Þorsteinn tekur aftur við BM Vallá

Þor­steinn Víglunds­son hefur verið ráð­inn for­stjóri eign­ar­halds­fé­lags­ins Horn­steins, sem á og rekur félögin BM Vallá, Björgun og Sem­ents­verk­smiðj­una. Þor­steinn var áður for­stjóri BM Vallá frá 2002 til 2010.

Þorsteinn Víglundsson
Þor­steinn Víglunds­son Mynd: Birgir Þór Harðarson

Þor­steinn Víglunds­son hefur verið ráð­inn for­stjóri eign­ar­halds­fé­lags­ins Horn­steins ehf. og hefur störf þar 16. apríl. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá fyr­ir­tæk­inu, en Þor­steinn til­kynnti í morgun að hann hefði sagt af sér þing­mennsku frá 14. apríl.

Horn­steinn á og rekur fyr­ir­tækin BM Vallá, Björgun og Sem­ents­verk­smiðj­una, en dótt­ur­fé­lögin starfa við öflun hrá­efna, fram­leiðslu, sölu og þjón­ustu á bygg­ing­ar­mark­aði og mann­virkja­gerð.

[links]

Þor­steinn þekkir vel til starf­sem­innar, en hann var for­stjóri BM Vallá á árunum 2002 til 2010. Hjá fyr­ir­tækj­unum starfa um 200 manns á starfs­stöðvum víða um land, en skrif­stofa Horn­steins er á Bílds­höfða í Reykja­vík.

Í til­kynn­ingu sem Þor­steinn sendi á fjöl­miðla í morgun segir að hann hafi til­kynnt ­Stein­grími J. Sig­fús­syni, for­seta Alþing­is, um ákvörðun sína síð­degis í gær.

„Ég hef að vand­lega íhug­uðu máli sam­þykkt að taka að mér spenn­andi verk­efni á vett­vangi atvinnu­lífs­ins og mun hefja störf síðar í þessum mán­uði. Þá hef ég á sama tíma til­kynnt stjórn Við­reisnar um afsögn mína sem vara­for­maður flokks­ins,“ sagði Þor­steinn.

[adspot]

Sæti Þor­steins á þingi tekur fyrsti vara­þing­maður Við­reisnar í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norð­ur­, Þor­björg Sig­ríður Gunn­laugs­dóttir lög­fræð­ing­ur. Hún var aðstoð­ar­maður Þor­steins þegar hann gegndi emb­ætti félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra.

Þorbjörg segir í til­kynn­ingu sem send var til fjöl­miðla í morgun að þing­flokkur Við­reisnar sé skemmti­legur og sterkur hóp­ur, sem henni finn­ist frá­bært að verða núna hluti af.

„Auð­vitað er síðan sér­stakt að taka sæti á Alþingi með þau verk­efni sem koma í kjöl­far þess að far­aldur er að breyta heim­in­um. Mér hefur fund­ist sam­staða og sam­kennd ein­kenna fyrstu skref. Og ætla að leggja mitt af mörkum með þessi stef að leið­ar­ljósi og frjáls­lyndar áherslur Við­reisn­ar,“ var haft eftir Þor­björgu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár