavíkurflugvelli.
Fjögur öku­tæki lýsa hér á mynda­töku­mann RÚV, sem var að reyna að ná frétta­myndum af aðgerðum yfir­valda á Kefla­vík­ur­flug­velli. Mynd: Skjáskot/RÚV

Lögregla fór fram á það við starfs­menn örygg­is­gæslu Isavia að komið yrði í veg fyrir mynda­tökur af lög­reglu­að­gerð­inni á Kefla­vík­ur­flug­velli í nótt, er stoð­deild rík­is­lög­reglu­stjóra flutti 15 umsækj­endur um alþjóð­lega vernd úr landi og til Aþenu í Grikk­landi með leiguflugi.

Isavia seg­ist í yfir­lýs­ingu harma að hafa hindrað störf fjöl­miðla með þessum hætti, en að það sé ekki hlut­verk starfs­fólks örygg­is­gæslu flug­vall­ar­ins að meta lög­mæli fyr­ir­mæla lög­reglu.

„Að mati Isavia er það ekki hlut­verk örygg­is­gæslu flug­vall­ar­ins að hindra störf fjöl­miðla. Isavia harmar að það hafi gerst í nótt og biðst afsök­unar á því. Isavia mun fara yfir þessa fram­kvæmd með lög­reglu,“ segir í yfir­lýs­ingu frá Isavia, sem barst laust fyrir hádegi.

Í frétt á vef RÚV sést hvernig allt að fjögur öku­tæki innan flug­vall­ar­svæð­is­ins beindu köst­urum sínum að mynda­tökuteymi rík­is­fjöl­mið­ils­ins, sem stað­sett var fyrir utan flug­vall­ar­svæðið. Það hafði þær afleið­ingar, í næt­ur­myrkr­inu, að ekki var hægt að sjá hvað fór fram inni á flug­braut­inni.

Ætluðu að vísa 28 manns úr landi – fundu ekki 13

Embætti rík­is­lög­reglu­stjóra sendi frá sér frétta­til­kynn­ingu um þennan hóp­brott­flutn­ing umsækj­enda um alþjóð­lega vernd á tólfta tím­anum í dag. Í þeirri til­kynn­ingu kemur fram að alls hafi staðið til að fylgja 28 manns til Grikk­lands í nótt, en að þrettán þeirra hafi ekki fund­ist er þeirra var leitað.

Brott­flutn­ingur að minnsta kosti hluta þess hóps sem fór úr landi í nótt hefur verið gagn­rýndur, þar sem í hópnum voru ein­stak­lingar sem eru nú að bíða eftir nið­ur­stöðu kæru­nefndar útlend­inga­mála eða dóm­stóla varð­andi end­ur­upp­töku mála sinna.

„Í stað þess að stjórn­völd bíði eftir nið­ur­stöðu kæru­nefndar [út­lend­inga­mála] sem er vænt­an­leg á allra næstu dögum að þá er drifið í því, og eytt fjár­munum og mann­afla í það, að elta uppi og færa úr landi aðila sem mögu­lega eiga eftir að fá mál sín end­ur­upp­tek­in,“ sagði Magn­ús Norðdahl lög­maður í sam­tali við Kjarnann í gær.[links]

Í til­kynn­ingu frá rík­is­lög­reglu­stjóra segir að þegar umsækj­endur um alþjóð­lega vernd hafi fengið end­an­lega nið­ur­stöðu sinna mála hjá Útlend­inga­stofnum sé þeim tjáð að þeim verði gert að yfir­gefa landið.

Útlend­inga­stofnun heldur úti „verk­beiðna­lista“ um brott­flutn­ing úr landi fyrir stoð­deild rík­is­lög­reglu­stjóra, og segir emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra að ein­stak­lingar séu ekki fjar­lægðir af þeim lista nema fyrir beiðni Útlend­inga­stofn­unar.

Hafi fengið hjólastól með sér úr landi

Embætti rík­is­lög­reglu­stjóra segir í til­kynn­ingu sinni að unnið hafi verið að þeirri aðgerð sem fram­kvæmd var í nótt í tæpan mánuð, og að allir sem fóru úr landi hafi átt kost á því að yfir­gefa landið á eigin vegum.

Þá er tekið fram í til­kynn­ingu emb­ætt­is­ins að Hussein Hussein, fatl­aður maður frá Írak, sem þarf að nota hjóla­stól, hafi fengið hjóla­stól með sér á áfanga­stað í Grikk­landi. Einnig er tekið fram að engin börn hafi verið í flug­inu sem fór í morgun og að ekki sé verið að und­ir­búa flutn­ing neinna barna til Grikk­lands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár