Hefur kostað meira en milljarð að rukka vegfarendur við Hvalfjarðargöngin

Launa­kostn­aður við að rukka veg­far­endur í Hval­fjarð­ar­göngin er orð­inn meira en millj­arður króna. Rík­is­stjórnin stefnir á aukna gjald­töku á þjóð­vegum. GAMMA hvetur til einka­fram­kvæmda. Rík­is­end­ur­skoðun taldi einka­fram­kvæmd ekki vera hag­stæð­ari kost.

Jón Gunnarsson
Jón Gunn­ars­son Nýr sam­göngu­ráð­herra vill rukka veg­far­endur um gjald til að fjár­magna vega­fram­kvæmdir. Mynd: Pressphotos

Sú ákvörðun að fá einka­að­ila til að sjá um gerð Hval­fjarð­ar­gang­anna hefur haft í sér við­var­andi launa­kostnað vegna gjald­heimtu. Frá árinu 1999 hafa að með­al­tali níu stöðu­gildi að jafn­aði séð um að rukka veg­far­endur dag og nótt. Kostn­að­ur­inn hefur verið 55 til 87 millj­ónir króna á ári. Í fyrra var kostn­að­ur­inn 75 millj­ónir króna. Það þýðir að 75 þús­und ferðir venju­legra fólks­bíla um göngin á fullu verði þurfti til að borga laun þeirra sem rukk­uðu fyrir ferðir um göngin. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár