Hyggst ræða harkalegar aðgerðir lögreglu á nefndarfundi

Þing­maður Vinstri grænna hyggst ræða harka­legar aðgerðir lög­reglu gagn­vart mót­mæl­endum í gær á fundi stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar eftir hádegi í dag.

Flóttafólk mótmælti 13. febrúar síðastliðinn
Flótta­fólk mót­mælti 13. febr­úar síð­ast­lið­inn Mynd: Bára Huld Beck

Kolbeinn Ótt­ars­son Proppé, þing­maður Vinstri grænna, hyggst ræða harka­legar aðgerðir lög­reglu gagn­vart mót­mæl­endum í gær á fundi stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar eftir hádegi í dag. Frá þessu greinir hann í stöðu­upp­færslu á Facebook-síðu sinni í morgun.

Hæl­is­leit­endur og flótta­menn voru sam­an­komnir á Aust­ur­velli í gær til að krefj­ast úrbóta á aðbún­aði sínum og máls­með­ferð sinni en lög­reglan not­aði piparúða á mót­mæl­endur og hand­tók tvo þeirra. Aðal­varð­stjóri hjá Lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu segir að til átaka hafi komið þegar lög­regla taldi að verið væri að setja upp bál­köst. Mót­mæl­andi segir að fólkið hafi aðeins ætlað að skrifa á skilti þegar lög­reglan greip inn í.

Mótmælin héldu áfram í gær­kvöldi fyrir utan lög­reglu­stöð­ina en sam­kvæmt frétt Vísis söfn­uð­ust um 50 til 60 manns þar saman. Þeir sem hand­teknir voru voru leystir úr haldi seinna um kvöldið.

„Ansi finnst manni þetta harka­legar aðgerðir. Hér er fólk að nýta rétt sinn til að mót­mæla og erfitt er að sjá hvað kallar á þessa hörku. Mér finnst ein­boðið að þetta verði tekið upp á vett­vangi þings­ins og mun spyrj­ast fyrir um þetta á fundi stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar í dag og fá leið­bein­ingar um hvort þetta eigi heima á borði hennar; mót­mælin beindust jú gegn þingi og stjórn­völdum. Þetta er við­kvæm­asti hóp­ur­inn í okkar sam­fé­lagi og ég tel að við eigum að gera gang­skör í því að bæta aðbúnað hans og mæta honum með skiln­ingi og mánnúð, ekki hörku og piparúða,“ skrifar Kolbeinn.

Ekkert tilefni til harkalegra viðbragða

Logi Már Ein­ars­son, þing­maður og for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, furð­aði sig jafn­framt á aðgerðum lög­reglu á mót­mælum hæl­is­leit­enda í gær. Ekkert til­efni hefði verið til harka­legra við­bragða.

Á Facebook-síðu sinni sagði Logi að hann hefði orðið vitni af „óvenju­lega harka­legum“ við­brögðum lög­reglu sem hann sagði beint að hópi í afar veikri stöðu. Hann minnt­ist þess ekki að til­tölu­lega fámennum mót­mælum hefði áður verið mætt með slíkum aðgerðum og sagð­ist ekk­ert hafa séð sem hefði gefið til­efni til slíkra aðgerða.

„Þetta bæt­ist við sífelldar þreng­ingar reglu­gerða dóms­mála­ráð­herra í mál­efnum hæl­is­leit­enda og flótta­manna og boðað frum­varps hennar um sömu hópa, sem eru mikil aft­ur­för.

Er nema von að maður spyrji á hvað leið stjórn­völd eru og hvort hún sé farin með sam­þykki VG?“ skrif­aði Logi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár