Fjármálaráðuneytið stendur við gagnrýni á húsnæðisbætur

Gagnrýni fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins á hús­næð­is­bóta­frum­varp félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra stendur að miklu leyti óbreytt, þrátt fyrir breyt­ingar sem gerðar hafa verið á frum­varp­inu frá því að það var lagt fram fyrst á síð­asta þingi. Breyt­ing­arnar sem hafa verið gerðar eru þess eðlis að þær hafa ekki telj­andi áhrif á áætl­aða útgjalda­aukn­ingu og ekki heldur telj­andi áhrif á rétt­indi ein­stakra bóta­þega, segir fjár­mála­ráðu­neytið í umsögn sinni um frum­varpið.

Frumvarp Eyglóar Harð­ar­dóttur um hús­næð­is­bætur, sem hefur verið lagt fram í annað sinn, bygg­ist að hluta til á til­lögum verk­efn­is­stjórnar um fram­tíð­ar­skipan hús­næð­is­mála og einnig á til­lögum vinnu­hóps um hús­næð­is­bætur. Því er ætlað að vera liður í því að jafna hús­næð­is­stuðn­ing hins opin­bera við ólík búsetu­form og stuðla að raun­veru­legu vali um búsetu­form. Það á líka að koma til móts við þau heim­ili sem hafa lægstar tekjur og auka stuðn­ing við efna­minni leigj­endur. Gert er ráð fyrir því í frum­varp­inu að grunn­bæt­urnar hækki í 31 þús­und krónur á mán­uði. Frum­varpið hefur eðli máls­ins sam­kvæmt verið afgreitt úr rík­is­stjórn­inni, og hefur þá vænt­an­lega verið sam­þykkt af fjár­mála­ráð­herra.

Hagnast efnamiklum meira, öryrkjum, öldruðum og tekjulágum minna

Fjár­mála­ráðu­neytið hefur engu að síður sett fram ýmsar efa­semdir um frum­varpið. Samkvæmt frum­varp­inu mun ríkið taka yfir greiðslur almennra hús­næð­is­bóta en sveit­ar­fé­lögin verða áfram með sér­stakar húsa­leigu­bætur. Þetta segir ráðu­neytið flækja ferlið fyrir þá sem fá báðar teg­undir bóta, enda þarf þá að sækja um og fara í gegnum ferlið á tveimur stöðum. Þá er sagt í umsögn ráðu­neyt­is­ins að það sé veiga­mik­ill ágalli í frum­varp­inu að ekki liggi fyrir verka­skipta­sam­komu­lag á milli rík­is­ins og sveit­ar­fé­laga um fjár­hags­leg sam­skipti um þessi mál.

Einnig bendir fjár­mála­ráðu­neytið á það að með breyt­ing­unum mun líf­eyrir aldr­aðra og öryrkja koma til skerð­inga á bótum, en þessar greiðslur eru núna und­an­þegnar skerð­ingum á húsa­leigu­bótum. Þá mun hækkun á hús­næð­is­bótum hlut­falls­lega hagn­ast þessum hópum minna en þeim sem eru vinn­andi eða í námi. Ástæðan er sú að húsa­leigu­bóta­kerfið verður gert lík­ara vaxta­bóta­kerf­inu með breyt­ing­unum, og allar skatt­skyldar tekjur þannig taldar til skerð­inga, til þess að gæta meira jafn­ræðis og sam­ræmis í tekju­tilliti kerf­is­ins.

Þá segir fjár­mála­ráðu­neytið áfram að breyt­ing­arnar muni leiða til „miklu meiri hlut­falls­legrar hækk­unar“ með­al­bóta hjá þeim efna­meiri en þeim efna­minni. Með­al­hækkun bóta hjá ein­stak­lingum og ein­stæðum for­eldrum með minna en fimm millj­ónir í árs­tekjur verður 28% en hjá þeim sem hafa meira en fimm millj­ónir verður hækk­unin 78%. Þetta sam­rým­ist ekki mark­mið­inu um að auka stuðn­ing við efna­minni leigj­endur.

Hvati til leigusala að hækka verð

Fjár­mála­ráðu­neytið segir einnig að auk­inn stuðn­ingur með hækkun hús­næð­is­bóta myndi hvata fyrir leigu­sala til þess að hækka leigu­verðið með hlið­sjón af auk­inni eft­ir­spurn eða greiðslu­getu. Þegar ástandið sé eins og nú er á leigu­mark­aði „eru allar líkur á að stór­auk­inn rík­is­stuðn­ingur í formi nið­ur­greiddrar leigu muni fljót­lega leiða til hækk­unar á leigu­verði. Þannig má leiða líkur að því að þessi aukni hús­næð­is­stuðn­ingur muni skila ábata í meiri mæli til leigu­sala en til leigj­enda og að hætt verði við því að staða leigj­enda batni ekki að því marki sem gert er ráð fyrir í frum­varp­inu, a.m.k. ekki til skemmri tíma litið,“ segir fjár­mála­ráðu­neytið.

Ekki ákveðið hvaða stofnun sér um bæturnar

Fjár­mála­ráðu­neytið vekur sér­stak­lega athygli á nokkrum breyt­ingum sem gerðar hafa verið á frum­varp­inu á milli ára. Fyrir það fyrsta liggur ekki fyrir hvaða stofnun á að ann­ast fram­kvæmd hús­næð­is­bóta fyrir hönd rík­is­ins þrátt fyrir að frum­varp­inu sé ætlað að taka gildi á næsta ári. Í fyrri útgáfu frum­varps­ins var gert ráð fyrir því að Trygg­inga­stofnun myndi sjá um fram­kvæmd­ina á þessu.

Önnur breyt­ing sem gerð hefur verið er að lagt er til að ráð­herra geti breytt skerð­ing­ar­hlut­falli vegna tekna og eigna með reglu­gerð, en þetta telur fjár­mála­ráðu­neytið afar óheppi­legt. Þannig væri komið á fyr­ir­komu­lagi þar sem fram­kvæmd­ar­vald­inu væri heim­ilt með reglu­gerð að gera veiga­miklar breyt­ingar á húsa­leigu­bóta­kerf­inu sem gætu hvort sem er falið í sér veru­lega aukin eða minnkuð til­færslu­fram­lög til ein­stak­linga og heim­ila úr rík­is­sjóði án þess að það komi til ákvörð­unar á Alþingi. Slíkar breyt­ingar eigi ein­ungis að vera hægt að gera með laga­breyt­ingu með sama hætti og öll önnur bóta­kerfi, eins og vaxta­bætur, barna­bætur og elli- og örorku­líf­eyri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár