Sendiráð Íslands í Berlín og París fylgjast með flugslysinu, ekki vitað um Íslendinga um borð

Utan­rík­is­ráðu­neytið hefur haft sam­band við sendi­ráð Íslands í Berlín og París vegna flug­slyss­ins í Frakk­landi til þess að fylgj­ast með því þegar hægt verður að nálg­ast upp­lýs­ingar um far­þega og þjóð­erni þeirra. Þetta stað­festir Urður Gunn­ars­dóttir, fjöl­miðla­full­trúi utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins, við Kjarnann. Enn sem komið er hefur ráðu­neytið ekki neinar upp­lýs­ingar um það hvort Íslend­ingar voru um borð í vél­inni, enda mjög skammt frá því að flug­slysið varð.

Airbus A320 þota frá þýska flug­fé­lag­inu Germanwings, dótt­ur­fé­lagi Luft­hansa, hrap­aði í Meolans-Revel í morgun. Meolans-Revel er um hund­rað kíló­metrum frá Nice og er mjög fámennt þorp. 148 voru um borð. Francois Hollande Frakk­lands­for­seti hefur sagt að ólík­legt sé að nokkur hafi lifað slysið af. Erfitt er að kom­ast að slys­staðnum.

[caption id="attachment_24006" align="alignnone" width="931"] Hér má sjá stað­setn­ingu vél­ar­innar þegar hún hrap­aði. (Mynd: Flightradar24.com)[/caption]

Sky News greinir frá því að vélin hafi farið úr 40 þús­und feta hæð niður í sex þús­und fet á innan við tíu mín­útum. Klukkan 9.47 í morgun barst neyð­ar­kall frá vél­inni en hún hvarf af rat­sjám mjög skömmu síðar.

Uppfært 12:05: Í neyð­ar­kall­inu frá vél­inni var ekki sagt hvers eðlis vandi vél­ar­innar væri. Þá er búið að finna brak vél­ar­innar, en aðeins er hægt að kom­ast að slys­staðnum með þyrlum. Búið er að setja upp tíma­bundið lík­hús í nálægum skóla til að taka við lík­ams­leifum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár