Arkitektar og skipulagsfræðingar gagnrýna hugmyndir Sigmundar Davíðs

Stjórnir Arki­tekta­fé­lags Íslands, Félags íslenskra lands­lags­arki­tekta og Skipu­lags­fræð­inga­fé­lags Íslands gagn­rýna hug­myndir Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar um við­bygg­ingu við Alþing­is­húsið, nýja stað­setn­ingu Lands­spít­al­ans og fram­tíð Reykja­vík­ur­flug­vallar í nýrri, sam­eig­in­legri ályktun. Álykt­un­ina senda félögin frá sér vegna ummæla Sig­mundar um þessi mál.

Sig­mundur Davíð sagði nýlega að grípa þyrfti til varna fyrir Reykja­vík­ur­flug­völl og koma í veg fyrir að borg­ar­yf­ir­völd „grafi stöðugt undan flug­vell­inum og beiti brögðum til þess að losna við hann.“ Stjórn­irnar þrjár segja að skiptar skoð­anir séu um stað­setn­ingu flug­vall­ar­inar og því sé mik­il­vægt að hvetja til hóf­stilltrar og mál­efna­legrar umræðu í stað þess að sá fræjum sund­ur­lyndis. „Ummæli for­sæt­isráðherra um að borg­ar­yf­irvöld beiti brögðum til að losna við Reykjavíkur­flugvöll eru í því ljósi óheppi­leg sem og sú hug­mynd að ráðherra fari með yfir­stjórn skipu­lags- og mann­virkjamála á Reykjavíkur­flug­velli. Að taka skipu­lags­vald frá sveit­arfélögum er ekki skyn­sam­legt og ekki í anda þess að færa ákvarð­anatöku í skipu­lagsmálum nær almenn­ingi.“

Sig­mundur hefur einnig lagt fram drög að þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um að byggja við­bygg­ingu við Alþingi eftir teikn­ingum Guðjóns Sam­ú­els­sonar. „Það er afar óeðli­legt að ætla að ákveða útlit bygg­ingar með jafn afger­andi hætti og lagt er til í þingsálykt­un­ar­tillögu um ald­ar­af­mæli full­veldis Íslands sem birt var þann 1. apríl síðast­lið­inn,“ segir í álykt­un­inni um þessar hug­myndir. Þó mik­il­vægt sé að huga að sögu­legu gildi umhverfis sé það veik fram­tíð­ar­sýn að taka útgangs­punkt í for­tíð­inni. „Mik­il­vægt er að upp­bygg­ing og hönnun end­ur­spegli raun­veru­leika þess samfélags sem er til staðar hverju sinni. Því er mun nær að leggja alúð við að greina sam­hengi við­kom­andi verk­efnis svo hægt verði að fletta saman nýju og gömlu á auð­mjúkan en skap­andi hátt.“

Um hug­myndir Sig­mundar Davíðs um nýja stað­setn­ingu Land­spít­al­ans segja félögin að þó ákvörðun um stað­setn­ing­una sé umdeild sé hún byggð á fag­legri skipu­lags­gerð og hefur farið í gegnum lög­bundna ferla. „Það er því afar gagnrýnis­vert að setja jafn mik­il­vægt verk­efni í uppnám með illa ígrund­uðum pæl­ingum um aðra stað­setn­ingu. Því er vert að hafa í huga að orðum fylgja ábyrgð.“

Þá ræða stjórn­irnar þrjár um hug­myndir um end­ur­bygg­ingu Val­hallar og segja að upp­bygg­ingu í þjóð­garð­inum á Þing­völlum þurfi að skoða í víð­ara sam­hengi. „Liggja þarf fyrir skýr framtíðarsýn um þjóðgarð­inn í heild sinni í tengslum við náttúru, sögulegt umhverfi og heimsminja­skrá Sam­ein­uðu þjóðanna, áður en teknar eru ákvarð­anir um ein­stakar aðgerðir,“ segir í álykt­un­inni.

Þá segja félögin þrjú að umræða um skipu­lag og arki­tektúr geti verið snúin. „Í því ljósi viljum við bjóða stjórnvöldum upp á sam­tal um okkar byggða umhverfi, hvort sem það er stórt eða lítið, gam­alt eða nýtt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár